breytingar á lögum um úrvinnslugjald.
Virðulegur forseti. Til að skýra þetta sem hv. þingmaður talar um þá eru öll prinsippin í þessu máli afgreidd þannig að í rauninni snýst þetta um tollskráningu, eins og hv. þingmaður vísar til en gerir kannski lítið úr í málflutningi sínum. Það er það sem þetta snýr að. Það þarf að skoða það varðandi alþjóðlegu tollskrána og annað slíkt og það er bara ákveðin vinna sem þarf að vinna til þess að framkvæmdir geti gengið snurðulaust fyrir sig. En í þessu frumvarpi er ekki um neinar prinsippákvarðanir að ræða. Það er búið að taka allar þær ákvarðanir. Það þarf hins vegar að uppfæra tollskrána í samræmi við breytt fyrirkomulag og tollskráin er flókin og hún er löng. Þegar hv. þingmaður og aðrir hv. þingmenn fá hér frumvarpið þá eru menn því ekki að taka einhverjar ákvarðanir um hvers konar fyrirkomulag menn þurfa að hafa. Þetta er vanalega í bandormi af því að þá er það veigaminna en það er núna og kallar ekki á umræðu í þinginu, (Forseti hringir.) bara einstaka útfærslur eða tollnúmer. Á því er engin breyting hér en vegna þess að við erum að fara í þessar breytingar, sem var löngu búið að taka ákvörðun um, (Forseti hringir.) þá verður frumvarpið lengra en við höfum séð í langan tíma.