Störf þingsins.
Forseti. Hlutverk stjórnvalda við að halda aftur af verðbólgunni er stórt og mikilvægt en vandamálið er að ríkisstjórnin sinnir því hlutverki ekki og fjölskyldur landsins borga fyrir aðgerðaleysið með vaxtahækkunum Seðlabankans. Við heyrum í dag neyðaróp seðlabankastjóra sem hefur þungar áhyggjur af auknum útgjöldum ríkisins sem geri verkefni Seðlabankans erfiðari. Þetta er þungur dómur.
Fjárlagafrumvarpið í ár hefur meiri þýðingu en oft áður í ljósi verðbólgunnar, í ljósi hárra vaxta, í ljósi komandi kjarasamninga og það eru blikur á lofti erlendis. En ríkisstjórnin leggur upp fjárlög með 118 milljarða halla; hallinn var 90 milljarðar í september og tveimur mánuðum síðar 118 milljarðar. En skiptir þetta fólkið í landinu kannski engu máli? Stundum tala stjórnmálamenn og jafnvel heilu stjórnmálaflokkarnir eins og skuldir skipti ekki máli, hafi ekki áhrif á almenning og það er hættulegur málflutningur.
Skoðum hvaða útgjaldaliður í frumvarpinu hefur hækkað mest frá því að frumvarpið var lagt fram og þangað til við komum að 2. umr. Eru það framlög í þágu þjónustu við fólkið í landinu? Eru það framlög til heilbrigðismála? Eru það framlög til húsnæðismála? Nei, það eru vaxtagjöld. Svimandi há vaxtagjöld veikja getu ríkissjóðs til að fjárfesta í grunnþjónustu. Það dugar þess vegna ekki í pólitík að neita að ræða halla og neita að ræða skuldir. Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla frá 2019 og gert er ráð fyrir honum út árið 2027. Þá hefur hann verið rekinn með tapi í næstum níu ár samfellt. Þetta er saga ríkisstjórnarinnar og það virðist engu máli skipta hverjar efnahagsaðstæður eru. Það eru tekin lán og reikningurinn sendur á næstu kynslóð.
Ég leyfi mér að rifja upp í lokin álit fjármálaráðs sem varpaði ljósi á kerfislægan hallarekstur þar sem tekjum er eytt strax eða um efni fram. (Forseti hringir.) Þetta er merkilega lítið rætt hér í þessum sal og ég skil reyndar mjög vel að meiri hlutinn forðist það.