ástandið á leigumarkaði vegna verðbólguhækkunar.
Virðulegi forseti. Auðvitað er það ekki þannig að það sé hægt að þola hvers konar framkomu sem er á leigumarkaði; það er alveg fráleitt að ríkisstjórnin standi fyrir eitthvað slíkt. Við höfum þvert á móti verið í samtali við aðila vinnumarkaðarins. Við höfum verið með aðgerðir sem hafa skipt miklu máli. Við erum í fjárlögum næsta árs að tryggja að við getum haldið áfram að hækka húsnæðisbætur sem eru hugsaðar fyrir þá sem eru á leigumarkaði og eru í lægri tekjuendanum. Þetta eru alvöruaðgerðir sem skipta raunverulegu máli fyrir fólk. Nýtt jafnvægi á húsnæðismarkaði þarf að fást með því að framboðshliðin vaxi. Við erum sömuleiðis með aðgerðir í gangi sem eru líklegar til að tryggja það. Reyndar virðist vera meira framkvæmt en við spáðum og mögulega hefur þörfin fyrir nýtt húsnæði inn á næstu ár eitthvað verið ofmetin. En við þurfum á sama tíma að gæta að því að grípa ekki til aðgerða sem verða beinlínis til þess að draga úr framboði á leigumarkaði.