fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Þetta eru athyglisverð svör. Seðlabankastjóri Íslands, æðsti maður peningamálastjórnunar á Íslandi, er innilega ósammála hv. þingmanni því að hann segir um þær breytingar sem verið er að gera hérna á milli umræðna að þetta muni mögulega hægja á því að við náum verðbólgu niður. Þetta er haft eftir honum á mbl.is í morgun og hann sagði eitthvað í sömu átt í viðtali í Ríkisútvarpinu núna í kvöld, í fréttatíma RÚV. Það er algerlega hafið yfir allan vafa, þótt það sé ákveðin tekjufroða, fyrst og fremst vegna verðbólgu, að það sem er að gerast núna á milli umræðna er að það er verið að auka mjög rækilega misræmið milli tekna og gjalda í þessu frumvarpi. Þetta er ekki ábyrg hagstjórn. Það er ekki hægt að halda því fram með góðu móti og ég er alveg viss um að hv. þingmaður veit það í hjarta sínu. Einu sinni var til Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi sem fór í kosningar með slagorðunum að traust efnahagsstjórn væri stærsta velferðarmálið. Veit hv. þingmaður hvað varð um þann flokk?