umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.
Virðulegi forseti. Ég vildi bara, í ljósi þess að umræðan um þetta mál er greinilega enn þá í fullum gangi, minna á að hæstv. fjármálaráðherra flutti þinginu hér skýrslu um ÍL-sjóð en umræða um hana hefur ekki klárast. Því máli var frestað og mælendaskráin var ekki tæmd. Ég vil því spyrja hæstv. forseta: Hvenær stendur til að setja þá skýrslu aftur á dagskrá og klára þá umræðu um skýrslu fjármálaráðherra? Það er augljóst að fjármálaráðherra hefur ekki sagt sitt síðasta hér á þingi varðandi þetta mál og þingmenn hafa heldur ekki sagt sitt síðasta við ráðherra.