fjárlög 2023.
Forseti. Það er ljóst að við lifum á óvenjulegum tímum. Við erum nýfarin í gegnum einhvern stærsta faraldur sem við höfum séð í heiminum í 100 ár og í ofanálag erum við að sjá stríðsátök í Evrópu í fyrsta skipti í áratugi. Það er kreppa á orkumörkuðum og samverkandi leiða þessir þættir til þess að verðbólga hefur orðið meiri og meira viðvarandi í heiminum en við höfum séð mjög lengi, raunar þarf að fara marga áratugi aftur í tímann til að finna sambærilegt ástand. Ísland hefur ekki farið varhluta af þessu en er þó á margan hátt í þokkalegu skjóli hvað varðar erfiðustu áskoranirnar sem þessu ástandi fylgja og hefur það fyrst og fremst með það að gera að útflutningur Íslands, framleiðsla á Íslandi, einkennist af framleiðslu á vörum sem frekar njóta góðs en tapa á þessari þróun, þ.e. bæði útflutningur á matvælum og orkufrekum iðnaðarvörum.
Því hefur Ísland búið við hagvöxt í kjölfar Covid og næga atvinnu. Hins vegar er mjög alvarleg staða uppi í efnahagsmálum. Verðbólga hefur aftur látið á sér kræla eftir að hafa verið nokkuð viðráðanleg um langt skeið, raunar frá því fljótlega eftir efnahagshrun. Það er veruleg þensla sem birtist einmitt að hluta í þessari verðbólgu sem ég nefndi áðan en líka í tölum um lágt atvinnuleysi, í öðrum mælikvörðum sem snúa að framleiðslugetu hagkerfisins. Við búum á sama tíma við mikla óvissu á alþjóðamörkuðum. Viðskiptahalli hefur verið að aukast, sem er viðsnúningur frá raunar öllu tímabilinu eftir hrun, og krónan hefur verið að veikjast þó svo að það séu kannski minna fréttnæm tíðindi en önnur. Þess vegna er mjög mikilvægt að staldra aðeins við og velta fyrir sér hvar stóru og litlu hagsmunirnir eru og hvað þurfi að gera; hverju er mikilvægt að við forgangsröðum, hverju við getum horft fram hjá og hverju við þurfum að bregðast við. Ástæðan fyrir því að ég kem hér upp og kveð mér hljóðs í umræðum um fjárlög er að það er mjög mikilvægt í þessu ástandi að ríkið spili með og gæti langtímahagsmuna samfélagsins, falli ekki í þá freistni að halda að þetta ástand muni leysa sig sjálft eða að það sé á annarra ábyrgð heldur axli þá ábyrgð sem því er falin og stuðli að lausn vandans. Þar stöndum við nokkuð höllum fæti vegna þess að því miður var ástandið þannig að fyrir Covid-faraldurinn var þegar orðinn halli á rekstri ríkisins. Til viðbótar hefur sá hallarekstur auðvitað leitt til þess að vaxtagjöld ríkisins hafa aukist og aukning og hækkandi verðbólga og hækkun vaxta í heiminum leiðir til þess að vaxtakostnaður íslenska ríkisins hefur hækkað mjög mikið á mjög skömmum tíma. Það er athyglisvert að velta fyrir sér að þótt íslensk stjórnvöld stæri sig oft af því að ríkisskuldir á Íslandi séu hóflegar, sem er vissulega rétt, þá eru vaxtagjöld á Íslandi algjörlega úr öllu hófi. Raunar er það þannig að Ísland á met innan OECD í vaxtaútgjöldum hins opinbera.
Til samanburðar getum við tekið gríska ríkið sem fáum þykir sennilega upphefð í að bera sig saman við. Ríkisskuldir Grikklands eru þrisvar sinnum hærri en ríkisskuldir Íslands en vaxtabyrðin er lægri. Það er mikilvægt að hafa í huga þegar hugsað er til reksturs hins opinbera að grundvallarreglurnar um hegðun hins opinbera eru ekkert endilega þær sömu og við myndum beita á okkur sjálf. Ástæðan er sú að ríkið mun t.d. aldrei fara á eftirlaun, mun ekki deyja á neinum fyrirsjáanlegum tímapunkti, fylgir engri slíkri náttúrulegri hringrás og fylgir raunverulega einhvers konar eilífðaræskuþróun þar sem tekjur þess hækka ár frá ári, ár eftir ár, með fáum undantekningum; þetta sem við að jafnaði köllum hagvöxt. Skuldir ríkisins eru þess vegna ekki eins og skuldir einstaklings sem á einhverjum tímapunkti þarf endilega að greiða upp eða þurfa á einhverjum tímapunkti að verða að núlli. Á endanum snýst lántaka ríkisins fyrst og fremst um það hvort féð sem tekið er að láni sé hægt að ávaxta með hætti sem réttlætir lántökukostnaðinn til verkefna í þágu samfélagsins.
