153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[21:42]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Mig langar að ræða þá alvarlegu stöðu sem birtist í fjárlagafrumvarpinu varðandi loftslagsmál og sinnuleysi og aðgerðaleysi stjórnvalda gagnvart þeim mikilvæga málaflokki. Það þarf nú varla að fjölyrða um það, við erum búin að ræða það oft í þessum sal, að ríkisstjórnin hefur enn ekki lögfest eigin markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda þrátt fyrir að stjórnarliðar stæri sig gjarnan af þeim meintu metnaðarfullu áformum. Áformin standast reyndar ekki skoðun betur en svo að sjálft loftslagsráð, sá opinberi aðili sem sér um að hafa eftirlit með aðgerðum stjórnvalda, kallar áætlanir og markmið ríkisstjórnarinnar ómarkviss, óljós og ófullnægjandi. Ísland er þar að auki langt á eftir áætlun. Það sem ákveðið hefur verið að gera og hefur verið fjármagnað er ekki að skila því sem það á að gera. Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Umhverfisstofnunar þá jókst losun um 3% á milli áranna 2020 og 2021. Á sama tíma og aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar og bara lögmál eðlisfræðinnar kalla á það að losun dragist saman þá jókst hún vegna aðgerða ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og ef fram heldur sem horfir eru allar líkur á að Ísland muni engan veginn standa við skuldbindingar sínar. Það er ekki að sjá í þessum fjárlögum að verið sé að breyta um kúrs. Það er ekki stefnt að einhverju ráði að auknum metnaði eða þeim róttæku aðgerðum sem þarf að grípa til.

Það þarf nefnilega að færa viðbrögðin á neyðarstig en ríkisstjórn Íslands virðist í rauninni hafa færst í þveröfuga átt og á köflum finnst manni hún nánast vera búin að gefast upp í stað þess að hafa séð hér á síðustu mánuðum ráðherra koma hvern á fætur öðrum með nýjar og uppfærðar áætlanir eins og þau ættu að gera með reglulegu millibili. Enn er verið að spila eftir löngu úreltri handbók. En það sem er kannski verst og það sem er alvarlegast og það sem er hættulegast er að það skín í gegnum öll orð stjórnarliða og hvernig þau bera sig í þessum umræðum að þau átta sig ekki á þessu, þau séu jafnvel haldin þeirri ranghugmynd að ríkisstjórnin sé að sýna mikinn metnað og hún sé að ná miklum árangri. Þetta er jafn rangt og það er hættulegt.

Það er margt sem mig langar að ræða í þessu samhengi en mig langar að byrja á því að tæpa aðeins á markmiðunum sjálfum og fjármagninu sem hefur verið varið til að ná þeim fram. Ég bið forseta forláts, ég á eftir að nefna dálítið af tölum en ég held að í ljósi þess að við erum að ræða hér fjárlög sem eru stútfull af tölum þá verði mér fyrirgefið það.

Hver eru markmið Íslands varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda? Það skrýtna er að það er ekki auðvelt að svara þessari spurningu. Ef við förum yfir feril ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur þá byrjaði stjórnin á því að setja sér markmið um 40% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Það voru sömu markmið og Evrópusambandið setti sér. Þetta var eðlileg ráðstöfun í ljósi þess að Ísland og Noregur eru í samfloti með Evrópusambandinu varðandi heildarmyndina. Þessi losun skiptist í þrjá hluta: ETS-kerfið svokallað, viðskiptakerfi með losunarheimildir sem t.d. álverin á Íslandi falla undir. Þar hafa stjórnvöld kannski ekki stjórn á mörgum ventlum í vélinni. Þetta er sameiginlegt evrópskt kerfi sem loksins á síðustu árum er farið að skila einhverjum árangri í að byggja upp þann markað sem þarf með losunarheimildir til þess að það myndist hvati fyrir mengandi starfsemi að draga úr mengun frekar en að borga fyrir losunarheimildirnar. Við getum lagt þennan hluta aðeins til hliðar vegna þess að sá hluti sem sýnir kannski mest á spilin varðandi aðgerðir stjórnvalda er sá sem hefur verið kallaður losun á beinni ábyrgð stjórnvalda, stundum kallað samfélagslosun, sem er þá í rauninni allt hitt sem við gerum. Þar eru fiskiskip, samgöngur á landi og sjó, losun vegna landbúnaðar, hvort sem það er vegna iðragerjunar jórturdýra eða áburðarnotkunar, það er losun frá úrgangi. Þetta er restin. Þarna hafa íslensk stjórnvöld alla ventlana, þarna geta þau stýrt öllu, geta sett gulrætur og svipur inn í hvata- og lastakerfi, geta sett reglur, ívilnanir, mengunargjöld og bara hvað sem er sem stjórnvöld vilja gera. Gott og vel.

