153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:45]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Ég ætla að taka upp þráðinn þar sem hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sleppti honum í sinni ræðu þar sem hún var að tala um NPA-samningana sem eru ekki fullfjármagnaðir í þeim fjárlögum sem við erum að ræða hér. Það er svo sem búið að ræða allnokkuð um það í þessari umræðu. En þetta er nefnilega svo áhugaverður punktur sem hún kom inn á varðandi það að við höfum verið með mannréttindasamninga sem hafa verið taldir algerlega í gildi og gilda um allt fólk, í rauninni alveg frá því undir lok 17. aldar og svo 100 árum síðar komu kannski þekktustu mannréttindasamningarnir í Frakklandi og Bandaríkjunum, en það er ekki fyrr en liðið var á 19. öldina sem t.d. þrælahald var afnumið í ríkjum þar sem þessi mannréttindi áttu engu að síður að gilda. Við erum einhvern veginn ekki í annarri stöðu í dag. Það er þannig að þau mannréttindi sem við höfum ákveðið að skuli gilda fyrir allt fólk, gera það ekki. Það er ekki vegna þess að þessir samningar undanskilji þau heldur vegna þess að við beitum þeim þannig og við höldum áfram að gera það. Framan af voru það sannarlega einstaklingar sem voru taldir annars flokks manneskjur, þrælar, síðar eru það konur, börn, fatlað fólk, flóttafólk, sem virtist sem að væru ekki talin til fólks samkvæmt þessum mannréttindasamningum. Það er ákveðin bót í því að við erum búin að samþykkja alþjóðlega samninga sem taka á réttindum þessara hópa sérstaklega, þar á meðal réttindum fatlaðs fólks sem var gríðarlega mikið framfaraskref. En líkt og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir benti á þá var ástæðan fyrir því að það þurfti að fara í þá vinnu að samþykkja sérstakan samning um réttindi fatlaðs fólks einfaldlega sú að mannréttindi fatlaðs fólks voru ekki virt. Þetta er auðvitað hneyksli í sjálfu sér.

Nú erum við búin að samþykkja þennan samning og raunar ekki búin að lögfesta hann þrátt fyrir miklar yfirlýsingar um að það standi til og við vitum alveg hverjar ástæðurnar eru fyrir því að það er ekki búið að lögfesta samninginn um réttindi fatlaðs fólks. Þær eru einkum tvær þó að þær séu auðvitað margvíslegar og djúpstæðar, annars vegar að það er svo rosalega dýrt að virða réttindi fatlaðs fólks. En það á náttúrlega við um öll borgaraleg réttindi. Ég held að það sé enginn að fara að taka af okkur lýðræðið þótt það kosti stórfé. Það er bara svoleiðis. Og þegar við erum að tala um fjárlög þá erum við ekki að tala um í rauninni úr hversu miklum peningum við höfum úr að moða heldur hvernig við forgangsröðum þeim. Það er nefnilega nóg til. Það er nóg til, líkt og var yfirskrift skýrslu ASÍ sem kom út fyrir ekki svo löngu síðan. Í þessum fjárlögum sem við erum að ræða sjáum við þennan sama vanda, þetta sama hugarfar sem ég kom svolítið inn á í ræðu minni hérna í nótt. Ég fékk að halda fyrstu ræðu mína í þessu máli klukkan tvö í nótt, ef mér skjátlast ekki, sem var auðvitað mjög vont og óþolandi. En sem betur fer féllst forseti á að halda umræðunni áfram inn í daginn í dag. Það sem ég kom inn á í ræðu minni í nótt var það djúpstæða hugarfarsvandamál sem við stöndum frammi fyrir í kerfinu okkar og kemur t.d. að réttindum öryrkja og þjónustu við fatlað fólk og öllum þeim þáttum. Það eru sömu kerfisbundnu viðhorfin sem eru einmitt ástæðan fyrir því að það þarf að gera sérstaka samninga um réttindi minnihlutahópa, þó að það sé búið að gera almenna mannréttindasamninga sem ætti nú að taka af allan vafa um að allt fólk njóti sömu réttinda, og það er sami hugarfarsvandi sem hefur orsakað kerfið eins og við erum með það, byggt upp þetta kerfi eins og það er. Líkt og ég nefndi í nótt þá snýst það fyrst og fremst um að það er almennt viðurkennt að öryrkjar t.d. séu fátækir. Grey öryrkjarnir, þeir eru fátækir. Það er einhvers konar náttúrulögmál og ef það er ekki þannig þá er eitthvað að og þá þarf nú að taka eitthvað af þeim, skerða eitthvað. Það sem er alvarlegast við það er hvar skerðingarnar liggja. Skerðingarnar eru ekki þegar öryrki er fluttur í einhverja höll, það er í rauninni þegar hann er farinn að geta mögulega lifað mannsæmandi lífi og varla það, það er þá sem hvatarnir, eins og skerðingarnar eru kallaðar, koma inn.

