153. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er einmitt þetta samspil hagvaxtar, útgjaldaþróunar, vaxta sem við höldum á í þessari umræðu hér í dag og í gær sömuleiðis, eitt risapúsl í þessari heildarmynd. Það er í rauninni alveg ljóst að ef við förum óvarlega með þá ábyrgð sem á okkur hvílir hér varðandi þróun ríkisútgjalda gerum við öðrum þáttum þessarar heildarmyndar erfiðara fyrir, rétt eins og seðlabankastjóri lýsti. En ég tek undir það sem hv. þingmaður sagði, að það er erfitt að glöggva sig á því hvar stjórnvöld telja raunverulega vanta á eða jafnvel vera of mikið hverju sinni. Ég held að partur af þessu hljóti að verða það að við sem Alþingi setjum af stað úttekt á því hvernig til hefur tekist með lög um opinber fjármál nú þegar einhver reynsla er að byrja að fást á það verklag. Það er alveg augljóst að eitthvað hefur ekki tekist eins og til var ætlast þótt aðrir þættir hafi tekist vel. Ég heiti á okkur hér inni að koma á þeirri úttekt, hvort sem hún verður leidd af ríkisstjórn eða fjárlaganefnd eða jafnvel þingflokksformönnum, vegna þess að ég held að það gæti orðið raunverulega til gagns til að sníða af þá agnúa sem ég held að séu á lögunum eins og þau eru núna og mögulega breyta eitthvað vinnulagi til heilla fyrir okkur öll.