153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

breytingar á lögum um úrvinnslugjald.

[10:57]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég er sammála mjög mörgu sem kemur fram hjá hv. þingmanni, þó kannski ekki endilega því að þetta sé ekki spennandi. Ég held að það sé mjög spennandi tækifæri þegar kemur að hringrásarhagkerfinu og þar getum við gert miklu betur. Við höfum lagt mikla áherslu á að styrkja það og efla, t.d. með hópi um hringrásarhagkerfið sem er núna að störfum og ég tel að muni skipta miklu máli. Sömuleiðis, af því að hv. þingmaður nefndi að það skipti máli, það væri grunnurinn í þessu, að sorpið sem er verðmæti rati á réttan stað — en líka út af því að fólk hafi trú á því sem væri verið að gera — vil ég geta þess að það er nýkomin út skýrsla frá hópi sem sérstaklega var að skoða Úrvinnslusjóð sem er hjartað í þessu. Hann er 20 ára gamall og hefði fyrir löngu átt að vera búið að skoða þau mál.

Hv. þingmaður nefnir á endanum þau lög sem taka gildi núna og spyr af hverju þetta mál, sem hann vísar til, komi svo seint. Ég get svo sem alveg tekið undir að það hefði mátt koma fram fyrr. En staðreynd málsins er að þessi mál, af því að hv. þingmaður nefndi tollskrár og við munum sjá hér mál upp á mjög margar síður sem eru í raun til einföldunar, taka stundum lengri tíma en menn vildu ætla. Á móti kemur að þá skiptir líka máli að vanda til verka og margir þurfa að koma að. Það er einfaldasta skýringin á þessu. Vanalega hefur mál sem þetta komið í bandormi. Þetta er auðvitað mjög tæknilegt en í eðli sínu mjög einfalt. Við erum með tollskrána til grundvallar þegar kemur að úrvinnslugjaldinu og er það gert til að skila því sem best til okkar. Tollskráin er eins og hún er og við erum ekki að breyta henni hér en við þurfum að byggja á henni þegar við erum að gera breytingar.