En ég ætlaði ekki að halda aðra ræðu um sama efni hérna. Mér er þetta mjög hugleikið hins vegar. Við erum í umræðum um fjárlög og sannarlega ræðum við einstaka þætti. Að sjálfsögðu tökum við fyrir ákveðna þætti í þeirri áætlun sem lögð er hér fram af hálfu ríkisstjórnarinnar um það hvernig við ætlum að verja okkar fjármunum. En þetta er svolítið eins og biluð plata. Við erum alltaf að gagnrýna sömu hlutina og við erum alltaf að gera sömu kröfurnar. Það sér einhvern veginn aldrei fyrir endann á því að við séum alltaf að stoppa í göt, öryrkjar að biðja um einhverjar sporslur. En það er með það eins og annað, það þarf ekki bara að bæta í sporslurnar og hækka frítekjumarkið og lækka skerðingarhlutfallið og allt þetta heldur þurfum við einfaldlega að fara að hugsa hlutina allt öðruvísi. Við þurfum að fara að hugsa þá öðruvísi. Þetta á við um gríðarlega margt og þar kem ég að því sem ég ætlaði að nefna næst. Reyndar þegar ræðu minni sleppti hérna í nótt þá ætlaði ég að fara að ræða lögreglumál sem eru fangelsismálin en þetta er nátengt.

Það hefur auðvitað verið mikið ákall undanfarið um frekari fjárveitingar til fangelsanna. Sem betur fer er það ekki vegna þess að við viljum endilega vera að loka inni enn fleira fólk eða ég vona að það sé ekki það sem býr þar að baki, þótt það geri það kannski óbeint, heldur erum við þar að tala um aðbúnað fanga og hvernig við í rauninni refsum fólki sem brýtur reglurnar sem hafa verið settar. Þetta er mér sérstaklega hugleikið. Þetta hefur verið mér hugleikið í ansi langan tíma og var reyndar efni meistararitgerðar minnar þegar ég útskrifaðist úr lagadeild fyrir allnokkrum árum síðan, árið 2009. Þá hafði það vakið athygli mína strax á öðru ári mínu í lagadeildinni þegar við vorum að læra refsirétt að á þeim tíma var gríðarlega hávær krafa uppi í samfélaginu um þyngri refsingar. Á þeim tímapunkti voru það þyngri refsingar fyrir kynferðisbrot, hávær krafa um að það þyrfti þyngri refsingar, lengri fangelsisvist við kynferðisbrotum, það þyrfti að loka fólk lengur inni fyrir að brjóta á kynfrelsi annarra, þó að kynfrelsi hafi sannarlega ekki verið skilgreint með eðlilegum hætti þá og það mjakast enn mjög hægt í þá átt. En þetta var krafan. Á sama tíma erum við að læra í refsiréttinum um svokallaða ítrekunartíðni afbrota. Það þýðir á mannamáli að ef einstaklingur stelur þá snýst ítrekunartíðnin um það hversu tölfræðilega líklegt er að hann steli aftur einhvern tíma seinna, hann ítreki brot sín. Í flestum brotaflokkum er ítrekunartíðni talsvert há, jafnvel þar sem um er að ræða líkamlegt ofbeldi, þjófnaði og þessi þekktustu brot. Ítrekunartíðnin er há, fólk sem brýtur af sér er líklegt tölfræðilega til að gera það aftur.

