fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir góða og umfangsmikla ræðu sem snerti á mörgum sviðum samfélagsins. Hann talaði mikið um orkumál og talaði líka mikið um lögregluna og löggæslumál. Ég ætla að byrja á því að spyrja hv. þingmann út í lögregluna, ég kem að hinu seinna. Hann talaði um að það væri mikilvægt að efla lögregluna með þessum 500 milljónum sem fara í það að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi, glæpastarfsemi. En ég vil líka benda á það að þessar 500 millj. kr., sem fara í það að efla löggæslustörfin, dekka ekki félagslega stuðninginn sem þarf að grípa til til að forðast það að fólk leiðist út í glæpi til að byrja með. Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann hafi einhverja aðra sýn á hvernig hægt sé að takast á við skipulagða brotastarfsemi eða glæpastarfsemi en með því að dæla fjármagni í lögregluna?