ástandið á leigumarkaði vegna verðbólguhækkana.
Virðulegi forseti. Frá því að ég kom inn á þing í fyrra hef ég varað við þeim erfiðleikum sem þá þegar var fyrirsjáanlegt að heimilin myndu standa frammi fyrir vegna aukinnar verðbólgu. Viðbrögð hafa verið lítil og fram á þetta haust var allt að því hlegið að þessum áhyggjum mínum og lítið gert úr þeim. Hjá þeim sem þurfa að standa undir afborgunum lána hafa glórulausar vaxtahækkanir hækkað afborganir um hátt á annað hundrað þúsund í hverjum mánuði. Erfitt hefur reynst að sannfæra ríkisstjórnina um vanda leigjenda vegna hækkana á leigumarkaði þrátt fyrir að ég hafi ítrekað bent á staðfest dæmi um verulegar hækkanir á leigusamningum. Nú kemur sannleikurinn loks upp á yfirborðið og það má þakka hugrökku fólki sem í örvæntingu sinni stígur fram og segir frá hremmingum sínum. Þannig barst formanni VR póstur frá 65 ára konu sem fékk tilkynningu um hækkun á leigu upp á 75.000 kr. á mánuði. Leiga hennar á að hækka úr 250.000 í 325.000 kr. eða um 30%. Bréfið barst 30. nóvember. Hún þarf að láta vita sem fyrst, eða í síðasta lagi 1. janúar, hvort hún þiggi þessa afarkosti. Um þetta hefur verið fjallað í fjölmiðlum en málið er því miður ekki einsdæmi. Leigufélagið Alma, sem hagnaðist um 12 milljarða á síðasta ári, vill meira og er greinilega að senda svona jólaglaðning á fleiri viðskiptavini sína. Erlend kona setti færslu á Facebook þar sem hún sagði frá 60.000 kr. hækkun leigu á 67 fermetra íbúð sem frá og með febrúar verður 310.000 kr. Ég ítreka að leigufélagið Alma hagnaðist um 12,4 milljarða á síðasta ári.
Ég vil spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvað honum finnist um ástandið á leigumarkaði og hvort ekki sé kominn tími á neyðarlög til að verja heimilin gegn þessum gegndarlausu og forhertu hækkunum sem dunið hafa á bæði leigjendum og lántakendum.