153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

aðgerðir vegna ÍL-sjóðs.

[10:39]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ekkert í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra til Alþingis um stöðu ÍL-sjóðs bendir nægilega til þess að löggjafinn hafi heimild til að setja lög um slit- og gjaldþrotameðferð ÍL-sjóðs eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur boðað, án þess að slík löggjöf leiddi til bótaskyldu íslenska ríkisins gagnvart skuldabréfaeigendum. Er þetta mat Róberts Spanós, fyrrverandi forseta Mannréttindadómstóls Evrópu, sem ritaði lögfræðiálit um þetta. Kröfur samkvæmt þremur skuldabréfaflokkum útgefnum af Íbúðalánasjóði árið 2004 teljast að fullu eign í merkingu 72. gr. stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu, þar með talið höfuðstóll þeirra, verðbætur, áfallnir vextir, fastir samningsbundnir vextir fram að gjalddögum á árunum 2024, 2034 og 2044. Löggjöf sem myndi heimila gjaldþrotaskipti ÍL-sjóðs eða önnur sambærileg slit eða fjárhagslegt uppgjör á sjóðnum felur í sér eignarnám á þeim hluta krafna skuldabréfaeigenda sem ekki fengju fullar efndir á grundvelli skilmála skuldabréfanna. Slík löggjöf þyrfti því að fullnægja kröfum eignarréttarákvæða stjórnarskrár og mannréttindasáttmálans um að eignarrétturinn sé friðhelgur, að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji með lagafyrirmælum og að fullt verð komi fyrir. Með öðrum orðum, ríkið verður bara að standa skil á ábyrgðinni með öllu því sem fylgir og getur ekki með lagasetningu breytt því enda ekkert slíkt ástand sem heimilar setningu einhvers konar neyðarlaga. Tekur Róbert Spanó undir áður fram komið álit Logos lögmannsstofu sem hæstv. fjármálaráðherra gerði nú lítið úr og sagði hvern sem er getað pantað slíkt álit.

Vegna þessa spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Hvað leggur hann til að gert verði? Er hann enn á því að hans hugmyndir gangi upp um að heimila gjaldþrotaskipti eða önnur sambærileg slit á ÍL-sjóði?