skuldir ÍL-sjóðs.
Forseti. Fyrrverandi forseti Mannréttindadómstólsins, Róbert Spanó, hefur sagt það sem kannski blasir dálítið við, að tillögur hæstv. fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði til að spara ríkissjóði fjárhæðir sé aðferðafræði sem fari gegn eignarréttinum, rétti sem er varinn í stjórnarskrá Íslands. Annar þungur dómur féll í gær, þá frá seðlabankastjóra, sem flaggaði því að viðureign Seðlabankans við verðbólguna væri erfiðari vegna þess hvernig fjármálaráðherra spreðar. Hallinn stendur í 119 milljörðum. Í báðum tilvikum eru málin lögð upp þannig að almenningur tekur reikninginn fyrir pólitísk mistök stjórnvalda. Fyrst taka lífeyrisþegar á sig högg til að spara ríkissjóði fjárhæðir í gegnum ÍL-sjóð, svo tekur almenningur reikninginn fyrir fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar og fær á sig ítrekaðar vaxtahækkanir því Seðlabankinn er skilinn einn eftir með það verkefni að glíma við verðbólguna. Ég hef flaggað því hér að ríkisstjórnin er rangstæð í máli ÍL-sjóðs. Sjálfstæðisflokkurinn er í stríði við eignarréttinn að því er virðist. Fjármálaráðherra hélt blaðamannafund eftir lokun markaða þar sem hann boðaði sparnað fyrir ríkissjóð sem felst í því að lífeyrisþegar eiga að taka reikninginn, gefa eftir fjárhæðir. Í lögfræðiáliti fjármálaráðherra er vísað til neyðarlaganna sem fordæmis. Það er með nokkrum ólíkindum. Ég óskaði eftir lögfræðiáliti fyrir þingið en því var hafnað, sennilega vegna þess að svörin verða þau að Sjálfstæðisflokkurinn er hér kominn í stríð við eignarréttinn. Meginreglan er að líftími skuldabréfa stendur. Meginreglan er að samningar skulu standa.
En stærsta spurningin hér er kannski þessi: Ætlar formaður flokks, sem gjarnan lítur á sig sem brjóstvörn eignarréttarins, virkilega að halda áfram með hugmyndir sínar? Á eignarrétturinn að víkja fyrir tilraunum ráðherra til að laga stöðu ríkissjóðs með því að fara í vasa lífeyrisþega? (Forseti hringir.) Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn virkilega að leita í hugmyndasmiðju sósíalista til að laga bókhaldið?