153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:34]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar til að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir alveg æðislega ræðu. Ég fékk svo mikið þessa upplifun: Já, einmitt, alveg rétt; sérstaklega í lokin þar sem hv. þingmaður var að tala um sérfræðikunnáttuna hér á landi. Maður fær svo mikið á tilfinninguna hversu fáliðuð við erum í þessari faglegu stjórnsýslu sem á að sinna þessum gríðarlega umfangsmiklu verkefnum. Ég velti fyrir mér hvort einfaldara regluverk hvað það varðar leiði endilega til meiri skilvirkni í rekstri af því að það þarf líka að passa upp á gæðastjórnun. Það er alveg flókið án nákvæms regluverks en það er samt hægt að gera það skilvirkt og meira sjálfvirkt líka. Það er kannski hægt að fara aðeins út í það.

Varðandi vaxtagjöldin, sem eru ástæðan fyrir því að ég vildi spjalla aðeins við hv. þingmann í andsvörum — hann fór að vísu yfir kostnaðinn við krónuna og hvernig það er ekki nauðsynlega krónan sem er ástæðan fyrir háum vöxtum, þó að hún geti verið það að einhverjum hluta — þá snýst þetta líka um lífeyriskerfið. Ég upplifi alla vega, þegar ég er að skoða svona fjárlagaumræðuna, þó nokkur atriði í íslenska hagkerfinu og hvernig haldið er á málum hérna; að lífeyriskerfið virðist vera að halda uppi háum vaxtakostnaði. Dæmi um það eru t.d. háir vextir hjá ÍL-sjóði sem voru rétt rúmlega ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna, ávöxtunarkrafan var 3,5% og vextirnir voru 3,75% verðtryggt fyrir ÍL-sjóð eða Íbúðalánasjóð, en líka hvernig langdýrasta lánið sem var veitt eftir hrun var til lífeyrissjóða, einfaldlega til þess í rauninni að verja svolítið þeirra stöðu í hruninu. Þetta er alla vega tilfinningin sem maður fær þótt það sé ekki sagt upphátt.