153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

skuldir ÍL-sjóðs.

[11:06]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér þykir hæstv. fjármálaráðherra vera hörundsár maður, talar um það að þingmenn tali gegn hagsmunum ríkissjóðs. Er það ekki skylda þingmanna að fara að lögum, að fara að stjórnarskrá? Hvernig getur hæstv. fjármálaráðherra staðið hér og bifast ekki þrátt fyrir að fyrrverandi forseti Mannréttindadómstólsins tali um það að Sjálfstæðisflokkurinn sé hér kominn í stríð við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar? (Gripið fram í.) Hvað er að frétta? Svo talar hann um það í fjölmiðlum að hann sé að laða fram samkomulag. Hver er staða þeirra sem setjast við samningaborð með fjármálaráðherra þegar hann er búinn að halda blaðamannafund um það að ef menn ekki semja við hæstv. ráðherra, hvað gerist þá? Þeir fá á sig lagasetningu með þeirri niðurstöðu sem honum hugnast. Staðan er þessi að lögfræðingar — og það er nú bara þannig að lög skipta máli á Alþingi, túlkun þeirra og beiting — flagga því að hæstv. fjármálaráðherra er rangstæður við stjórnarskrá Íslands.