153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

umræða um skýrslu fjármálaráðherra um ÍL-sjóð.

[11:23]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill taka fram að hann getur því miður ekki gefið nákvæmari tímasetningar í þessu. Vildi forseti gjarnan að hann gæti gefið nánari tímasetningar varðandi dagskrá dagsins í dag og þeim mun erfiðara er að segja til um það sem á eftir að gerast á næstu dögum. En forseti heyrir hins vegar áhuga manna á því að halda þessari skýrsluumræðu áfram og mun leitast við að bregðast við því.