Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er ekkert launungarmál að það hefur reynt mjög á löggæslu og fangelsin undanfarin ár. Nú á síðustu vikum hefur kastljósið beinst að bæði lögreglu og fangelsunum og að nauðsynlegt sé að bregðast við auknu álagi. Nú er staðan þannig að rúmlega 300 manns bíða afplánunar og a.m.k. 300 bíða eftir að sinna samfélagsþjónustu. Það er einnig óásættanlegt að um 50 dómar hafa fyrnst á síðustu tveimur árum vegna skorts á fangelsisplássum. Það er því mikið fagnaðarefni að sjá nú, ef fjárlagafrumvarpið verður samþykkt miðað við þær breytingartillögur sem liggja fyrir af hálfu ríkisstjórnarinnar, að stóraukið fjármagn verður sett í lögregluna, fangelsin og Landhelgisgæsluna. Hér eru sett aukin framlög í aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi sem og að styrkja almenna löggæslu, enda vantar fleiri lögreglumenn til starfa, sérstaklega eftir styttingu vinnuvikunnar. Landhelgisgæslan verður styrkt m.a. til að endurnýja búnað og húsnæði. Einnig verða fangelsin efld sérstaklega með fjölgun fangavarða og með því að bæta aðstöðu í fangelsunum og öryggi jafnt fanga sem fangavarða. Hér er verið að setja um 3 milljarða í þessa málaflokka. Við höfum ekki séð viðlíka framlög í mörg ár. Það er nauðsynlegt að lögreglan okkar sé vel mönnuð, vel menntuð og vel búin. Það á einnig við um fangelsin. Það skiptir gríðarlega miklu máli að lögreglumenn og fangaverðir séu vel menntaðir og vel þjálfaðir. Það er rétt að fagna stórauknum framlögum á sviði almanna- og réttaröryggis. Þetta skiptir máli og sýnir að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir ætla hér eftir sem hingað til að standa vörð um öryggi þjóðarinnar.