153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.

[11:20]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það sem hæstv. fjármálaráðherra lagði til á sínum blaðamannafundi um daginn var að ÍL-sjóður yrði knúinn í gjaldþrot með lagasetningu til að koma í veg fyrir að skuldabréfaeigendurnir, m.a. lífeyrissjóðir og almannaheillasamtök, (Fjmrh.: Þetta er rangt.) nytu vaxtagreiðslna og verðbóta út líftíma hinna ríkistryggðra skuldabréfa að fullu í samræmi við skilmálana sem voru gefnir. Þetta er efnislega það sem lagasetningin sem fjármálaráðherra var að viðra hugmyndir um átti að fela í sér og því var í raun hótað að svona lög yrðu sett ef ekki næðust einhvers konar samningar milli lífeyrissjóðanna og ríkisins.

Hæstv. tryggingamálaráðherra, hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem fer með lífeyrissjóðsmál, hélt því fram á Alþingi fyrir skömmu síðan að það væru í gangi viðræður milli ráðuneytisins og lífeyrissjóðanna. Og ég tek eftir því að hér getur hæstv. ráðherra ekki staðfest að neinar slíkar viðræður séu í gangi. Það eru engar slíkar viðræður í gangi. (Forseti hringir.) Það eru engar viðræður í gangi vegna þess að sú leið sem ráðherra lagði til (Forseti hringir.) er ekki fær og stjórnir lífeyrissjóðanna telja sér ekki heimilt að semja frá sér (Forseti hringir.) þessar eignir. Ráðherra er algerlega kominn út í skurð með þetta mál (Forseti hringir.) og ég legg til við hæstv. forseta að umræðan um skýrslu hæstv. fjármálaráðherra haldi áfram sem allra fyrst.