153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

skuldir ÍL-sjóðs.

[11:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Hæstv. fjármálaráðherra. Virðulegi forseti. Já, það er komið með knattspyrnumál, fótboltamál hérna, kannski vegna þess að HM stendur yfir. Það sem við ætlum ekki að gera í þessu máli er að skora sjálfsmark (ÞorbG: Nei, vonandi ekki …) vegna þess að þegar ábyrgð var gefin á skuldbindingum ÍL-sjóðs var það einföld ábyrgð. Staðan sem við erum að horfast í augu við og erum að efna til umræðu um er þessi: ÍL-sjóður á ekki fyrir skuldbindingum sínum. Það getur vel verið að það komi fram ólík sjónarmið, lögfræðileg, um það hvort það sé nægilegt tilefni til þess að grípa til lagasetningar til að slíta þá sjóðnum í ljósi þeirrar slæmu stöðu. Þá skulum við bara ræða það. En öll þessi orð um það hvað stendur í þessu lögfræðiáliti voru auðvitað stórkostleg oftúlkun af hálfu hv. þingmanns. (Gripið fram í.) Svo vita það allir vonandi að ég mun aldrei setja einhver lög hér á Alþingi, það verður Alþingis að ákveða þetta á endanum. Komi fram tillaga frá mér (Forseti hringir.) þá skulum við ræða málið en hún er ekki enn þá (Forseti hringir.) komin fram og það sem vakir fyrir mér er að fylgja lögum, (Forseti hringir.) láta ríkissjóð ekki taka á sig meiri ábyrgðir en hann hefur lofað.