153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

ástandið á leigumarkaði vegna verðbólguhækkunar.

[10:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það sem ríkisstjórnin hefur verið að gera á undanförnum árum er að setja aukna fjármuni í framkvæmdir til að hér geti risið fleiri félagslegar íbúðir (Gripið fram í.) sem eru hugsaðar fyrir þá sem eru á leigumarkaðinum. Við höfum verið að hækka húsnæðisbætur og koma upp húsnæðisbótakerfi. Sá leigjandi sem hv. þingmaður tekur hér dæmi um mun t.d. fá hærri húsaleigubætur við hækkandi leigu. Ég ætla hins vegar að lýsa þeirri skoðun minni út af þessu tiltekna dæmi sem er í opinberri umræðu núna (ÁLÞ: Þau eru mörg.) að ég tel að það sé óforsvaranlegt að ganga jafn langt gagnvart fólki eins og gert hefur verið í þessu tiltekna dæmi.

Viðbrögð okkar við þessari stöðu hljóta ávallt að vera þau að huga að þeim sem eru í veikastri stöðu. Það hefur ríkisstjórnin gert með margvíslegum úrræðum. Við höfum verið að hækka bætur almannatrygginga. Við erum að boða hækkun á húsnæðisbótagreiðslunum. Við erum sömuleiðis á undanförnum árum búin að beita okkur fyrir skattalækkunum sem sérstaklega gagnast þeim sem eru með minnst á milli handanna. Ef við ætlum að þrengja umræðuna niður á húsnæðismarkaðinn þá er augljóst af þeim tillögum sem hafa verið til umræðu út úr húsnæðishópnum, sem innviðaráðherra kom á fót eftir samtal í þjóðhagsráði, að við erum með margvíslegar aðgerðir í undirbúningi sem eru til þess líklegar að slá á spennuna á þeim markaði og það mun líka gagnast leigjendum. Til skamms tíma verðum við líka að spyrja okkur spurninga sem snúa að verðbólgunni í landinu og hvernig við getum náð tökum á henni. Húsnæðismálin eru þar stór þáttur vegna þess að það mun tryggja lægra vaxtastig samhliða.