En í kynferðisbrotamálum var ítrekunartíðni nánast engin samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfðum. Sannarlega spilar þar inn í kolrangt utanumhald upplýsinga og auðvitað skortur á kærum og skortur á meðvitund um það hvað kynferðisbrot eru og annað. En engu að síður vakti athygli mína að ítrekunartíðni í t.d. nauðgunarmálum var engin, hún var núll á einhverju tímabili sem við vorum að læra um. Einu kynferðisbrotin sem voru þarna undanskilin voru kynferðisbrot gegn börnum en í öllum þeim rannsóknum sem ég hef stúderað um þessi efni og skyld efni eru þau brot alltaf sér á báti í rauninni alveg sama hvernig á það er litið og passa ekki inn í neina tölfræði og annað. Þegar ég sá þetta samspil þótti mér það skjóta skökku við, að við viljum þyngri refsingar þar sem ítrekunartíðnin var engin, og þá vaknaði spurning í huga mér sem var: Af hverju viljum við þyngri refsingar ef þessi refsing virðist duga til að viðkomandi geri þetta ekki aftur? Af hverju þurfum við þyngri refsingar? Eru þyngri refsingar líklegar til þess að fæla fólk frekar frá því að brjóta af sér hvað þessi brot varðar? Ég held að það sé ekki það sem fyrst og fremst fælir fólk frá því að brjóta kynferðislega gegn öðru fólki. Það sem ég held að fæli fólk fyrst og fremst frá því að brjóta kynferðislega gegn fólki er virðing fyrir öðru fólki og það er auðvitað þar sem lekinn er, en í stað þess að skrúfa fyrir lekann erum við alltaf að þurrka upp. Ég fór að hugsa þetta enn þá lengra og fékk ákveðna þráhyggju fyrir þessari spurningu: Hvers vegna erum við að þyngja refsingar? Hvers vegna erum við að fangelsa fólk? Hver er tilgangurinn með þessu? Úr varð að meistararitgerð mín í lögfræði fjallaði um það sem mörgum þótti ekkert vera lögfræði á þeim tíma þó að síðan hafi þáverandi skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, ég bý svo vel að hún er aftur samstarfskona mín í dag, sagt við mig: Ef eitthvað er lögfræði þá er þetta lögfræði, og var þá að tala um réttarheimspekina sem var að baki ritgerðarefni mínu en ritgerðin heitir Siðferðilegur grundvöllur refsinga. Það var það sem ég fór út í að kanna. Og þarna erum við aftur komin að þessu. Fólk spyr: Hvað kemur þetta fjárlögum við? Jú, við erum aftur komin að því sem ég er að reyna að koma frá mér hérna sem er að í þessu skipulagi okkar, þessum ákvörðunum um hvernig við ætlum að verja fjármunum, hvernig við ætlum að hafa ríki okkar og samfélag, þá erum við alltaf í einhverjum bútasaumi í stað þess að hugsa hlutina upp á nýtt. Það myndi hafa í för með sér að mínu mati gríðarlegan sparnað í peningum í ofanálag við það hversu mikið það myndi bæta samfélagið.

Þau eru fá félagslegu fyrirbærin sem staðist hafa tímans tönn betur en refsingar manna sem brjóta af sér, fátt sem er viðurkennt jafn víða og hefur verið viðurkennt í gegnum tíðina. Í dag er yfirlýstur megintilgangur refsinga varnaðaráhrif og það kemur raunar svolítið skýrt fram í umræðunni þegar við erum að ræða um fangelsismál, lögreglumál eða annað að það er þó þessi framför, hugmyndafræðilega framför, í þá átt að refsingar snúist ekki bara um að refsa, til að hefna sín á einhverjum eða eitthvað slíkt, þó að slík fræðileg sjónarmið séu enn ríkjandi t.d. í Bandaríkjunum, sem er mjög áhugavert. Þetta virðist vera, mig langar að segja almennt, útbreiddasta hugmyndin um það hvers vegna við erum að refsa, þ.e. varnaðaráhrifin, sá tilgangur að koma í veg fyrir afbrot. Ekki bara að refsa fólki af því að það þarf að refsa því af því að það er rétt að refsa því. Aðspurð hvert sé meginmarkmiðið með refsingum svara flest því þannig að það sé til að fækka afbrotum. Í athugasemdum við lagafrumvarp það sem varð að núgildandi hegningarlögum, nr. 19/1940, er berum orðum tekið fram að refsing sé ein þeirra aðferða sem þjóðfélagið hafi til að verjast réttarbrotum. Í skrifum íslenskra áhuga- og fræðimanna er stundum gengið út frá því að varnaðaráhrif séu megintilgangur refsinga án þess að um það sé fjallað í löngu máli. En það hefur verið þannig í umræðunni undanfarið og er aftur að koma upp umræða um það að dómar séu fáránlega lágir, fáránlega vægir. Þetta hefur gerst ítrekað í gegnum tíðina, það er bara svolítið misjafnt hvaða brotaflokkar það eru sem eru í deiglunni hverju sinni. Á tímabili voru það fíkniefnabrot og það sýnir sig í mjög þungum dómum. Á tímabili þyngdust gríðarlega dómar í slíkum málum. Á tímabili voru það líkamsmeiðingar sem ekki þótti nógu þungt refsað fyrir en síðustu árin hafa það verið kynferðisbrotin. Krafan um þyngri refsingar er skýr.

