153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

útgjaldaaukning ríkissjóðs.

[10:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Eins og kunnugt er setur ríkisstjórnin nú nýtt met í útgjöldum ríkissjóðs og útgjaldaaukningu ríkissjóðs milli ára. Fjárlaganefnd bætir enn í, að því er virðist fyrst og fremst samkvæmt tilmælum hæstv. fjármálaráðherra, en nefndin ætlar reyndar að bæta við milljarði króna í borgarlínuna eða félag sem kallað er Betri samgöngur af einhverjum kaldhæðnum ástæðum, félag sem snýst um það að þrengja að samgöngum í borginni. Þetta mun vera gert vegna þess að það hefur tafist að leggja ný gjöld á skattgreiðendur í borginni fyrir að fara leiðar sinnar og þess vegna ætli ríkið að borga þarna aukalega.

En hvað sem því líður, það eru ýmsar ástæður fyrir þessari útgjaldaaukningu, þá er útgjaldaaukningin mjög veruleg og slær öll fyrri met. Formaður fjárlaganefndar lýsti því hér, í umræðu um fjárlögin, undir 2. umr., að stjórnvöld væru með þessari fjárlagavinnu að vinna að peningastefnu stjórnvalda. Seðlabankastjóri virðist ekki hafa fengið minnisblað um það að ríkisstjórnin væri að vinna að peningastefnunni því að hann lýsir yfir miklum áhyggjum af þessari miklu útgjaldaaukningu og áhrifum þessarar aukningar á verðbólgu og möguleika Seðlabankans á að takast á við hana. Hann telur að þetta muni tefja fyrir, gera Seðlabankanum erfiðara fyrir að ná tökum á verðbólgu og má lesa á milli línanna, eða raunar lesa beint, að það þýði hærri vexti.

Ég spyr því hæstv. fjármálaráðherra: Hvor hefur rétt fyrir sér, hv. formaður fjárlaganefndar sem segir að þessi fjárlög og þessi útgjaldaaukning sé allt liður í peningastefnu stjórnvalda, eða seðlabankastjóri sem er á öndverðum meiði?