Varðandi þessa samfélagslosun þá var samið á milli Íslands og Evrópusambandsins að af 40% heildarmyndinni í upphafi síðasta kjörtímabils myndi Ísland þurfa að draga úr samfélagslosun um 29%, við fengum dálítið góðan díl þar. Þessi 29% urðu síðan grunnurinn að aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Allar aðgerðir í þeirri áætlun miðuðu við að ná þessu 29% marki í þeirri heildarmynd sem aðgerðaáætlunin nær yfir. Svo leið og beið. Aðgerðaáætlun var lögð fram í flýti árið 2018, hálfu ári eftir að ríkisstjórnin tók við, og það var sagt að það ætti að endurskoða hana fljótt aftur eftir meiri yfirlegu en það liðu rúm tvö ár þangað til að hún var endurskoðuð. Uppfærð útgáfa af aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum leit dagsins ljós 2020 og miðaði enn við gamla markmiðið. Þarna hefði ríkisstjórnin auðvitað átt að nýta tækifærið þegar hún dustaði rykið af aðgerðaáætluninni og gerði hana skýrari, hún hefði átt að nýta tækifærið og auka metnaðinn í leiðinni eins og Parísarsáttmálinn gerir kröfur á stjórnvöld að gera með reglubundnum hætti. Í staðinn beið ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur þess að Evrópusambandið næði saman um aukinn metnað sín megin þar sem heildarmyndin fór upp í 55%. Þá ákvað ríkisstjórnin að stíga fram, ekki fyrir skjöldu heldur fyrir aftan skjöldinn, og í skjóli þess að Evrópusambandið væri hvort eð er að gera þetta þá sagði ríkisstjórnin: Við ætlum að auka metnaðinn og taka þátt í þessu 55% sameiginlega markmiði Evrópusambandsins.

Vandinn er að Evrópusambandið er frekar svona seigfljótandi ákvörðunartökufyrirbæri þannig að það er enn ekki búið, núna tveimur árum eftir að heildarmetnaðurinn var aukinn upp í 55%, að semja um hlutdeild Íslands hvað varðar samfélagslosunina. Enn erum við með markmið í aðgerðaáætlun sem miða við löngu, löngu úrelt heildarmarkmið ríkisstjórnarinnar.

Það sem er svo sláandi við þetta er að í millitíðinni endurnýjaði ríkisstjórnin heitin og skrifaði í stjórnarsáttmála sinn að hún ætlaði ná fram 55% samdrætti á samfélagslosuninni, á þeirri losun sem Evrópusambandið hafði sagt að þyrfti ekki að ná nema 29% samdrætti á. Ríkisstjórnin ætlaði að ná 55% sjálfstæðum samdrætti Íslands. Vandinn er að það er ekkert sem bendir til að það sé raunhæft miðað við núverandi aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þessar bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar um losun milli áranna 2020 og 2021 sýndu að ef samfélagslosunin er greind sérstaklega þá er að nást samdráttur þar. Hann nær rétt svo undir þau mörk sem 29% markmiðið setur Íslandi. Það þýðir að 55% markmiðið er langt frá því að nást. Það er miklu brattari lína og Ísland er þar langt fyrir ofan. En þar sem ekki er búið að útfæra þetta meinta 55% markmið ríkisstjórnarinnar með neinum öðrum hætti en að setja það fram í stjórnarsáttmála fyrir ári þá er Umhverfisstofnun ekki í færum með að benda sérstaklega á þetta og gagnrýna né heldur Evrópusambandið sem ætti að hafa eftirlit með skorti á efndum Íslands í þessu sameiginlega markmiði Íslands og ESB.

