153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.

[11:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð fór fram 26. október. Ekki náðist að tæma mælendaskrá fyrir lok þingfundar þann dag. Það er kannski ágætt að skoða þetta í samhengi þess að það eru sögulegar vanefndir á þingmálaskrá ríkisstjórnar þetta haustið þannig að það er ekki eins og það hafi ekki verið nægt rými í dagskrá. Daginn eftir t.d., 27. október, var óskað heimildar til að lengja þingfund. Hann byrjaði kl. 10:30 en lauk 17:39. Forseti ákvað að setja ÍL-sjóð ekki á dagskrá þess fundar þó að við vitum vel að það sé alveg hægt að funda hér þó að klukkan sé orðin meira en hálf sex síðdegis. En svo kemur ráðherra upp og lýsir því yfir að auðvitað vilji hann ræða þessa skýrslu, (Gripið fram í.) það sé öllum (Forseti hringir.) — öllum — ljóst. Ef það er rétt þá er það náttúrlega ákveðinn áfellisdómur yfir samskiptum milli ráðherrans og forseta, sem eru þó í sama flokki, (Forseti hringir.) að ekki hafi gengið betur að koma þessu á dagskrá í einn og hálfan mánuð (Forseti hringir.) frá því að umræðan átti sér stað síðast, ef ráðherrann er svona áfram um að fá hana hér inn í sal. Talið þið ekkert saman, (Forseti hringir.) herra forseti?