fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Fjárlög fyrir árið 2023 eru hér í 2. umr. á Alþingi, fjárlög sem óhætt er að segja að beri merki þess að Ísland og heimsbyggðin öll eru að raða sér saman eftir heimsfaraldur Covid-19 sem hafði, eins og allir hér inni vita, gríðarleg áhrif á íslenskt efnahagslíf og efnahag heimsins alls. Aðeins nokkrum dögum eftir að afléttingu lauk hér á landi og þjóðin andaði léttar, laus úr klóm Covid, skaut upp kollinum ný ógn í austri, ógn sem flestir höfðu talið að væri liðin hjá en hafði þó verið að gera sig æ meira gildandi á undanförnum árum, t.d. með yfirtöku Krímskaga 2014, en fáir trúðu að myndi ganga eins langt og raungerðist 24. febrúar. Efnahagslegar afleiðingar þess fyrir Ísland eru sömuleiðis sjáanlegar í því fjárlagafrumvarpi sem hér er lagt fram en verðbólga hefur rokið upp. Væntingar standa þó til að toppnum hafi verið náð og að verðbólga sé á leið niður. Þess ber þó að geta að ástandið í Evrópu er með þeim hætti að aðeins í Sviss er verðbólga hærri en á Íslandi. Áhrif innfluttrar verðbólgu eru því mikil og ekki útséð með hvenær sú verðbólga hjaðnar að einhverju marki. Það er því ljóst að verkefnið hér er ærið og er það mín skoðun að þau fjárlög sem hér eru lögð fram séu gríðarlega metnaðarfull og sýni vel og greinilega hvar ríkisstjórnin stendur.
Þetta eru að mínu viti, virðulegur forseti, velferðarfjárlög, fjárlög þar sem heilbrigðiskerfið er ekki aðeins varið heldur bætt í, fjárlög þar sem félagskerfið okkar er varið og fjárlög þar sem löggæsla og réttarvörslukerfið fá mestu innspýtingu í áratugi. Fjárlög þar sem hlustað er á raddir þeirra sem standa vaktina og komið til móts við þau sjónarmið sem þar heyrast.
Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023 var lagt fram á Alþingi þann 13. september síðastliðinn. Þar er gert ráð fyrir umtalsverðum bata í afkomu ríkisins á milli ára í samræmi við stefnumörkun stjórnvalda og samþykkta fjármálaáætlun. Frumvarpið gerir þannig ráð fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs á næsta ári séu um 89 milljarðar eða 2,3% af vergri landsframleiðslu. Afkomuhorfur frumvarpsins hafa nú verið endurmetnar með hliðsjón af uppfærslu á tekju- og útgjaldahlið ríkissjóðs, m.a. út frá efnahagsforsendum og uppfærðri þjóðhagsspá frá síðastliðnum október. Hagvaxtarhorfur eru lítið breyttar en verðbólguhorfur hafa versnað frá framlagningu frumvarpsins. Hærri verðbólga leiðir til hækkunar á tekjuáætlun, þar sem nafnfjárhæðir eru skattlagðar, og jafnframt til hækkunar á útgjöldum, m.a. vegna endurmats á launa- og verðlagsforsendum og hækkunar á áætlun um verðbætur verðtryggðra lána sem gjaldfærast á árinu.
Að teknu tilliti til breytinga við 2. umr. frumvarpsins sem hér eru lagðar til er gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs verði í halla, um 118 milljarðar á næsta ári, sem nemur 2,9% af vergri landsframleiðslu. Það eru um 27 milljarðar kr. eða um 0,6% af vergri landsframleiðslu, lakari afkoma en gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Um helming af þessum breytingum má rekja til hærri áætlunar vaxtagjalda vegna gjaldfærslu á verðbótum á rekstrargrunni í samræmi við spá um aukna verðbólgu. Áætlað er að frumjöfnuður ríkissjóðs verði 14 milljörðum lakari en gert var ráð fyrir í forsendum frumvarpsins og þannig verði halli sem nemur 1% af vergri landsframleiðslu á ári. 5 milljarða af lakari frumjöfnuði má rekja til forsendu að um ríkissjóður gefi eftir um 5 milljarða af tekjuskatti einstaklinga á móti samsvarandi hækkun á útsvarstekjum sveitarfélaga til að bæta afkomu þeirra í tengslum við stöðu málaflokks fatlaðs fólks.