Hver af þessum tölum er þá markmið Íslands? Allar aðgerðir miða enn við 40% samdrátt. Það er sagt að við séum komin með 55% sameiginlegt markmið Evrópusambandsins eða jafnvel enn metnaðarfyllri markmið varðandi innlenda samfélagslosun, sjálfstætt markmið upp á 55%. Þessi tvö síðari eru í rauninni bara óljósar hugmyndir sem hvergi hefur hrint í framkvæmd. Það hefur ekki verið brugðist við þessu af neinu viti í síðustu fjárlögum eða fjármálaáætlunum. Það hefur verið hent einn einum og einum milljarði hér og þar til að sýnast alla vega vera að gera eitthvað. Á síðasta ári fór þetta nú allt meira og minna í einhverjar aðgerðir sem skila engum árangri fyrr en löngu eftir 2030, sem er uppgjörstímapunktur Parísarsáttmálans. Skógur vex ekki á sjö árum þannig að hann bindi koltvísýring af einhverju viti, en í það átti að setja mikið af fjármununum á síðustu fjárlögum. Nú er lagt til að leggja milljarð í ívilnanir til bílaleigufyrirtækja, kem aðeins að því síðar.

Varðandi fjármunina sérstaklega þá væri hollt fyrir okkur á þingi sem flest að lesa úttekt sem loftslagsráð gerði á opinberum fjármálum og loftslagsmálum, skilaði um mitt ár, í júní 2022. Þar er dregið svo óskaplega vel fram hvað þetta er mikill frumskógur og stjórnvöld hefðu varla getað gert kerfið ógagnsærra þótt þau hefðu ætlað sér það. Hafi þetta gerst óvart þá er það nú eiginlega lyginni líkast. Ég ætla að grípa niður í eitt atriði sem er farið sérstaklega út í, vegna þess að þar er byggt m.a. á svari sem fjármálaráðherra skilaði við fyrirspurn frá mér um tekjur af uppboðsheimildum innan ETS-kerfisins. Eins og ég sagði áðan þá er ETS-kerfið loksins að ná dampi þannig að sala losunarheimilda er farin að skila tekjum inn í kerfið og kerfið er þannig uppbyggt að ríkissjóðir ríkja sem eiga aðild að því eiga hlutdeild í tekjunum. Þessar tekjur eru orðnar umtalsverðar fyrir Ísland og í þessu svari kom fram að árið 2019 voru tekjur íslenska ríkisins 3,5 milljarðar, árið 2020 voru tekjurnar 6 milljarðar. Það var áætlað að tekjur ársins 2021 yrðu 845 milljónir. Svo spurði ég ráðuneytið hvernig það sæi fyrir sér að tekjurnar þróuðust á næstu árum. Þar kom fram að í forsendum tekjuáætlunar gerir ráðuneytið ráð fyrir að verð losunarheimilda hækki um 2–4% árlega á næstu fimm árum en á móti sé gert ráð fyrir að heimildunum sjálfum fækki. Það er í rauninni gert ráð fyrir hægum samdrætti í væntum tekjum ríkissjóðs af losunarheimildum. Í greiningu loftslagsráðs er bent á að það sé þvert á móti mögulegt að losunarheimildum muni fjölga á næstu árum. Um það stendur umræðan innan Evrópusambandsins þessa dagana. Tillaga framkvæmdastjórnar ESB um að fjölga uppboðsheimildum fyrir tímabilið fram til 2030 er hluti af pakka sem er kallaður „Fit for 55“, með leyfi forseta, sem við gætum kannski kallað í stakk búin fyrir 55%, pakki sem er ætlaður til að stuðla að því að ESB nái þeim markmiðum sem búið er að setja varðandi kolefnishlutleysi árið 2050 og áfangamarkmið um 55% samdrátt fyrir 2030. Verði þessar tillögur framkvæmdastjórnarinnar að veruleika og komist almennilega til framkvæmda, sem við hljótum að gera ráð fyrir, þá er mjög líklegt að það verði aukning í tekjum af uppboðsheimildum. Það er dálítið umhugsunarvert að ráðuneyti fjármála á Íslandi virðist vera svolítið úti að aka þegar kemur að þessum mikilvæga tekjustofni. Hann er ekki bara hugsaður til þess að ná tvíþættu markmiði, annars vegar er þetta gjaldtaka sem er hugsuð til að draga beinlínis úr losun og síðan eru þetta fjármunir sem er ætlað að stuðla að loftslagsvænum aðgerðum í aðildarríkjunum.

