153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:24]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Hér í 2. umr. fjárlaga, í minni síðari ræðu, vildi ég ræða sérstaklega um réttindi fatlaðs fólks og það fjárþak sem hefur verið sett á það að fatlað fólk fái að njóta sinna mannréttinda til fulls. Í þinginu liggur einnig fyrir frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, eða NPA, og áður en ég kem að fjárheimildum til NPA og hvernig það setur þak á mannréttindi fatlaðs fólks og í raun kvóta á mannréttindi fatlaðs fólks ætla ég að útskýra aðeins út á hvað NPA gengur. Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir voru afgreidd á Alþingi árið 2018 og tóku gildi 1. október 2018. Með lögunum var innleitt nýtt þjónustuform fyrir fatlað fólk með ríkar þjónustuþarfir sem hefur síðan reynst afar mikilvægt og í raun grundvöllur þess að fatlað fólk geti lifað sjálfstæðu lífi. NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvaða aðstoð er veitt og hvernig hún fer fram og hver veitir þjónustuna. Það er líka mjög mikilvægt. NPA getur gagnast öllu fötluðu fólki en hentar þeim sérstaklega sem hafa þörf fyrir viðvarandi, fjölþættan stuðning og eru reiðubúin til að stýra því sjálf, eftir atvikum með aðstoð, hvar, hvernig og hvenær aðstoðin er veitt. Þessi þjónusta bætir auðvitað bara líf fólks þegar það hefur raunverulegt aðgengi að henni. Strax í upphafi, við lögfestingu þessa máls 2018, en reyndar á það sér lengri aðdraganda, var settur kvóti á þessi sjálfsögðu mannréttindi, kvóti um það hversu marga samninga ríkið ætlaði sér að fjármagna. Til nánari útskýringar þá virkar kerfið þannig að sveitarfélögin greiða fyrir NPA-þjónustu en ríkið greiðir framlag sem er ráðstafað í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem tiltekin hlutdeild af fjárhæð samninga. Sveitarfélagið á að greiða 75% og ríkið 25%, sem sagt ekki mjög stóra hlutdeild þegar allt kemur til alls. En vegna þess að ríkið er með hámark á hversu marga samninga það fjármagnar, vegna þess að það er hámark á fjárheimildunum, þá kemur það í veg fyrir að samningum fjölgi eðlilega og í takt við þörfina.

Hvers vegna skiptir þetta máli? Þetta skiptir máli vegna þess að Ísland er aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Við erum búin að fullgilda samninginn en við erum langt frá því að lögfesta samninginn, bara mjög langt frá því. Það er ekki bara út af NPA heldur líka út af lögræðislögum og öðru sem er gríðarlegt réttindamál fyrir fatlað fólk. 19. gr. í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður á um rétt til að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu. Þessar fjárheimildir sem við erum að setja inn í NPA í hverjum fjárlögum er að ákveða hversu margir fatlaðir einstaklingar sem þurfa á þessari þjónustu að halda fá að njóta hennar, hversu margir einstaklingar fá í raun að njóta mannréttinda sinna samkvæmt 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Áður en ég fer út í 19. gr. þá langar mig líka að segja að samningurinn er ekki að færa fötluðu fólki ný réttindi eða einhver annars konar réttindi en fólki sem ekki er með fötlun hefur. Nei, samningurinn var búinn til vegna þess að fatlað fólk nýtur oft í grundvallaratriðum ekki mannréttinda til jafns við aðra. Þess vegna er þessi 19. gr. svo ótrúlega mikilvæg. Hún gengur út á það að fatlað fólk eigi þann sjálfsagða rétt sem ég á, sem við eigum öll um leið og við erum búin að ná sjálfstæða lífinu, að vera 18 ára, að fá að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu. Þetta eru auðvitað bara sjálfsögð mannréttindi en það þarf að setja sérstök ákvæði um það í mannréttindasáttmála sem er sérstaklega gerður fyrir fatlað fólk vegna þess að það eru svo miklir fötlunarfordómar og svo mikil mismunun gagnvart fötluðu fólki í samfélaginu. Þess vegna þarf að setja sérsamning inn í alþjóðalög til að neyða ríki heims til að finna leiðir svo að þau hætti að mismuna fötluðu fólki.

Í 19. gr. stendur, með leyfi forseta:

„Aðildarríki samnings þessa viðurkenna jafnan rétt alls fatlaðs fólks til að lifa í samfélaginu og eiga valkosti til jafns við aðra og skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk megi að fullu njóta þessa réttar og fullrar aðildar og þátttöku í samfélaginu án aðgreiningar, meðal annars með því að tryggja:

a) að fatlað fólk hafi tækifæri til þess að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra, og að því sé ekki gert að eiga heima í tilteknu búsetuformi.“

Stöldrum aðeins við, virðulegi forseti. Munum við ekki eftir hverju dæminu á fætur öðru þar sem fatlað fólk, jafnvel ungt fatlað fólk, er í raun dæmt til þess að búa t.d. á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða eða öðrum stofnunum sem það vill ekki búa á, er neytt til að búa í öðru búsetuformi og á öðrum stað en það vill búa á?

