Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

varamenn taka þingsæti.

[10:30]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá Bjarna Jónssyni, 4. þm. Norðvest., og Hönnu Katrínu Friðriksson, 8. þm. Reykv. s., um að þau verði fjarverandi í opinberum erindum og geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi fyrir þau 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir, og 1. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Daði Már Kristófersson.

Lilja Rafney og Daði Már Kristófersson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.