Þar erum við komin að atriði sem mig langar að nefna í tengslum við breytingartillögu, sem fulltrúi Pírata í fjárlaganefnd leggur fram, um að stórauka framlög til loftslagssjóðs. Í dag er staðan nefnilega sú að sjóðurinn fær til sín 100 millj. kr. á fjárlögum á ári og eftir að búið er að greiða af þessum 100 milljónum það sem kostar að halda utan um sjóðinn, sem felst í aðstöðu og starfskröftum hjá Rannís og einhverju tilfallandi, eru rúmar 90 milljónir eftir til úthlutunar til félagasamtaka eða fyrirtækja eða nýsköpunar, til einstaklinga eða hverra þeirra sem dettur í hug að vinna að einhverjum ferskum og nýjum lausnum á loftslagsvandanum. Þetta er ekki há upphæð og þar að auki er þetta ekki í samræmi við það sem lagt var upp með þótt þetta sé reyndar því miður í samræmi við lög um loftslagsmál eins og þau eru í dag. Þegar frumvarp til laga um loftslagsmál var lagt fram á sínum tíma, fyrir tíu árum, var kveðið á um að tekjur loftslagssjóðs ættu m.a. að vera helmingur tekna íslenska ríkisins af sölu losunarheimilda á uppboði, sem sagt helmingurinn af þessum 3,5 milljörðum eða 6 milljörðunum eða 847 millj. kr. Það væri töluvert hærri upphæð heldur en þær 100 milljónir sem skammtaðar eru í dag. Þetta er ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld föttuðu upp á sitt einsdæmi heldur er þetta beinlínis í samræmi við tilskipunina sem ETS-kerfið byggir á. Þar segir að nota skuli a.m.k. 50% af tekjum af uppboði á losunarheimildum í eitt eða fleiri verkefni af því tagi sem þar eru talin upp. Í svari sínu benti ráðuneytið mér hins vegar á að Ísland sé ekki í Evrópusambandinu og því hafi þetta ekki bein áhrif á Ísland, sem er svo sem ágætt að fá staðfestingu á. En það breytir því ekki að þetta er góð hugmyndafræði. Það er í samræmi við mengunarbótaregluna að eyrnamerkja þann pening sem tekinn er af mengandi stóriðju um gervalla Evrópu og beina þeim fjármunum í grænu lausnirnar sem þarf til að bregðast við afleiðingum þessarar mengunar. Hins vegar er það þannig að hreintrúarstefna hæstv. fjármálaráðherra, hann var það væntanlega á þessum tíma líka — nei, það var árið 2014, þá lagði fjármálaráðherra fram frumvarp til laga um ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps þar sem var tekin sú ákvörðun að tekjur af sölu losunarheimilda á uppboði yrði ekki markaðar til loftslagssjóðs eins og var upphaflega í lögunum, enda kallaði orþódoxían í ráðherranum á það að markaðir tekjustofnar væru þurrkaðir út úr lögunum. Þar með hvarf þessi möguleiki á að loftslagssjóður yrði stór, stöndugur og sterkur og stæði undir þeirri grænu nýsköpun eins og honum var upphaflega ætlað að gera og hann varð í staðinn að mun smærri sjóði sem, þó að hann styrki góð verkefni, gæti styrkt svo ótal miklu fleiri góð verkefni.

Tillaga hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar sem er lögð fram hér við það frumvarp sem við ræðum í dag er að láta loftslagssjóð hafa þá fjármuni sem ríkið fékk vegna tekna af ETS-kerfinu á síðasta ári, ekkert 50%. Það er komið mun meira og brýnna og skýrara neyðarástand heldur en fyrir tíu árum. Það er engin ástæða til að skera þetta við nögl. Sá ágóði sem íslenska ríkið hefur af ETS-kerfinu sem álverin greiða fari bara lóðbeint í loftslagssjóð, 850 millj. kr. er tillaga hv. þingmanns.

