153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.

[11:10]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hér kom fram fyrir tveimur eða þremur vikum í máli hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem er ráðherra lífeyristryggingamála á Íslandi, að það stæðu yfir viðræður milli fjármálaráðuneytisins og lífeyrissjóðanna um ÍL-sjóð og þær kröfur sem þar eru í húfi. Mér þætti vænt um það, vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra er hér í húsi og það er tekist á um þetta hér í dag, að hann gæti staðfest við okkur að viðræður séu í gangi milli ráðuneytisins og lífeyrissjóðanna og hvort stjórnir lífeyrissjóðanna telji sér heimilt samkvæmt lögum að semja við ríkið um skerðingu á eignum sjóðanna. Eru einhverjar viðræður í gangi milli fjármálaráðuneytisins og lífeyrissjóðanna? Eða var hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, ráðherra lífeyristryggingamála, að fara með rangt mál þegar hann sagði að svo væri?