Hér er um að ræða gríðarlega mikilvægt mál að mínu viti fyrir sveitarfélögin í landinu sem hafa kallað eftir því að aukið fjármagn komi inn í þennan málaflokk þar sem mikill halli hefur verið á honum undanfarin ár og sveitarfélög víðs vegar um land mörg hver hreinlega að sligast undan þessu. Ég hef sagt það og get alveg sagt það hér aftur að ég hefði viljað sjá fyrir hönd sveitarfélaganna að það kæmi hér inn fjármagn í fjárauka fyrir 2022 og til viðbótar við þessa tölu. En ég fagna því að við séum búin að stíga þetta skref og bind miklar vonir við þá vinnu sem er í gangi núna í ráðuneytinu og Haraldur Líndal Haraldsson stýrir. Vonandi leiðir hún til þess að enn betri sátt og betri framtíðarsýn náist um þennan mikilvæga málaflokk sem sveitarfélögin í landinu bera ábyrgð á núna. Þannig að ég vildi koma því að hér að ég tel að hér sé um gríðarlega gott skref að ræða í rétta átt fyrir sveitarfélögin og fyrir þennan málaflokk, en þó aðeins að um skref sé að ræða.
Frá áætlun frumvarpsins er nú gert ráð fyrir um 24 milljarða kr. hærri tekjum á næsta ári sem má að mestu leyti rekja til spár um hærra verðlag og til endurmats á tekjuáætlun í samræmi við nýjustu upplýsingar um innheimtu. Á hinn bóginn er á útgjaldahlið gert ráð fyrir 51 milljarðs kr. hækkun heildarútgjalda. Sú hækkun skiptist í 14 milljarða hækkun vaxtagjalda, einkum vegna hærri verðbóta, og 37 milljarða kr. hækkun frumgjalda. Aukningu frumgjalds má m.a. rekja til uppfærslu á verðlagsforsendum og ýmsum bundnum útgjaldaskuldbindingum og hins vegar ákvörðun um ný og aukin framlög.
Þrátt fyrir lakari frumjöfnuð heldur hann áfram að batna nokkuð milli ára og í samanburði við horfur yfirstandandi árs, gangi áætlanir frumvarpsins eftir. Þá er skuldastaða í árslok 2023 áþekk og gert var ráð fyrir í frumvarpinu, um 33% af vergri landsframleiðslu, sem rekja má til hærri vergrar landsframleiðslu á næsta ári samkvæmt uppfærðum efnahagsforsendum, m.a. vegna hærra verðlags sem vegur á móti hækkun skulda vegna lakari afkomu. Afkoma ríkissjóðs hefur verið að batna á undanförnum misserum eða frá þeim mikla halla sem var á milli áranna 2020 og 2021 í kjölfar Covid, eins og ég kom inn á í upphafi, og nam þá hallinn á bilinu 7–8% af vergri landsframleiðslu hvort árið. Tekjur hafa hækkað hratt eftir því sem hagkerfið tekur við sér og atvinnuleysi hefur lækkað hraðar en fyrstu áætlanir gáfu til kynna, sem er jákvætt. Nú er svo komið að hagkerfið okkar er við fulla framleiðslugetu og ferðaþjónustan nálgast óðfluga fyrri styrk. Áhrif þess birtast ekki síst í stórbættum frumjöfnuði og greiðsluafkoma ríkissjóðs ásamt kröftugum hagvexti og sölu ríkiseigna hefur leitt til þess að skuldir ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hafa hækkað umtalsvert minna en upphaflegar áætlanir gáfu til kynna. Þessi sterka staða auðveldar verkefnin fram undan við að styrkja enn stöðu ríkisfjármálanna og ná markmiðum um að stöðva hækkun skulda sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Þó er ljóst að fram undan er krefjandi umhverfi á meðan við náum tökum á verðbólgu og tryggð er eftir fremsta megni farsæl niðurstaða kjarasamninga.
Þá er líka veruleg óvissa í alþjóðaumhverfinu um þessar mundir og mikilvægt að halda áfram á þeirri braut að bæta ríkisreksturinn og stuðla að stöðugleika í hagkerfinu.
Umsvif í hagkerfinu eru mikil og útlit er fyrir nokkra þenslu 2022 og 2023 þó að hægt hafi á hagvexti. Horfur á viðvarandi halla á viðskiptum við útlönd endurspegla þá staðreynd að hagkerfið er að eyða um efni fram, eins og komið hefur fram og seðlabankastjóri hefur m.a. verið duglegur að benda á. Meiri óvissa er því um ytra jafnvægi þjóðarbúsins en á undanförnum árum á sama tíma og stormasamt er á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og fjármögnunarskilyrði íslenskra banka hafa versnað. Við þessar aðstæður getur arðsöm ríkisfjármálastefna átt ríkan þátt í að stýra hagkerfinu í jafnvægi.