Þá langar mig að halda áfram að tala um það hvernig skortir yfirsýn. Eins og þessi úttekt loftslagsráðs sýnir svo bersýnilega þá er stjórnsýslan veik. Það hefur verið bent á það að stjórnsýsla loftslagsmála sjálfra sé veik, þ.e. umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun og loftslagsráð þurfi að styrkja öllsömul en svo eru fleiri aðilar sem kannski á yfirborðinu eru ekki með mjög augljósa snertifleti við loftslagsmál sem greinilega hafa ekki nógu djúpa eða trausta þekkingu á málaflokknum eins og fjármálaráðuneytið sem heldur utan um mjög mikilvæga þætti málaflokksins. Þá langar mig að segja örlitla dæmisögu, dæmalausa dæmisögu um vandræðagang við að fá einfaldar upplýsingar út úr stjórnsýslunni. Þannig er að í vor var Alþingi að fjalla um tillögu til fjármálaáætlunar og 7. apríl óskaði umhverfis- og samgöngunefnd eftir því í gegnum fjárlaganefnd að fá samantekt á útgjöldum til loftslagsmála í áætluninni. Sambærileg samantekt hafði verið í áætluninni árið áður, mjög gagnleg rammagrein sem var þar helguð framlögum til loftslagsmála þar sem sást stöplarit og sundurgreint og þetta var allt ofboðslega skýrt og aðgengilegt. Við í umhverfis- og samgöngunefnd héldum að það yrði nú lítið mál að fá þessar upplýsingar frá ráðuneytinu. Það myndi væntanlega bara taka excel-töfluna ofan úr hillu og senda beint til okkar og biðjast bara forláts á því að hafa ekki prentað þetta í fjármálaáætluninni eins og árið áður. Það var nú alls ekki raunin. Eftir margítrekaðar og endurteknar tilraunir til að fá þessar upplýsingar til Alþingis barst minnisblað loksins 8. nóvember. Ég ætla að minna á upphafsdaginn, 7. apríl samþykkti nefndin að kalla eftir þessum tölum. 8. nóvember bárust þær. Apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember — sjö mánuðir. Í millitíðinni var búið að samþykkja fjármálaáætlunina sem hefði náttúrlega ekki átt að gera án þess að hafa þessar tölur á hreinu og það var búið að leggja fram fjárlagafrumvarp. Við vinnslu fjárlaga hefði ég nú haldið að þessar tölur yrðu enn ljósari í fjármálaráðuneytinu, það hefði átt að vera hægt að senda þetta minnisblað til okkar á sama tíma og fjárlagafrumvarpið en sú var nú aldeilis ekki raunin.

Mér finnst svolítið fyndið að lesa þetta og ætla, með leyfi forseta, að lesa eina setningu upp úr minnisblaðinu:

„Það er mat fjármála- og efnahagsráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis eftir yfirferð á svörum ráðuneytanna, ábendingum loftslagsráðs og með tilliti til aukinnar almennrar umræðu um loftslagsmál að fullt tilefni sé til að bæta gagnsæi og framsetningu upplýsinga um kostnað og tekjur vegna aðgerða í loftslagsmálum svo að upplýst umræða geti átt sér stað.“

