umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.
Virðulegi forseti. Mér finnst þessi umræða hæstv. fjármálaráðherra stórundarleg, þegar hann talar um að hér sé ekkert mál komið fram. Hann heldur blaðamannafund þar sem hann teiknar upp leikfléttuna og hvað sé í vændum. Ef þið ekki semjið við mig þá set ég á ykkur lög. Auðvitað þarf Alþingi þá að vita hvert markmiðið er og að hverju er stefnt. Og auðvitað hefði Alþingi átt að fá það lögfræðiálit sem ég óskaði eftir en meiri hlutinn hafnaði. Getur verið að þessu lögfræðiáliti hafi verið hafnað vegna þess að svörin öskra á mann?
Fjármálaráðherra afgreiðir álit lífeyrissjóðanna með þeim hætti að ekkert mark sé á því takandi vegna þess að þeir hafi hagsmuna að gæta. Fjármálaráðherra föndraði reyndar sjálfur lögfræðiálit og hann hefur hagsmuna að gæta í þessu máli. Orð fyrrverandi forseta Mannréttindadómstólsins virðast ekki vega þungt. Þetta er bara eitthvert „potato/potato“ um hvað stendur í stjórnarskránni.
Ég held að við þurfum að fá umræðu um þessa skýrslu í framhaldinu. Það er svo margt í þessu. Niðurstaðan hefur áhrif á fjárlagagerð. (Forseti hringir.) Niðurstaðan hefur áhrif á kjarasamninga, myndi ég ætla. Er þetta framlag ríkisstjórnarinnar inn í kjarasamninga að fara svona að lífeyrisþegum, (Forseti hringir.) almenningi í landinu? Það er ekki þannig að það sé ímyndun þingheims að hæstv. fjármálaráðherra hafi haldið blaðamannafund þar sem hann boðaði þessar aðgerðir. Það gerðist í raun og sann.