153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.

[11:15]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil bara taka undir með þeim sem segja: Við þurfum endilega að ræða þetta, og lýsi mikilli furðu þegar ég heyri þingmenn, eins og þann sem síðast talaði, tala um það að ég vilji forðast umræðu um þetta mál.

Skoðum aðeins staðreyndir málsins. Ég lagði skýrslu fyrir Alþingi til þess að efna til umræðu um málið. Svo koma menn hér og segja: Ráðherrann vill ekki ræða málið. Heyr á endemi. Þetta eru alger öfugmæli. Og að ég hafi ákveðið nú þegar hvernig málið verði leyst. Það er líka rangt. Til hvers halda menn að skýrslan hafi verið lögð fram? Ég fagna því að það skuli koma fram lögfræðileg álit um stöðu málsins. Ég ætla bara að áskilja mér rétt til að hafa skoðun á þeim eins og öllu öðru sem menn geta verið að skrifa um í þessu efni. Það er bara eitt sem vakir fyrir mér, það er að ríkissjóður taki ekki meiri ábyrgð á þessu máli en lög standa til og samningar. Ég tek bara eftir því að menn eiga erfitt með þennan málstað vegna þess að þeir halda að þeir vinni eitthvert pólitískt gagn með því að reyna að koma höggi á fjármálaráðherrann jafnvel þótt ríkissjóður blæði fyrir. (HVH: Og verja almenning?) (JPJ: Eru viðræður í gangi?)