útgjaldaukning ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég held að það þurfi að skoða tilefni útgjaldaaukningarinnar í smáatriðum til að leggja mat á þessa þætti sem hv. þingmaður er að nefna. Ég ætla bara að taka eitt dæmi hér. Þegar við aukum hallann um 5 milljarða hjá ríkissjóði vegna þess að við færum tekjur yfir til sveitarfélaganna þá eru umsvif hins opinbera ekki að vaxa. Við bætum beinlínis afkomu sveitarfélaganna um 5 milljarða með því að slá af tekjuskattinum okkar. Þetta verður að hafa í huga þegar menn eru að velta fyrir sér áhrifunum út í hagkerfið. Sömuleiðis verð ég að segja varðandi það hvernig hv. þingmaður talar um almenningssamgöngurnar að mér fannst hann tala um almenningssamgöngur eins og þær séu einskis virði og það skipti engu máli að þær séu skilvirkar og virki hér fyrir höfuðborgarbúa. Ég er ekki sammála því. Ég er þeirrar skoðunar að það sé vel hægt að réttlæta talsverða fjárfestingu eins og við höfum ákveðið í höfuðborgarsáttmálanum til þess, samhliða vegaframkvæmdum fyrir bíla, að hér verði byggt upp nútímalegt og skilvirkt almenningssamgöngukerfi, alvörukerfi.