153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

ástandið á leigumarkaði vegna verðbólguhækkunar.

[10:52]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Við skulum ekki láta eins og þetta sé einangrað dæmi og ég minni aftur á að leigufélagið Alma hagnaðist um 12,4 milljarða á síðasta ári. Þetta félag fékk íbúðir sem fólk missti í hruninu á gjafaverði og hefur hagnast gríðarlega síðan og það stefnir í að hagnaður bankanna fari yfir 100 milljarða á þessu ári.

Ég hef nokkrar spurningar fyrir fjármála- og efnahagsráðherra. Ef fólk á leigumarkaði missir heimili sitt, hvert á það fara? Eftir hverju er ráðherra að bíða áður en gripið er til aðgerða til að verja heimilin? Er ráðherra tilbúinn til að verja heimilin með því að tryggja með lögum að enginn, hvorki leigjendur né lánþegar, missi heimili sín í því ástandi sem nú er? Er ekki kominn tími til að koma einhvers konar böndum á leigumarkaðinn eins og hefur t.d. verið gert í Skotlandi, á Spáni og í Danmörku? Eða eru völd banka og leigufélaga yfir heimilum landsins í nafni græðgi algjör? Eru þessir aðilar óstöðvandi, ná engin lög yfir þessa hegðun? Ég krefst þess að sett verði neyðarlög til að verja heimilin fyrir þessum gegndarlausu hækkunum. Að það sé ekki þegar búið er ríkisstjórninni til háborinnar skammar.