153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

aðgerðir vegna ÍL-sjóðs.

[10:46]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er enginn að reyna að skýla sér á bak við milligöngumann, þvert á móti. Við lögðum fram skýrslu til að hefja umræðu um stöðu ÍL-sjóðs og ég sagði að það væru þrír valkostir í stöðunni. Einn er sá að gera ekki neitt, sem er málflutningur hv. þingmanns vegna þess að hv. þingmaður segir bara fullum fetum: Ríkissjóður ber ábyrgð á þessu öllu. En þetta er bara ekki svona einfalt. Ríkissjóður er í einfaldri ábyrgð fyrir skuldbindingum ÍL-sjóðs og ÍL-sjóður á ekki fyrir skuldum. Það er hins vegar ekki alveg augljóst hvernig á að bregðast við þeirri stöðu og í því lögfræðiáliti sem hv. þingmaður er hér að túlka fyrir þingheim þá er velt upp sjónarmiðum um það að það þurfi að vera mjög sterk rök til að grípa inn í og setja sjóðinn í slit ef menn ætla að gera það með eignarnámi án þess að bætur komi fyrir. Þetta þýðir hins vegar ekki að ríkissjóður sé í fullri ábyrgð fyrir öllum skuldbindingum ÍL-sjóðs út líftíma allra krafna. Þetta bara þýðir það ekki. (Forseti hringir.) Það er svo einfalt. Þannig að við skulum bara sjá. Ég fagna allri opinberri umræðu um þessi mál. (Forseti hringir.) Megi lögfræðiálitin verða sem flest og megi umræðan verða sem dýpst og við í framhaldinu taka ákvörðun með hagsmuni ríkissjóðs að leiðarljósi. (Gripið fram í: … samningaviðræður við lífeyrissjóðina.)