153. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2022.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nú rennur upp sá tími, desembermánuður, að gerðir eru þinglokasamningar eða þinghléssamningar. Þá á að semja um hvaða mál eigi að klára fyrir þinghlé. Þetta er dálítið tilgangslaus hefð að einhverju leyti. Réttara sagt er þetta líka ákveðin birtingarmynd þess hvernig meiri hlutinn fer með dagskrárvaldið. Við erum vissulega með flokka hér sem taka sér ákveðið meirihlutavald og það þýðir í praxís að þeir taka sér dagskrárvaldið bara fyrir sín mál, ekki fyrir hin 40–50% kjósenda sem aðrir flokkar standa fyrir; þau mál eru bara sett til hliðar. Það er svo augljóst þegar ríkisstjórnin vill einmitt klára fullt af málum, sérstaklega fyrir þinghlé, hversu mikið er búið að hunsa af öðrum málum sem mörg hver eru mjög góð. Þá er skiljanlegt að fólk segi: Heyrðu, fyrirgefið þið, á ekki eitthvað að sinna öðrum málum líka? Nei, það er bara allt keyrt í gegn.

Eini staðurinn til þess að vekja athygli á því að ekki er verið að sinna samningum um það hvernig eigi að afgreiða ákveðin þingmál, þegar það er ekki gert annars staðar, í nefndum o.s.frv., er hér í ræðustól Alþingis. Það er eina leiðin sem minni hlutinn hefur til að segja: Bíddu, fyrirgefið þið, þetta er ekkert rosalega málefnalegt. En meiri hlutinn hoppar þá og skoppar og bendir á málþóf, sem getur alveg verið málefnalegt. Það getur verið málefnalegt málþóf, það getur verið ómálefnalegt málþóf. Í tilvikum þar sem um er að ræða mál sem ríkisstjórnin vill troða í gegn, sem vísbendingar eru um að séu stjórnarskrárbrot, þá er málþóf mjög málefnalegt. Þegar málið er ekki slíkt, eins og t.d. í orkupakkamálinu, þá er það ekkert rosalega málefnalegt málþóf. Þegar við erum að vinna þetta núna er oft beðið um breiða sátt. En þegar sáttin er ekki til nema hjá Sjálfstæðisflokknum þá er allt einhvern veginn málþóf. Þetta er mjög skrýtið.