153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

útgjaldaukning ríkissjóðs.

[10:37]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra segir eina ferðina enn að nú standi til að fara að spá í það að ná aðhaldi í ríkisrekstri. Er ekki löngu tímabært að ná því aðhaldi, sérstaklega á þeim verðbólgutímum sem nú eru uppi? Auðvitað fer mikið af ríkisútgjöldum í mjög mikilvæg og góð verkefni. Það gerir enginn ágreining um það en þannig hefur það alltaf verið. En er fólk að fá miklu meira fyrir, t.d. í heilbrigðiskerfinu? Er fólk að fá miklu betri þjónustu en fyrir nokkrum árum þegar ríkisútgjöld voru miklu lægri en þau eru núna? En svo er líka verið að eyða peningum í alls konar vitleysu, þar með talið þetta kostulega nýjasta dæmi um að ríkið fari að borga milljarð í að halda gangandi einhverju batteríi um að þrengja að samgöngum á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að ríkið hafi vanrækt að leggja ný gjöld á almenning.

Herra forseti. (Forseti hringir.) Hver er stefnan hjá þessari ríkisstjórn? Er það fyrst og fremst að greiða sektir fyrir það að vera ekki (Forseti hringir.) búnir að skattleggja almenning enn þá meira? Og hvernig kemur þetta heim og saman við peningastefnuna sem var spurningin hér í upphafi?