153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

aðgerðir vegna ÍL-sjóðs.

[10:44]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Við skulum ekki beita þjóðina blekkingum. Það hefur ekki verið lagt fram frumvarp en með þessu lögfræðiáliti er verið að taka af allan vafa um ábyrgð íslenska ríkisins vegna þess hvernig stjórnarskráin er samansett, vegna þess hvernig mannréttindasáttmálinn er samansettur. Hæstv. ráðherra getur ekki komið hingað og skýlt sér á bak við milligöngumann sem hann hefur sett í verkið við að reyna að koma á einhverjum samningum. Það er ekki í boði, hæstv. ráðherra. Það er hans að taka ábyrgð á gjörðum sínum einu sinni. Við hljótum að gera þá kröfu að það sé hann sem sé hér í forsvari fyrir þetta. Það fer ekkert á milli mála að ábyrgðin er hjá ríkissjóði.

Við erum hér að vinna fyrir fólkið í landinu og að meginþorra eru það lífeyrissjóðir fólksins í landinu sem munu tapa hundruðum milljarða ef ráðherra fer illa að ráði sínu eins og svo sem oft áður. (Forseti hringir.) Það er því mjög eðlilegt að spyrja hæstv. ráðherra: Hvert er planið? (Forseti hringir.) Er hann enn á því að hugmyndir hans, sem hann lagði fram í skýrslu fyrir þingið, um að fara í gjaldþrotaskipti með þetta allt saman — hann er kannski vanur því að leyfa félögunum að rúlla. Er þetta óeðlileg spurning? Er óeðlilegt að krefja (Forseti hringir.) hæstv. fjármálaráðherra svara við því hvort honum finnist það kannski bara enn þá góð hugmynd þrátt fyrir þetta lögfræðiálit?

(Forseti (BÁ): Forseti minnir bæði þingmenn og ráðherra á að ræðutími er takmarkaður í óundirbúnum fyrirspurnum.)