Hagvaxtarhorfur eru lítið breyttar en verðbólguhorfur hafa versnað frá framlagningu frumvarps til fjárlaga. Spáð er 6% hagvexti í ár en 2% 2023. Kröftug neysla og fjárfestingarvöxtur hefur haldið áfram núna á haustmánuðum og nýleg spá Hagstofunnar gerir ráð fyrir um 3% meiri vexti einkaneyslu og 4% meiri vexti atvinnuvegafjárfestingar á yfirstandandi ári en sú spá sem lá til grundvallar frumvarpi til fjárlaga.
Þensla á vinnumarkaði hefur líklega náð hámarki og er enn með mesta móti. Í spám Hagstofu og Seðlabankans í nóvember er gert ráð fyrir að verðbólga á yfirstandandi ári verði um 8% og að hún lækki aðeins lítillega á næsta ári eða í um 6 prósentustig. Þetta er um 1 prósentustigi meiri verðbólga árið 2023 en gert var ráð fyrir við framlagningu frumvarps til fjárlaga. Hækkun húsnæðisverðs hefur líklega náð hámarki en á móti vegur vaxandi undirliggjandi verðbólga á breiðum grunni auk þess sem gengi krónunnar hefur haldið áfram að gefa eftir í haust.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að fara yfir helstu breytingar sem koma hér á milli umræðna og stikla aðeins á stóru. Ég held að það yrði allt of langt mál fyrir mig að tala um allar þær breytingar sem fram koma í þessu frumvarpi en mig langar að nota þennan tíma hérna til að fara aðeins í nokkur mál sem mér finnst vera þess virði að benda á.
Ég vil byrja á að fagna þeirri tillögu sem hér kemur fram og snýr að hækkun á frítekjumarki úr 109.600 í 200.000 kr. og markmiðið er að auka atvinnuþátttöku örorku- og ellilífeyrisþega. Þessi breyting eykur til muna möguleika þeirra á atvinnuþátttöku. Ég held að þetta sé mjög gott skref sem kallað hefur verið eftir og ég fagna því að það sé hér fram komið.
Sömuleiðis langar mig að tala um heilbrigðismálin, það er ekki hægt að tala um þessa fjármálaáætlun án þess að ræða heilbrigðismálin. Það er alveg sama hvað er sagt, sú aukning sem hér er lögð til heilbrigðismála er alveg gríðarlega mikil. Við erum að tala um að aukning til heilbrigðismála í heild eru einhverjir 53 milljarðar að raungildi frá 2020 og til sjúkrahúsþjónustu um 4,5 milljarðar frá núgildandi fjárlögum. Þetta er, virðulegur forseti, gríðarleg innspýting. Er þetta nóg? Sennilega ekki. Ég held að heilbrigðiskerfið sé sérstakt kerfi að því leyti til að ég held að það sé alltaf hægt að bæta við og alltaf hægt að gera betur. En ég er algerlega sannfærður um að sú innspýting sem hér er sett inn í heilbrigðiskerfið skiptir máli, hún skiptir gríðarlegu máli. Þessir 12,2 milljarðar sem koma nú inn á milli umræðna „matsa“ vel, með leyfi forseta, ef ég má sletta hér, við þær gestakomur og þær umsagnir sem fjárlaganefnd hafa borist hér og þau samtöl sem við höfum átt við stofnanirnar varðandi þá fjárþörf sem þau hafa kallað eftir. Auðvitað er alveg ljóst að við hefðum getað gert betur. Menn hafa rætt hér um Sjúkrahúsið á Akureyri sem fær 250 millj. kr. innspýtingu en óskaði eftir 500. Það er hins vegar alveg ljóst að það fjármagn sem þar vantar upp á hefur ekki áhrif á rekstur sjúkrahússins, þannig að heilt yfir er algjörlega ljóst að hér er verið að stíga risaskref, stórt skref í átt að því að styrkja þetta virkilega góða heilbrigðiskerfi sem við erum með á Íslandi, sem er sennilega eitt af þeim betri í heiminum.
