153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[23:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé einmitt mjög mikilvægt að hafa það í huga að rekstur ríkisins á ósköp fátt sambærilegt við rekstur heimilis eða rekstur fyrirtækis. Í mínum huga snýst svona tekjuöflun, þótt það sé orðið sem er notað, frekar um að kreista eitthvað út úr hagkerfinu en að setja eitthvað í einhvern kassa og deila því svo út einhvers staðar hinum megin. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa þetta í huga. Nú liggja fyrir rannsóknir, bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum, sem sýna að arðgreiðslur út úr fyrirtækjum og hagnaður er orðinn stór þáttur og að mörgu leyti ein af stóru orsökum verðbólgu í mörgum tilvikum og að þetta sé eitthvað sem við verðum að hafa í huga einmitt þegar kemur að tekjuöflun. Við getum tekið dæmi. Stóra aðgerð ríkisstjórnarinnar gegn þenslu í þessum fjárlagapakka, bæði í fjárlögum og fjárlagabandormi, og þá er ég að tala um þær ráðstafanir sem eru kynntar sérstaklega sem ráðstafanir til að sporna gegn þenslu, er þessi ofsahækkun á krónutölugjöldum. Þau eru hækkuð, ekki bara um 2,5% eins og oftast er gert í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans heldur hækka þau um 7,7%. Þetta er ofboðslega óskilvirk leið á tekjuhlið ríkisins til að sporna gegn verðbólgu því það fyrsta sem gerist við svona gjaldahækkun er að hún lekur beint út í verðlagsvísitöluna. Það er meira að segja viðurkennt í greinargerð að þetta hækkar verðlagsvísitöluna til skamms tíma um 0,2%. Ég held að þær tekjuöflunaraðgerðir sem ég hef verið að nefna hér, þessar aðhaldsráðstafanir á tekjuhliðinni, séu miklu betur til þess fallnar að sporna gegn verðbólgu heldur en svona krónutölugjaldahækkun.