Því er ég ekki hingað kominn til að mæla með því að skuldir ríkisins séu greiddar upp. Ég er hins vegar að benda á að það sem takmarkar getu ríkisins til að standa straum af lántökukostnaði sínum er ábati þeirra verkefna sem fjárfest er í. Ríki sem býr við viðvarandi hærri vaxtakostnað hefur úr færri slíkum verkefnum að velja en ríki sem gerir það ekki og heildarrými ríkis sem býr við viðvarandi háan vaxtakostnað til lántöku er minna heldur en ríkis sem býr við lága vexti. Það að ná tökum á hagkerfinu og tryggja hér stöðugleika sem leitt gæti til lægri vaxta er gríðarlegt hagsmunamál, bæði fyrir heimilin og ríkið; rekstur og getu ríkisins til að sinna nauðsynlegum verkefnum í þágu þjóðarinnar. Því umfangsmeiri sem vaxtagjöldin eru — eins og hér var vikið að áðan eru þau hvergi innan OECD umfangsmeiri en á Íslandi — því minna er svigrúmið til að sinna öðrum verkefnum. Á endanum skiptir það öllu máli.
Að öllu þessu sögðu eru það þess vegna veruleg vonbrigði hve lítill áhugi og áhersla, alla vega í verki, hefur verið á að ríkið styðji verkefni Seðlabankans í að tryggja hér stöðugleika. Tilfellið er að geta Seðlabankans til að stemma stigu við þensluástandi er takmörkuð. Hún er ekki óendanleg og því harðar sem Seðlabankinn þarf að taka á — ég vil í þessu sambandi minna á að vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands eru meiri en vaxtahækkanir nokkurra annarra seðlabanka sem við berum okkur saman við — því meira sem þarf að beita því tæki, því sársaukafyllra er það fyrir þá sem það bitnar á. Á Íslandi er það þannig og hefur sögulega verið þannig að í sjálfu sér verður mjög lítill hluti samfélagsins fyrir beinum áhrifum af vaxtaákvörðunum Seðlabankans. Sá hópur hefur eitthvað stækkað en langsamlega flest okkar búa við þokkalegt skjól frá þessum ákvörðunum. Allir þeir sem t.d. taka lán með annaðhvort föstum vöxtum, sem eru festir til einhvers tíma, eða hafa tekið verðtryggð lán sem að jafnaði voru ríkjandi á íslenskum fasteignamarkaði eru að mestu í skjóli frá þessum ákvörðunum.
Ef hlutverk Seðlabankans er að skapa væntingar um stöðugleika með að hækka fjármagnskostnað en þeir sem verða fyrir hækkunum á fjármagnskostnaði eru mjög þröngur hópur í samfélaginu, þá blasir við að þar sé farið fram af allnokkurri óbilgirni gagnvart þeim hópi. Menn geta velt fyrir sér hvort sanngjarnt sé að kostnaðinum af stöðugleika, ósk okkar allra, sé velt yfir á lítinn hóp yngri lántaka á húsnæðismarkaði og nokkurra annarra meðan flestir aðrir sleppa. Þarna kemur þá aftur að þessu með hlutverk ríkisins. Ef ríkið ætlar að standa sig í því hlutverki að tryggja stöðugleika þarf það að axla ábyrgð með Seðlabankanum í að stuðla að þeim stöðugleika með því að draga úr eigin umsvifum á tímum sem þeim sem við lifum núna. Því miður sér þess ekki fyllilega stað í því fjárlagafrumvarpi sem hér er til umræðu.
