fjárlög 2023.
Forseti. Ég þakka fyrir ágætar spurningar. Varðandi fyrri spurninguna þá held ég að þau kerfi sem Ísland hefur smíðað algerlega heima og hafa orðið til með pragmatískum hætti þar sem raunhæfra lausna hefur verið leitað umfram allt annað sýni að við getum náð verulegum árangri. Ég vil í þessu samhengi nefna fiskveiðistjórnarkerfið. Þrátt fyrir gallana sem því fylgja þá sýnir alþjóðlegur samanburður að hlutfall rekstrarkostnaðar kerfisins af verðmæti landaðs afla er með því allra besta í heiminum, ef ekki það besta. Vel má vera að mig vanti mælingar þar sem einhvers staðar gætu leynst góðir punktar en samanborið við gjörsamlega öll nágrannalönd erum við með mjög ódýrt og til þess að gera mjög skilvirkt kerfi, þrátt fyrir aðra hugsanlega galla þess.
Varðandi seinni spurninguna þá ætti það auðvitað ekki að vera þannig að aukinn þjóðhagslegur sparnaður leiði endilega til hærri vaxta, meira að segja þetta með að það standi í lögum einhvers staðar að lífeyrissjóðirnir eigi að skila einhverri ákveðinni ávöxtun. Ég skil ekki alveg hvernig það á endilega að leiða til viðvarandi hærra vaxtastigs á Íslandi vegna þess að á endanum þarf einhver að vera tilbúinn að greiða vextina og því meira sparifé sem er til þá segir lögmál markaðarins að það ætti að vera hvati til þess að fá einhverja vexti frekar en enga. Því ætti það að vera þannig að það hafi í sjálfu sér ekki áhrif. Ég ætla samt að halda til haga að það er mjög gott að hv. þingmaður nefni lífeyrissjóðina vegna þess að þar eru sjálfstæð vandamál. Stærð þeirra í íslenska hagkerfinu er orðið verulegt áhyggjuefni.