153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

breytingar á lögum um úrvinnslugjald.

[10:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Umhverfismál eru stundum óáþreifanleg og torskilin en sá hluti þeirra sem fólk á kannski auðveldast með að skilja og upplifa árangurinn af er úrvinnsla úrgangs, flokkun. Það er ekki mesta glamúrið endilega í þessum málaflokki, ruslinu okkar, en þarna getur almenningur fundið að aðgerðir hans skipti máli. Þess vegna eru fréttir sem hafa dunið á okkur með reglulegu millibili um að flokkaður úrgangur rati ekki þær leiðir sem fólk reiknaði með að hann gerði mjög neikvæðar, vegna þess að þær grafa undan tiltrú fólks á þessu kerfi og þarna er traustið í rauninni allt. Við þurfum að treysta því að það sem við setjum út í tunnu endi á réttum stað. Þess vegna er mjög gott skref sem verður stigið nú um áramótin þegar breytingar á lögum um úrvinnslugjald taka gildi þar sem verða innleiddar bæði nýjar áherslur Úrvinnslusjóðs og aukið umfang framlengdrar framleiðendaábyrgðar og kannski það sem mest er um vert, það verður aukin flokkun t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu. Fólk fær fleiri tunnur og getur allt í einu flokkað allan fjárann og upplifir að það sé að gera hlutina eins og það vill gera.

Sveitarfélögin hafa haft dálitlar áhyggjur af innleiðingunni en svo fengum við boð um það nú í vikunni að innleiðingin væri eitthvað að hiksta upp í ráðuneyti líka, litlum þremur vikum fyrir áramót, og að von sé á útbýtingu frumvarps í dag eða á morgun varðandi það sem þarf eða grunnforsendur fyrir þessari innleiðingu, alls konar tollskrárnúmer sem þarf að uppfæra og bara nokkuð viðamikið mál.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna afgreiðsla þess máls hefur dregist svo mjög sem raun ber vitni, eitt og hálft ár liðið frá samþykkt laganna. (Forseti hringir.) Hvers vegna er málið að koma til þinglegrar meðferðar núna um miðjan desember þegar var mikilvægt að það kláraðist (Forseti hringir.) fyrir áramót til að innleiða hringrásarhagkerfið?