Hvað er til ráða? Ísland getur annaðhvort reynt að læra af eigin sögu eða sögu annarra. Tilfellið er að Ísland á sér langa sögu, ég myndi kannski ekki segja slælegrar en lítið agaðrar hagstjórnar sem varð til þess að hér varð viðvarandi há verðbólga um margra áratuga skeið með tilheyrandi vandamálum sem margir muna enn þótt alllangt sé síðan böndum var komið á þá þróun. Hvernig var það gert? Jú, það er nefnilega þannig að ef raunverulega á að takast á við verðbólgu þá þarf að vera nokkuð breið sátt um að það sé markmið sem megi eyða einhverju í. Á sínum tíma voru það hinir svokölluðu þjóðarsáttarsamningar, sem voru tilraun til þríhliða samninga milli verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og ríkisins um að stefna að stöðugleika.
Ísland er ekki eina ríkið sem gekk í gegnum þetta og raunar var það þannig að öll skandinavísku ríkin voru að ganga í gegnum sambærileg vandamál, þó ekki eins umfangsmikil og á Íslandi, á svipuðum tíma. Munurinn á okkur og hinum Norðurlöndunum er fyrst og fremst sá að þau héldu áfram með líkanið og halda sig við það enn þá meðan við höfum slegið í og úr, þó aðallega úr.
Það er athyglisvert að velta fyrir sér að ef borin eru saman þessi fjögur hagkerfi á Norðurlöndunum þá búa þau öll við mjög mismunandi ytri skilyrði. Finnland er í Evrópusambandinu með evru. Danmörk er í Evrópusambandinu með danska krónu — einhver gæti sagt að danska krónan væri lítið annað en önnur prentuð útgáfa af evrunni, en samt sem áður. Svíþjóð er í Evrópusambandinu með fljótandi sænska krónu. Noregur er eins og við, utan Evrópusambandsins með fljótandi norska krónu. Allir gjaldmiðlarnir eru stöðugri heldur en íslenska krónan.
Við getum ekki þar af leiðandi dregið þá ályktun að það sé endilega krónan sem er vandamálið. Ég gæti haldið hér langa ræðu um það að hún sé vandamálið að því leyti að hún stuðli ekki að agaðri hagstjórn á Íslandi en hún er í sjálfu sér ekki vandamálið. Það væri mögulegt, ég skal fyrstur manna viðurkenna það, að ná hér stöðugleika með krónunni en þá þyrfti agaðri hagstjórn þar sem stöðugt væri verið að horfa til þess að tryggja langtíma stígandi lukku frekar en æðisgengin neysluköst með ægilegum timburmönnum á eftir. Lærdómurinn af bæði þjóðarsáttinni og reynslu Skandinava af því sem við getum kallað viðvarandi þjóðarsátt þar er að sú leið sé betri; að kostnaðurinn sem við upplifðum á áttunda og níunda áratugnum af aðhaldslítilli hagstjórn og verðbólgu var mjög verulegur og er hugsanlega á þeirri leið að verða meiri núna til lengri tíma en hann var þá vegna þess að stoðirnar undir íslenska hagkerfinu í dag eru viðkvæmari fyrir sveiflum heldur en stoðirnar sem voru undir íslenska hagkerfinu á áttunda og níunda áratugnum. Þá vitna ég sérstaklega til þess sem kallað hefur verið fjórða stoðin, sem er samansafn af alls kyns greinum sem byggja á íslensku hugviti og útflutningi á íslensku hugviti, hvort sem það er í formi tæknilausna eða listsköpunar.
Í dag standa yfir kjarasamningar, viðræður milli atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar. Margt benti til þess að þær viðræður yrðu erfiðar, sérstaklega vegna þess að það er ljóst að svigrúmið til verulegra launahækkana sem ekki hafa neikvæð áhrif fyrir stöðugleika til lengri tíma er takmarkað. Auðvitað er það erfitt og sérstaklega fyrir þá hópa sem ég nefndi áðan, sem hafa dregið jókerinn í þessu spili þar sem Seðlabankinn einn á að standa undir stöðugleikanum, þ.e. ungt fólk og efnaminna sem þarf með einum eða öðrum hætti að fóta sig í hrikalegum hækkunum á fasteignamarkaði.
