153. löggjafarþing — 42. fundur,  6. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[23:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og ég veit að hv. þingmaður styður það minnihlutaálit sem kom frá hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur, sem er formaður flokks hv. þingmanns. Margar góðar tillögur í því og taka á ýmsum málum. Mig langaði hins vegar að tala um tvö atriði sem eru nefnd í nefndarálitinu en virðist ekki vera nein útfærsla á í breytingartillögum hjá flokki hv. þingmanns. Í fyrsta lagi er málefnasviðið um sveitarfélög og byggðamál. Við höfum heyrt að undanförnu að það er mikill halli á málaflokkum, sérstaklega málaflokki fatlaðs fólks, þegar kemur að fjármagni innan sveitarfélaganna. Í nefndarálitinu er m.a. talað um að þarna sé um 13 milljarða gat. Mér tókst hins vegar ekki að sjá, í þeim breytingartillögum sem fylgdu þessu nefndaráliti, að það væri verið að tækla þetta vandamál. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég sá það ekki heldur vera tæklað í áliti meiri hlutans. Hvaða lausnir sér hv. þingmaður á þessu stóra gati? Ég veit að vegna þessa gats er í sveitarfélögum í kringum okkur verið að fjalla um niðurskurð á alls konar þjónustu.