Mig langar líka að ræða hér verkefni sem meiri hluti fjárlaganefndar setur hér inn í sitt álit og hefur verið verkefni sem ég hef sýnt mikinn áhuga í gegnum tíðina, bæði sem sveitarstjórnarfulltrúi, þegar ég var með þann hatt á höfðinu, og ekki síður núna eftir að ég kom hér á Alþingi, sem eru störf án staðsetningar. Störf án staðsetningar er alveg gríðarlega metnaðarfullt verkefni sem ríkið setti á fót á sínum tíma með það að markmiði, og menn mega ekki gleyma því, að efla og fjölga opinberum störfum úti á landi. Það er markmið verkefnisins. Það sem hefur hins vegar gerst er að í allt of miklum mæli höfum við séð, eins og kom vel fram í ræðu hv. þm. Haraldar Benediktssonar í gær, að verið er að flytja, með lúðraþyt og skrúðgöngum, opinber störf, eitt eða fleiri, út á land, en svo sjáum við þau nokkrum árum seinna flutt án nokkurrar eftirtektar, nema okkar sem fylgjumst sérstaklega með því, aftur inn á höfuðborgarsvæðið. Þannig er þetta nú, virðulegur forseti. Það er staðreynd málsins að við þurfum að skerpa verulega á þessu. Því fagna ég því að þetta sé ámálgað í þessu áliti, þetta sérstakra verkefni, störf án staðsetningar. Ég hef hreinlega velt því fyrir mér, og ég segi það bara hér, hvort við eigum í meira mæli að fara að tala um störf með staðsetningu. Ég held að í mjög mörgum tilfellum geti það verið miklu vænlegra til árangurs fyrir hinar dreifðu byggðir, fyrir landsbyggðirnar, að við séum að festa störf og stofnanir í meira mæli á þessum dreifðu stöðum úti á landi, að festa störfin við svæðið, festa stofnanirnar við svæðið, þannig að það sé ekki hætta á því að þetta leki allt frá okkur.
Síðan er hér kafli sem ég get náttúrlega ekki annað en tekið undir og fagnað verulega. Það er það fjármagn sem er að koma inn í löggæsluna. Þetta er sennilega mesta innspýting sem lögreglan hefur fengið áratugum saman og því hefur verið haldið fram hér að lögreglan hafi verið fjársvelt undanfarin ár og þess vegna sé í raun og veru ekki um innspýtingu að ræða heldur leiðréttingu. Ég get alveg tekið undir það sjónarmið að einhverju leyti, að lögreglan hafi verið fjársvelt undanfarin ár, hún hefur í einhverjum tilfellum verið það. Þessu ber hins vegar að fagna og ég hef heyrt í lögreglumönnum um allt land, mjög víða, núna á undanförnum dögum og borið þessar hugmyndir undir þá sem hér eru fram komnar og gleði og fögnuður eru orðin sem ég get notað til þess að lýsa því sem hefur komið fram í þeirra málflutningi í samtölum okkar. Við erum að setja hér 900 milljónir til almennrar löggæslu, 500 milljónir til að sporna frekar við skipulagðri glæpastarfsemi, fjölga þessum hópum sem hér eru, hann er einn í dag, ef ég kann þetta rétt, og verið er að fjölga þar í fjóra eða fimm. Ég hef trú á því að þetta skipti sköpum fyrir lögregluna til lengri tíma litið. Við þurfum að fjölga lögreglumönnum. Við þurfum að fjölga menntuðum lögreglumönnum. Við fórum í það hér og það var gert í fjárlögum í fyrra að efla bæði menntasetur lögreglunnar og háskólann, sett fjármagn inn í Háskólann á Akureyri þar sem lögreglunámið er staðsett, undir því yfirskini að reyna að fjölga hér lögreglumönnum. Það verkefni hefur gengið ágætlega eftir því sem ég best veit og menn eru loksins að sníða af agnúana sem voru svo sannarlega á þessu kerfi þegar námið var flutt frá gamla lögregluskólanum yfir til HA. Ég hef trú á því að við förum að sjá miklar breytingar á næstu árum hvað varðar fjölgun lögreglunema, sem er jákvætt. Ég fagna þess vegna svo sannarlega bæði þessum 500 milljónum og þessum 900 milljónum sem hér eru til komnar. Eins er ánægjulegt að meiri hlutinn í fjárlaganefnd hafi verið sammála því að lækka aðhaldskröfuna á lögregluna um 200 millj. kr., niður í um 200 milljónir. Það er ekki aðhaldskrafa á heilbrigðisstofnununum og ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að mönnun og laun og launatengd gjöld eru hátt hlutfall af rekstri slíkra stofnana, lögreglan fellur þar klárlega undir, þannig að aðhaldskrafa á þessar stofnanir gerir ekki neitt annað — og þeir sem stýra þessum stofnunum eiga engan annan kost en hreinlega að segja upp starfsfólki. Lengi vel gat lögreglan gripið til tveggja kosta í niðurskurðarkröfum sínum, annars vegar að segja upp fólki eða að hætta að aka lögreglubílunum. En nú hafa þær forsendur breyst þannig að það eina sem menn eiga eftir er hreinlega að segja upp fólki. Þannig að ég fagna því enn og aftur að aðhaldskrafan sé komin niður og ég held að það færi afskaplega vel á því í næstu fjárlögum að hún færi algerlega út. Það eitt og sér myndi breyta miklu fyrir lögregluna í landinu varðandi framtíðarsýn og rekstur þar.
