Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að reyna að halda mig innan ramma þess sem yfirskrift þessa dagskrárliðar felur í sér, störf þingsins. Nú er rétt liðlega ár síðan ég tók sæti hér á þingi og fjölmargir aðrir nýir þingmenn. Og fyrir þá sem eru að hlusta heima og hér í salnum ætla ég að votta að mér finnst gott að vera hér. Ég kann vel við starfsfélaga mína, bæði þá sem sitja í þingsal og þá sem starfa í þinginu. Þetta er að mörgu leyti fyrirmyndarvinnustaður og hæstv. forseti veldur embætti sínu jafnan af mikilli prýði og þeir sem honum starfa með. En ég hef minnst á það hér áður að líkt og hvert annað fyrirtæki í landinu ættum við að vera í stöðugri sjálfsskoðun með hvað við gætum gert til að breyta til hins betra, hvernig við gætum fært störf þingsins nær nútímanum. Nú er þingið auðvitað á margan hátt íhaldssamt og fornt í hefðum, umhverfið sem við störfum í er friðað og ekki má mikið fikta við það ef ekki á að valda uppnámi í húsafriðunarnefndum og í tilteknum kreðsum. En ég teldi engu að síður að hægt væri, rétt eins og það hafa verið settar upp myndavélar og hljóðnemar hér alla vegana og færanleg púlt, að gera í þessum fundarsal það sama og gert er í flestum öðrum fundarsölum: Þú getur skýrt mál þitt með myndrænum hætti hér sem annars staðar. Ég ætla að ítreka beiðni um að það verði gert mögulegt þannig að menn þurfi ekki að koma með myndir upp í púlt og vera jafnvel reknir til baka með skýringarmyndir. Margir lesa myndir betur en orð, þannig er það nú.
Ég vildi líka segja að við vorum í Orkustofnun í gær hjá umhverfisnefnd og sáum þar orkulíkan, orkuspálíkan, hermi. Ég teldi að við gætum orðið betri í mörgu með því að varpa hér út betra fræðsluefni og koma upp hermum eða spálíkönum í fleiri deildum en bara í orkuskiptunum. (Forseti hringir.) Ég ætla að leggja það hér til undir liðnum störf þingsins að við tileinkum okkur (Forseti hringir.) þess konar tækni og gleymum aldrei til hvers við erum hér; fyrst og fremst til að auka á líðan og frið (Forseti hringir.) fólksins í landinu af öllum stigum. Gleðilega aðventu.