Þetta leiðir mig að öðru hjartans máli hjá mér sem eru lögræðissviptingar. Það er mál réttindagæslufólks fatlaðs fólks að lögræðissviptingu sé endurtekið beitt, einungis til að það sé hægt að skikka fólk hreinlega til ákveðins búsetuforms, til að taka af því réttinn til að ákveða hvar það á að búa og koma því fyrir á einhverri stofnun. Fólk er hreinlega lögræðissvipt til þess að stjórna því hvar það býr. Það brýtur gegn þessu ákvæði og reyndar 12. ákvæði samningsins líka, um að vera viðurkenndur að lögum. Ég er hérna að vinna með þessa nýju þýðingu, virðulegi forseti, ég var alltaf að vinna með gömlu. Jöfn viðurkenning fyrir lögum heitir þetta og er 12. gr., með leyfi forseta:

„1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk á rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum.

2. Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins.“

Þessi réttindi eru kerfisbundið vanvirt á Íslandi með lögræðissviptingu, sjálfræðissviptingu, fjárræðissviptingu gagnvart fötluðu fólki.

En ég er aðallega að fjalla um 19. gr. og tengsl hennar við fjárheimildir til NPA-þjónustu og ég átti eftir tvö atriði í viðbót í henni. Hér er b-liður 19. gr., með leyfi forseta:

„að fatlað fólk hafi aðgang að ýmiss konar þjónustu, svo sem heimaþjónustu, búsetuþjónustu og annarri samfélagslegri stuðningsþjónustu, þar á meðal persónulegri aðstoð, sem nauðsynleg er til stuðnings lífi án aðgreiningar í samfélaginu og til að koma í veg fyrir einangrun og aðgreiningu frá samfélaginu.“

C-liður hljóðar svo: „að samfélagsþjónusta og aðstaða fyrir almenning standi fötluðu fólki til boða til jafns við aðra og mæti þörfum þess.“

Á þessu er t.d. einkaframtakið að vissu leyti að taka með verkefninu Römpum upp Ísland. Það er ákveðið aðgengisátak í gangi núna sem er vel. En auðvitað þarf að gera miklu betur og meira vegna þess að aðgengi gengur ekki bara út á rampa, þótt þeir séu að sjálfsögðu eðlilegur, nauðsynlegur og mikilvægur hlutur sem er mjög áríðandi að uppbyggingu sé hraðað á, heldur er líka um annars konar aðgengi að ræða. Það er t.d. aðgengi fatlaðs fólks að réttarkerfinu, aðgengi fatlaðs fólks að réttindum sínum. Það er ekki svo að fatlað fólk hafi raunverulegt aðgengi að réttindum sínum til jafns við aðra, bara langt í frá. Tökum dæmi um þá gríðarlegu mismunun gagnvart rétti fólks með geðraskanir og geðfatlanir til þess að lifa í frelsi og njóta frelsis, njóta ferðafrelsis og vera ekki innilokað eða svipt frelsi sínu að ósynju. Lagabálkurinn sem gildir um það er bara þriðja flokks, ég verð að segja þriðja flokks, virðulegi forseti, í samanburði við t.d. lög sem gilda um gæsluvarðhald eða önnur slík frelsissviptingarúrræði, vegna þess að það er innbyggt í lögin að það megi bara undanskilja rétt fólks sem er svipt frelsi sínu vegna geðsjúkdóms ef lækni þykir bersýnilega tilhæfulaust að viðkomandi fái að mæta fyrir dómara og tala fyrir frelsi sínu ef hann er nauðungarvistaður. Það sama gildir einmitt um þessar lögræðissviptingar sem ég var að tala um að séu notaðar til að stjórna því hvar fólk býr. Það er líka orðalag í lögræðislögunum um að það sé hægt að meina fólki að tala gegn lögræðissviptingu sinni, að tala fyrir frelsi sínu til að njóta réttinda til jafns við aðra, til að geta nýtt sér réttindi sín, ef það þykir bersýnilega tilhæfulaust að heyra hvað því finnst.

Þetta verður auðvitað til þess, sem og skortur á þjálfun, skortur á þekkingu, skortur á fræðslu í réttarkerfinu og í allri stjórnsýslunni sem snýr að þessum málaflokki að stóru leyti, að fatlað fólk nýtur ekki réttinda sinna til jafns við aðra. Auðvitað kostar fræðsla peninga og þegar kemur að fræðslu um mannréttindi þá finnst mér við vera mjög aftarlega og gera allt of lítið. Það er viðvarandi og kerfisbundinn þekkingarskortur á vernd og framfylgd mannréttinda á Íslandi. Ég hef gert það að tillögu minni að frumvörp ættu að fara í mannréttindamat fyrst af öllu. Ef það kemur upp einhver hugmynd um að leggja fram eitthvert frumvarp þá fyrst skulum við athuga á hvaða réttindi þessi hugmynd að lagasetningu mun hafa áhrif. Þegar það hefur verið greint er fyrst hægt að halda áfram á þann hátt sem hefur sem minnst skaðleg áhrif og sem mest jákvæð áhrif á vernd mannréttinda. Þannig finnst mér að ætti að nálgast lagasetningu.

