skuldir ÍL-sjóðs.
Virðulegi forseti. Maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta þegar maður hlustar á þennan málflutning sem er eins og einhver málflutningur gegn frumvarpi sem ekki er komið fram en aðallega málflutningur gegn ríkissjóði. Allt skal leggja á sig til að veikja stöðu ríkissjóðs og ef það dugar ekki að nota eignarréttinn einhvern veginn í því samhengi þá er það bara formaður Sjálfstæðisflokksins. Kannski er ég sem formaður Sjálfstæðisflokksins aðalskotmarkið hjá hv. þingmanni.
Ég ætla bara að biðja þá sem eru að fjalla um þetta mál að reyna að gera það af aðeins meiri yfirvegun. Auðvitað stendur ekkert annað til í þessu máli en að láta lög og reglur gilda. Það er rangt, sem hefur komið fram, að ég hafi lagt fram einhverja tillögu fyrir þingið. Það er alveg þveröfugt við það. Ég lagði fram skýrslu um stöðu málsins og ég sagði að það væru þrír valkostir í stöðunni.
Ég ætla ekki að taka þátt í einhverjum lögfræðilegum bollaleggingum um ólíkar túlkanir á lagalegri stöðu málsins eða að láta draga mig út í umræðu um það hvað einstaka lögfræðiálit kveður á um. Ég ætla þó að vekja athygli á því að þetta nýjasta lögfræðiálit tekur ekki á mörgum af þeim álitamálum sem hafa verið til umræðu til þessa, tekur bara ekkert á þeim yfir höfuð, og er líka fullt af fyrirvörum um mörg grundvallaratriði. Þar er sömuleiðis verið að rekja hluti sem eru með öllu óumdeildir, eins og t.d. það hvað er eign. En ef hv. þingmaður ætlar að gera það að kappsmáli sínu að veikja stöðu ríkissjóðs vegna stöðu ÍL-sjóðs þá hefur hún ræðustólinn hér áfram til þess.