Það er mjög athyglisvert að fylgjast með orðræðu í kringum þessa kjarasamninga. Sérstaklega hef ég hoggið eftir viðtölum við hæstv. fjármálaráðherra sem hefur kveðið mjög fast að orði varðandi mikilvægi þess að samið verði um hóflegar launahækkanir. Það verður því að segjast alveg eins og er að það kemur verulega á óvart þegar aðkoma ríkisins að kjarasamningum er eins umfangsmikil og raun ber vitni og virðist vera í uppsiglingu, því ég get með engu móti skilið að það skipti launþega máli hvort viðbótarráðstöfunartekjur þeirra komi í formi greiðslna frá ríkinu eða vinnuveitendum. Þensluáhrifin eru þau sömu. Nú getur vel verið og færa má fyrir því sannfærandi rök að þær breytingar sem lagðar eru til í tengslum við að liðka fyrir kjarasamningum séu skynsamlegar mótvægisaðgerðir til að draga úr neikvæðum afleiðingum verðbólgu og vaxtahækkana á heimilin í landinu, sérstaklega þau sem verst eru sett, en á móti þyrfti að gera þá skýru kröfu að ríkið dragi saman annars staðar.
Mig langar að benda hér á nokkrar staðreyndir sem hægt er að fletta upp á hinum ágæta vef Hagstofu Íslands. Þær tölur sem ég ætla að grípa í hér eru úr vinnumarkaðsrannsókn en samkvæmt þeim tölum hefur starfsmönnum sem við getum sagt að séu í kjarnaþjónustu hins opinbera fjölgað um 15% frá því fyrir heimsfaraldur. Á sama tíma hefur störfum á vinnumarkaði fækkað um 2%. Nú gætu menn auðvitað sagt: Var það ekki alltaf markmiðið með aðgerðum ríkisins í Covid að bregðast við samdrætti í atvinnulífinu með því að ráðast í verkefni, manna verkefni sem þurfti að manna með höndum sem voru viljugar til þess? Það er alveg 100% rétt. Vandamálið er hins vegar að engin merki eru um að ríkið ætli að bakka neitt til baka með þessa starfsmannaaukningu sína. Það er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að kostnaðurinn við hana hleypur á tugum milljarða. Það er skortur á vinnuafli, þensluástand, og einhvern veginn komst nú ríkið af árið 2019 með færri starfsmenn. Líka væri hægt að gera að umtalsefni fjölgun heilbrigðisstarfsmanna en þeir sem fylgjast með umræðu á Íslandi vita að þar var og er uppsöfnuð þörf sem ekki er líkleg til að minnka neitt og er þess vegna ólíklegt að stórfenglegir þjóðhagslegir ávinningar séu í því að fækka starfsmönnum þar. Séu ríki og sveitarfélög tekin saman hefur starfsmönnum þeirra fjölgað um 4.100 á þessu stutta tímabili. Nú þegar næg verkefni bjóðast þessum starfsmönnum annars staðar þarf ríkið að sýna að það geti axlað ábyrgð á stöðugleika og dregið úr útgjöldum þar sem það er mögulegt. Hvað er til ráða? Hvað þarf ríkið að gera? Hvar getum við stutt það sameiginlega verkefni okkar að byggja samfélagið upp skref fyrir skref frekar en að halda áfram í þeirri rússíbanareið sem oft hefur einkennt þróun íslensks efnahagslífs?
Í fyrsta lagi, vegna þeirrar stöðu sem er uppi og hárrar vaxtabyrði hins opinbera, er mikilvægt að ríkið sýni aðhald og dragi þannig úr þenslu, greiði niður skuldir og skapi þar með svigrúm inn í framtíðina til að sinna fleiri verkefnum betur. Augljóslega þarf að setja aukinn fókus eða setja fókusinn að nýju á breytingar á því vinnumarkaðslíkani sem ríkjandi hefur verið á Íslandi. Það er ekki einfalt verkefni og það er alveg ljóst að margir telja sennilega sínum hlut betur borgið í því kerfi sem við höfum búið við. Hins vegar, hvort sem við skoðum skiptingu milli ólíkra stétta innan hinna norrænu þjóðanna, tekjudreifingu eða Gini-stuðla sem eru mælikvarðar á ójöfnuð, þá höfum við ekki náð betri árangri með okkar líkani en þær hafa hjá sér — þvert á móti, ef eitthvað er. Við þurfum að viðhalda áherslu á að Ísland sé opið samfélag í samfélagi þjóðanna. Hvort sem við erum sammála þar um minni eða stærri skref, þá þurfum við að vera meðvituð um það að hér er einungis gott að búa ef við eigum í opnum samskiptum og viðskiptum við nágrannaríki okkar og svo sem þjóðir heimsins.