Þetta skrifaði ráðuneytið í blaði sem tók okkur sjö mánuði að fá utan um upplýsingar sem það birti ári áður á skýran og aðgengilegan hátt án þess að við þyrftum að kalla eftir því. Hér metur ráðuneytið það sem svo að það væri kannski sniðugt að auka upplýsingagjöf á sama tíma og upplýsingagjöfinni hrakaði á milli ára. Þeir miklu erfiðismunir sem þurftu til að draga þessar upplýsingar út úr ráðuneytunum voru bara með ólíkindum. En gott og vel. Hvað kemur í ljós hér? Það kemur í ljós að þegar litið er bara á þau útgjöld sem flokkuð eru til loftslagsmála þá er línan algerlega flöt árin 2023–2027. Hún fer úr því að vera 4,7 milljarðar 2023 í það að vera 4,7 milljarðar 2027. Hér er rétt að taka fram að inni í þessum tölum eru ekki t.d. millifærslur sem eru það sem við köllum ívilnanir til rafbíla, sem eru í rauninni stóru tölurnar þegar kemur að framlagi ríkisstjórnarinnar til loftslagsmála. Þar erum við að tala um kannski tvöfalda þessa upphæð á ári vegna þess að ríkisstjórninni er mjög umhugað um að hjálpa millistéttinni að taka þátt í orkuskiptunum, mun meira umhugað en að aðstoða aðra þjóðfélagshópa við það. Svo þegar rýnt er í þessar tölur kemur margt áhugavert í ljós. Í þessu minnisblaði eru útgjöld flokkuð í loftslagsmál, náttúruvernd, umhverfismál, blönduð flokkun er hér eitt og svo eru önnur verkefni. Undir blandaða flokkun fellur t.d. Umhverfisstofnun sem þó hefur nokkuð með loftslagsmál að gera en það kemur fram að það liggur ekki fyrir greining á umfangi hvers flokks sem stofnunin heldur utan um, þ.e. náttúruvernd, umhverfismál og loftslagsmál. Mér finnst þetta mjög furðulegt því ég hef ekki tekið eftir öðru en að Umhverfisstofnun sé með mjög þróað verkbókhald og það er mjög undarlegt að það nái ekki til stóru myndarinnar, hverjir helstu málaflokkarnir eru sem hún sinnir og hvert umfang þeirra er. Það sem mér fannst kannski enn áhugaverðara var það mat umhverfisráðuneytis og Veðurstofunnar að í víðum skilningi megi flokka alla starfsemi Veðurstofunnar undir loftslagsmál. Já, hugsaði ég. Þannig að eldgosavöktun, jarðskjálftavöktun, flugveðursþjónusta. Er fólk ekki að teygja hugtakið aðeins of langt? Er þetta ekki full kreatíf uppsópun á útgjaldaliðum til að geta látið tölurnar líta vel út? Þar að auki, það kemur svo sem ekki fram í þessum tölum, man ég ekki betur en að stór hluti af þeim 3 milljörðum sem Veðurstofan hefur til umráða, stór hluti þeirra fjármuna, sé sjálfsaflafé sem hún hafi úr hinum ýmsu alþjóðlegu rannsóknaráætlunum. Ég held að sirka helmingur af því sem Veðurstofan gerir sé fjármagnað með þeim hætti. Það er mjög fegrandi túlkun hjá ríkisstjórninni að telja þetta erlenda styrkjafé sem bara nokkuð stóran hluta af útgjöldum ríkisins til loftslagsmála.

Ég sé að tíminn er farinn að styttast þó að við séum með tvöfaldan ræðutíma þá er þetta töluvert styttri tími en ég hafði reiknað með. Mig langar þá að tala sérstaklega um orkuskipti vegna þess að þar er kannski stærsta sóknarfærið hjá okkur til að koma böndum á þessa samfélagslosun sem ég nefndi áðan, sem sagt allt fyrir utan stóriðjuna. Ef við skoðum losun á beinni ábyrgð Íslands, þessa samfélagslosun, þá er eldsneytisnotkun 58% af henni. Þar munar einna mest um bílaflotann þó að fiskiskip eða skip almennt séu stór hluti af því. Landbúnaður er næsti flokkur á eftir, hálfdrættingur á við þessa eldsneytisnotkun. Þótt ég hafi kannski ekki talað allt of fallega um rafbílavæðinguna hérna rétt áðan þá er hún þáttur í þessum orkuskiptum, ég vil ekki gera lítið úr því. En kerfið sem er við lýði þar er enn þá það sama og það var fyrir þremur, fjórum árum. Það hefur ekkert breyst frá því að þessi ríkisstjórn tók við alla vega. Hvað þýðir það að við séum með sama kerfi til að hvetja áfram orkuskipti í vegasamgöngum, hvetja áfram orkuskipti í fólksbílum í dag eins og þegar ríkisstjórnin tók við? Það þýðir að tvö fjárlög í röð er ríkisstjórnin ekki búin að nýta tækifærið til þess að hvetja til orkuskipta í vegasamgöngum áfram. Þótt rafbílavæðingin gangi ágætlega þá gengur hún ekki nógu vel. Þessi tvö glötuðu ár ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, 2022 og 2023, eru dýr vegna þess að bílar sem eru settir á göturnar á þessum árum verða væntanlega flestir enn á götunum árið 2030 þegar kemur að uppgjöri Parísarsáttmálans. Þá læt ég ósagt hversu lítið ber á aukinni áherslu á almenningssamgöngur eða stórtækar ívilnanir í þágu hjólreiða, sem eru langhagkvæmustu orkuskiptin. Það eru breyttar ferðavenjur sem ná fram samdrætti í losun. Við náum ekki öllu okkar fram með því að vera með jafn marga bíla en bara skipta um mótor í þeim öllum, gera þá alla að rafmagnsbílum, heldur með því að fækka bílum og láta þá keyra minna að meðaltali. En gott og vel.

