153. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2022.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Orkustofnun hefur þróað gagnvirkt orkuskiptalíkan sem nálgast má á vefnum orkuskipti.is. Ég hvet hv. þingmenn til að fara inn á orkuskiptavefinn og prófa sig áfram með ólíkar forsendur orkuskipta. Hvernig ætlar Ísland að hætta að nota milljón tonn af olíu fyrir árið 2040? Fyrir þessi milljón tonn á ári greiðum við heila 100 milljarða kr. En við skulum átta okkur á því, forseti, að það ríkir mikil óvissa um forsendur orkuskiptanna hér á landi. Og hvers vegna skyldi það vera? Það er vegna þess að fyrirtækin sem framleiða orku innan lands ákveða sjálf í hvað orkan fer sem framleidd er. Það er ástæða til þess að árétta það eina ferðina enn héðan úr ræðustóli Alþingis að við sem samfélag höfum enga tryggingu fyrir því að sú endurnýjanlega orka sem hér er framleidd fari til orkuskiptanna, ekki einu sinni til fyrsta fasans í þriðju orkuskiptunum, þ.e. að rafvæða samgöngur á landi, því ekkert í lagaumhverfi okkar leyfir slíka forgangsröðun í þágu orkuskiptanna.

Ég vil því, forseti, nota þetta tækifæri til að minna á þingsályktunartillögu mína sem nú er til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd Alþingis um breytingar á raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi almennings og forgangsraða raforkuframleiðslu til orkuskipta. Það er algerlega nauðsynlegt að við gerum það. En það þarf einnig að setja raforkuframleiðendum í opinberri eigu eigendastefnu og kveða þarf skýrt á um það hvernig þeir forgangsraði sölu þeirrar raforku sem þeir framleiða.

Ég hyggst, hæstv. forseti, leggja fram þingmál á næstunni þar sem ríkisstjórninni verður falið að móta nýja eigendastefnu fyrir orkuframleiðendur í opinberri eigu sem leyfir slíka forgangsröðun.