153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

aðgerðir vegna ÍL-sjóðs.

[10:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það hefur ekki verið lagt fram neitt frumvarp hér á þinginu af mér um slit sjóðsins og þetta lögfræðiálit sem hv. þingmaður vísar til er fullt af fyrirvörum um það hvers efnis slíkt mögulegt frumvarp yrði þegar til þess kæmi. Hér er verið að rekja ýmis lögfræðileg álitamál sem ég reyndar tel að sé enginn ágreiningur um, eins og t.d. um það hvað er eign í skilningi stjórnarskrár, hvenær eignarnám telst fara fram o.s.frv. En ég ætla bara að segja það að á þessari stundu málsins þá hef ég búið þannig um hnútana að við höfum skipað milligöngumann fyrir hönd ríkisins til að eiga í samskiptum við eigendur þessara bréfa í þeim tilgangi að reyna að laða fram sameiginlega lausn sem myndi fela það í sér að þeir sem eiga kröfur á ÍL-sjóð myndu taka í raun og veru yfir eignasafnið og við fengjum þannig í reynd uppgjör á þessum skuldbindingum. Það eina sem vakir fyrir mér sem fjármálaráðherra er að uppfylla lagaskyldu mína um að takmarka tjón ríkissjóðs vegna þeirrar ábyrgðar sem ríkið er í fyrir skuldbindingum ÍL-sjóðs.

Ég verð að segja það alveg eins og er að ég furða mig á framgöngu margra þingmanna sem eru í einhvers konar kapphlaupi hér við fjármálaráðherrann, sem er þó ekki að reyna að gera annað en að uppfylla lagaskyldur sínar, við að koma fram þeim sjónarmiðum í þinginu að þetta sé allt saman ólögmætt og ríkissjóður verði að taka á sig sem allra mest tjón vegna þess hvernig Íbúðalánasjóður var smíðaður á sínum tíma. Fyrir hvern er þetta fólk að vinna sem talar svona? (Forseti hringir.) Er ekki bara langbest að huga að atriðum sem geta varið stöðu ríkissjóðs lögum samkvæmt? (Forseti hringir.) Það er það sem fjármálaráðherrann er að reyna að gera.