En aftur að NPA, virðulegi forseti, vegna þess að þetta tengist svo sannarlega allt. Nú er það svo að þessi bráðabirgðalög — þetta er ákveðin bráðabirgðabreyting á réttindum fatlaðs fólks til sjálfsagðrar þátttöku í samfélaginu til lífs án aðgreiningar, eins og ég var að koma inn á að tilheyrir 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks — voru upprunalega sett árið 2018 í formannstíð hv. þm. Halldóru Mogensen í velferðarnefnd og voru upprunalega gerð þannig að fjöldi nýrra samninga átti að aukast ár frá ári á ákveðnu innleiðingartímabili. Það stóð í lögunum, með leyfi forseta:

„Á innleiðingartímabilinu veitir ríkissjóður framlag til eftirfarandi fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sem skal ráðstafað í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem tiltekinni hlutdeild af fjárhæð samninga, á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum: Á árinu 2018 vegna allt að 80 samninga.“

Nú vil ég taka það fram, virðulegur forseti, að akkúrat núna eru um 90 samningar í gildi. Það var markmiðið fyrir 2018, 2019. Svo heldur listinn áfram og á árinu 2019 á að veita framlag vegna allt að 103 samninga. Við erum nú stödd á milli 2018 og 2019 með fjöldann. Og við erum á leiðinni inn í 2023. Þetta innleiðingartímabil átti að klárast 2022, sem sagt árið í ár, en við áttum að fara upp í 125 samninga 2020, 150 samninga árið 2021, sem sagt í fyrra, en við erum með 90, ég endurtek það, og 172 samninga í ár. En hingað kemur félagsmálaráðherra og meiri hluti fjárlaganefndar og þau eru hrikalega stolt af því að færa heimildirnar upp í svona 140 samninga sem er aðeins minna en við ætluðum að vera í árið 2021. Þetta skil ég ekki alveg, virðulegi forseti. Upprunalega planið var að setja kvóta á mannréttindi og ég er mótfallin því. Mér finnst að þeir sem þurfa á NPA-þjónustu að halda eigi að fá NPA-þjónustu vegna þess að 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gerir ráð fyrir því að við gerum allt sem við getum til að fatlað fólk geti tekið þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Við förum ekki að setja kvóta á hversu margir fá að njóta mannréttinda vegna þess að mannréttindi eru algild. En gott og vel, það er ákveðið að fara þessa innleiðingarleið en það plan sem var markað í upphafi hefur ekki gengið eftir, plan sem var allt of metnaðarlaust og í raun andstætt hugmyndafræðinni um mannréttindi, að vera með kvóta á þeim. En þessi ákvörðun er tekin og svo hefur planið ekki einu sinni gengið eftir, virðulegur forseti. Ríkissjóður hefur vanáætlað og vanfjármagnað sinn hluta af NPA og fyrir vikið eru um helmingi færri NPA-samningar í gildi í dag en þeir ættu að vera samkvæmt lögum nr. 38/2018. Nú stendur til að á árinu 2023 verði allt að 145 samningar, bara svo ég hafi þetta algjörlega rétt, virðulegi forseti. Það er kvótinn.

Ég verð bara að segja það, virðulegi forseti, þó að ég sé ekki búin að tala um allt sem ég ætlaði að tala um þegar kemur að réttindum fatlaðs fólks, að þessi kvótasetning er óásættanleg, þessi endalausa kvótasetning og þessir biðleikir sem eru alltaf leiknir gegn fötluðu fólki þegar kemur að því að það fái að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra, njóti sjálfsagðra mannréttinda, fái í gegn lögfestingu á grundvallarsamningi um hvernig það fær notið réttinda sinna til jafns við aðra sem hefur setið á hakanum — var það ekki 2016 sem við fullgiltum þennan samning? Ég held það, 2015 eða 2016 og það var árið 2007 sem við undirrituðum hann. Þetta er búið að standa til í 15 ár og enn er fólk látið bíða. Hvaða rugl er það, virðulegi forseti? Af hverju erum við enn þá í einhverju innleiðingartímabili með sjálfsögð mannréttindi fólks? Því ætti auðvitað að vera lokið fyrir löngu. Það ætti ekki að vera hægt að setja einhverja tölu á hversu margir einstaklingar fái að njóta mannréttinda. Mannréttindi eru algild og þar af leiðandi getur þú ekki sett kvóta á mannréttindi og sagst skilja mannréttindi á sama tíma. Það fer ekki saman.