Fangelsismálin fá sínar 250 milljónir, eins og kallað var eftir, og er afskaplega mikilvægt að geta orðið við þeirri kröfu. Ég fagna því.
Það er sömuleiðis ánægjulegt að hér í kaflanum um afhendingaröryggi séum við að taka undir þau sjónarmið sem fram komu í skýrslu um orkumál á Vestfjörðum og við setjum 150 milljónir í jarðhitaleitarátak á Vestfjörðum. Það er gríðarlega mikilvægt og ég vona svo sannarlega að þetta átak muni leiða til þess að við finnum þarna heitt vatn sem væri hægt að nýta á þessu svæði. Það myndi hjálpa okkur til framtíðar í þeim miklu orkuvandræðum sem Vestfirðir eru í, þannig að ég fagna því.
Sömuleiðis er ánægjulegt að sjá að það hefur orðið breyting, sóknaráætlanirnar fá 120 millj. kr. framlag. Sem fyrrverandi sveitarstjórnarmaður og þar sem ég hef sömuleiðis starfað í þessum landshlutasamtökum, ég starfaði lengi í Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, geri ég mér grein fyrir því hvað þessar sóknaráætlanir skipta sveitarfélögin og landsvæðin í raun og veru miklu máli, þær gera það, alveg gríðarlega miklu máli. Því er afar gleðilegt að sjá að þessar 120 milljónir séu komnar hér aftur inn. Sömuleiðis ber svo sannarlega að fagna því að atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni fái 40 millj. kr. framlag sem Byggðastofnun er falið að ráðstafa. Atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni skipta gríðarlega miklu máli. Þetta er lykilfólk á mjög mörgum svæðum og búa yfir þekkingu sem ekki er kannski annars staðar að finna á þessum svæðum, þannig að það er gott.
Mig langar sömuleiðis að ræða hér um Landhelgisgæsluna. Þar erum við að setja inn 600 milljónir sem nýtist Gæslunni vel. Við höfum nú rætt það hér áður og ræddum í fjárlögum í fyrra þann skrýtna sið sem felst í því að sigla varðskipunum til Færeyja til að fá olíu. Vonandi heyrir það sögunni til með þessu.
Eins og ég sagði áðan þá ætla ég ekki að telja hérna allt upp en mig langaði að fara yfir þessi nokkur atriði í þessari ræðu minni. Í restina ætla ég líka að fagna því og langar að benda á það að í kaflanum um samgöngur er lagt til að 210 millj. kr. verði veittar til að tryggja ferjurekstur um Breiðafjörð. Þar er verið að tala um þetta nýja skip sem heitir Røst, sem ég vona svo sannarlega að samningar náist um og við getum séð fljótlega að verði farið að sigla um Breiðafjörðinn, vegna þess að það ástand sem þar er uppi núna er ekki boðlegt fyrir íbúa og þá þjónustuþega sem nýta sér þann samgöngumáta sem þar er í boði.
Eins og ég segi gæti ég talað töluvert mikið lengur og farið yfir þær fjölmörgu tillögur sem hér liggja fyrir en flestar þeirra hafa verið tíundaðar af bæði mér og öðrum ræðumönnum. Ég held að þetta sé verulega metnaðarfullt og taki á flestu sem hefur komið fram í athugasemdum gesta og í umsögnum til fjárlaganefndar. En þó geri ég mér alveg grein fyrir því, og ég held að fjárlaganefnd geri sér grein fyrir því, að hvorki þessi fjárlög né nokkur önnur fjárlög verða fullkomin. Þau fjárlög eru sennilega ekki til, þau fjárlög sem allir eru sáttir um verða aldrei samin, held ég. En ég er sannfærður um það og mín sýn er sú að við séum að stíga hér mörg mjög góð og þörf skref sem nýtast okkar samfélögum alls staðar á landinu.