fjárlög 2023.
Forseti. Ég vil einmitt síður kalla þetta tekjuöflunaraðgerðir. Þegar allt kemur til alls eru þetta aðgerðir gagnvart krónunni sem er eign ríkisins og verðstilling á henni. Það er ákveðinn kostnaður sem fylgir því að nota krónuna eftir því í hvaða samhengi hún er notuð, t.d. varðandi fjármagnsflutninga eða fjármagnstekjur. Slík notkun á krónunni gæti einfaldlega talist dýrari heldur en bara launanotkun á krónunni. Krónan eða gjaldmiðillinn sem slíkur er í rauninni ekkert nema milliliður fyrir gamaldags vöruskipti þegar allt kemur til alls, skipti á tíma og vöru á milli fólks. Þegar við tökum ákvarðanir um að taka skatta eða greiða gjöld þá erum við einfaldlega að breyta verðgildi krónunnar sem fólk er með, kemur út í verðbólgu eða verðhjöðnun eða hvað sem það er, yfirleitt verðbólgu. (Forseti hringir.) Þannig að við þurfum að átta okkur á þeim efnahagsákvörðunum sem er verið að taka í þessu frumvarpi sem ég hef bara séð vera til skaða útgjaldamegin og ekki til lagfæringar tekjumegin.