Að síðustu þarf að stuðla að skilvirkni og sérstaklega er mikilvægt að horfa til einföldunar regluverks. Í samhengi þjóða heimsins er Ísland lítið land með fáa íbúa. Við höfum hins vegar verið sjálfstæð þjóð býsna lengi, getum raunar sagt í rúmlega 100 ár ef við miðum við 1918 í því samhengi. Margt hefur gengið ágætlega. Lífskjör hér eru mjög ágætlega sambærileg við það sem gerist í nágrannalöndunum. Mælikvarðar fyrir velferð koma þokkalega út, jöfnuðarmælikvarðar koma þokkalega út en hins vegar er vandamál sem við ræðum sjaldan en þyrftum hugsanlega að ræða meira, þ.e. að mannfæðin setur okkur takmörk í því flækjustigi sem við getum haft á samfélaginu. Á endanum koma þeir sem eiga að vinna í verkefnum hins opinbera í að sinna regluverki, að fylgja eftir reglum, bara í heilum einingum sem einstaklingar. Þeim verður ekki skipt upp eða dreift. Þetta þýðir auðvitað líka að ef við miðum okkar löggjöf og regluverk við fyrirkomulag sem tekið er að láni frá nágrannalöndunum lendum við oft í því að við getum ekki mannað verkefnin.
Það er ágætt að taka dæmisögur og ég get í sjálfu sér tekið dæmisögu. Ég lærði í Noregi og þegar ég hafði lokið námi fékk ég verkefni fyrir norska landbúnaðarráðuneytið. Á fundunum þar sat ég með sérfræðingunum á því fagsviði sem ég var að vinna á, sem voru þrír. Þessir sérfræðingar voru auðvitað, eins og fólk er, sumir mjög góðir og aðrir síðri. Þegar ég kom heim til Íslands að loknu námi fékk ég sambærileg verkefni fyrir íslenska landbúnaðarráðuneytið. Sérfræðingarnir sem ég mætti þar, hið mætasta fólk, voru einir á sínu fagsviði og ekki nóg með það heldur þurftu þeir að sinna þremur öðrum. Í Noregi, þar sem voru þrír sérfræðingar um hvert fagsvið, voru 0,3 sérfræðingar á Íslandi. Þetta hefur afleiðingar fyrir hversu mikill sérfræðingur Íslendingurinn getur verið af því að hann þarf þrátt fyrir allt að kunna á hin tvö fagsviðin líka. Þetta hefur afleiðingar sem leiðir til þunnt smurðrar stjórnsýslu, yfirleitt yfirlestaðrar, sem sinnir verkefnum sem 10, 100 og 1.000 sinnum stærri einingar sinna annars staðar. Ef við ætlum að taka þetta vandamál alvarlega getum við annaðhvort reynt að útvista verkefnum, það væri auðvitað mögulegt og hér stend ég sem fulltrúi flokks sem sannarlega hefur viljað skoða þá leið, eða ef við viljum það ekki, eins og því miður er ríkjandi viðhorf meiri hluta alþingismanna, að taka þá ábyrgð á því að einfalda regluverkið, einfalda flækjustigið þannig að við getum mannað verkefnin og sinnt þeim skikkanlega. Það þýðir að regluverkið verður ekki eins nákvæmt en líka að við fáum miklu betri rekstur og skilvirkari.
Að lokum þá stöndum við frammi fyrir miklu óvissuástandi. Þrátt fyrir að margir af hagvísum Íslands líti ágætlega út þá líta aðrir mun verr út, sérstaklega þeir sem snúa að viðskiptahalla annars vegar og þenslu og verðbólgu hins vegar. Ríkið verður að axla ábyrgð og taka á þessum vanda ef ekki á að taka við áratugur glataðra tækifæra eins og gerðist við sambærileg skilyrði á áttunda áratugnum í kjölfar þeirrar orkukreppu sem þá var uppi. Ef ekki verður tekið á þessu núna verður kostnaðurinn gríðarlegur í formi glataðra tækifæra framtíðarinnar. Ábyrgðin er okkar, núna.