En þá komum við aftur að þessu: Til hvers? Til hvers erum við að refsa? Það hafa orðið samfélagslegar breytingar á undanförnum áratugum, kannski ekki síst í fræðunum og rannsóknum. Félagsfræði hefur fleygt mjög mikið fram á síðustu áratugum. Ég held að það svið nái ekki mörg árhundruð aftur þó að það hafi kannski verið nefnt öðru nafni áður, einhvers konar heimspeki eða svoleiðis. Félagsfræði, mannfræði og félagsfræðilegar rannsóknir eru í stóru myndinni og mannkynssögulegu samhengi tiltölulega nýtilkomnar. Þekkingu okkar á mannlegri hegðun hefur fleygt gríðarlega fram. Þar hefur þekking aukist á því hvers vegna fólk t.d. brýtur af sér, hvers vegna það hegðar sér eins og það gerir, hvernig við eigum að fá það til að hegða sér einhvern veginn öðruvísi. Í rauninni er útkoman úr þeim rannsóknum, ef ég á að gerast svo gróf að súmmera bara öll félagsvísindi upp í tvær, þrjár setningar — þá er flissað í salnum, eðlilega — að refsingar, það að beita refsingum til að hafa áhrif á hegðun fólks, er bara ekkert sérstaklega góð leið. Það er hvorki skilvirk aðferð né góð til lengri tíma litið. Hún er jafnvel skaðlegri heldur en gagnleg. Þetta sjáum við líka í því hvernig t.d. uppeldisfræðikenningar hafa þróast á undanförnum árum. Það er ekki lengur talið árangursríkt eða uppbyggilegt að refsa börnum fyrir að hegða sér illa heldur eigum við að reyna að skilja hvers vegna þau gera það sem þau gera og reyna að ráðast að rótum vandans.

Nú er ég alveg að falla á tíma en mig langar að segja varðandi þetta, eins og ég nefndi áðan, að í stað þess að vera alltaf að þurrka upp lekann þá eigum við að reyna að skrúfa fyrir hann og breyta þessum hugmyndum. Það fyrsta sem við þurfum að gera til þess að komast áfram í þeirri vinnu er að gera okkur grein fyrir því að refsingar eru ekki lausn, allra síst fangelsisrefsingar. Þær eru ekki lausn, þær eru ekki úrræði, þær eru úrræðaleysi. Þetta á við um fleiri brot en hafa verið nefnd í þessu samhengi hingað til. Okkur er tíðrætt um þetta sannarlega í Pírötum í tengslum við refsingu fólks með vímuefnavanda sem er náttúrlega fráleitt á svo margan hátt að þeirri umræðu ætti að vera löngu lokið. Við ættum að vera löngu komin yfir þann kafla. En þetta á við um fleiri brotaflokka. Nú er verið að tala um að ofbeldi sé að aukast í samfélaginu og annað. Það kemur ekki úr lausu lofti. Lausnin á því er ekki meira ofbeldi af hálfu lögreglu, meiri peningar í rafbyssur og annað og hærri girðingar og þykkari múrar. Það er ekki lausnin, það er ekki úrræði, það er úrræðaleysi. Þetta er það sem mig langar svolítið til að skilja eftir hérna eftir þessa ræðu mína, þ.e. við erum alltaf að vasast í einhverju úrræðaleysi en við þurfum að fara að hugsa vandann frá rótum. Það er ekki bara betra fyrir okkur sem samfélag og fyrir allt fólk sem mannfólk heldur er það fjárhagslega hagkvæmara.