Mig langar að nefna þetta í samhengi við kynningu sem Orkustofnun var með í síðustu viku á orkuskiptalíkani sínu, sem ég mæli aftur með að allir þingmenn leiki sér í. Kynningin var undir yfirskriftinni: Er pláss fyrir einn bensínbíl í viðbót? Ef við ætlum að ná markmiðum Íslands í loftslagsmálum er pláss fyrir einn nýskráðan bensínbíl í viðbót? Svarið var nei, eiginlega ekki. Það er eiginlega ekkert pláss fyrir nýskráningar á fólksbílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Það að taka ákvörðun í dag um að hleypa fleiri bensín- og dísilbílum á göturnar er mjög stór og alvarleg ákvörðun. Í þessari kynningu var farið yfir það sem var kallað norska leiðin. Sérfræðingar Orkustofnunar höfðu leikið sér að því að setja forsendur norska ívilnanakerfisins og helstu markmið norskra stjórnvalda inn í orkuskiptalíkanið og þá allt í einu kom í ljós að að óbreyttu er að nást 11% samdráttur í losun frá vegasamgöngum miðað við áætlanir stjórnvalda en samkvæmt úreltu aðgerðaáætluninni ætti að nást 21% samdráttur. Þessi aðgerðaáætlun mun væntanlega uppfærast og vonandi fljótlega. Núverandi ástand er því hvergi nærri að skila sínu. Með því að setja inn norsku leiðina sem miðar við að nýskráningarhlutfall rafmagnsbíla verði 100% hvað varðar fólksbíla, bílaleigubíla og sendiferðabíla árið 2025, 50% árið 2030 hvað varðar hópferða- og vöruflutningabíla, þá bara náðist markmiðið.

Þetta, frú forseti, er eitthvað sem þarf að gerast en þetta gerist ekki með því að vera bara með ívilnanir á rafmagnsbílum, vera ekkert að skoða breytingar á gjaldtöku á bensín- eða dísilbílum og ekki heldur að vera búin að færa í orð hvernig eigi að banna bensín- og dísilbíla, eins og ríkisstjórnin segist ætla að gera fyrir árið 2030, á meðan Norðmenn ætla að gera það 2025.

Síðan örstutt varðandi þennan milljarð sem verið er að láta til bílaleiganna til að ná samdrætti í losun þar með því að þær rafbílavæðist í auknum mæli. Það er áætlað í nefndaráliti meiri hlutans að þetta skili 3,5 kílótonnum í samdrætti í losun. Ég veit ekki alveg hvort þetta er reikningsvilla eða ekki vegna þess að það myndi þýða að hvert tonn kostaði 285.000 kr. í samdrætti í losun en til samanburðar þá fann Hagfræðistofnun Háskóla Íslands út að ívilnanir til rafmagnsbíla, sem stofnunin sagði að væru allt of óhagkvæmar, kostuðu 30.000 kr. á tonnið, (Forseti hringir.) sem er tíu sinnum minna. Annaðhvort er þetta reikningsskekkja hjá nefndinni eða það er verið að leggja til hérna alveg fáránlega dýra og (Forseti hringir.) óhagkvæma aðgerð til hjálpa bílaleigunum að standast skuldbindingar sínar.