153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:39]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Stærð lífeyrissjóðanna er einmitt baggi sem við erum með á bakinu sem stækkar og stækkar og hann þarf að ávaxta sig til að tryggingafræðilegir útreikningar standist til framtíðar. Annars værum við með brostið lífeyrissjóðakerfi sem veitir ekki þau réttindi sem við búumst við núna. Það býr í rauninni til þörf á þessu vaxtastigi sem er miðað við, myndi maður ætla, þótt það sé kannski ekki sagt upphátt eða enginn þori að viðurkenna það. Án þeirrar ávöxtunar fellur það dálítið um sjálft sig, alla vega miðað við þau réttindi sem við búumst við.

Annað sem mig langar til að kroppa svolítið í í ræðu hv. þingmanns eru stýrivaxtahækkanirnar. Þegar verið er að hækka stýrivexti þá er ekki bara verið að hafa áhrif á þau lán sem er verið að fara að taka, reyna að hægja á einhverri þenslu og stöðva hana í sporunum, heldur er búið þannig um hnútana að það hefur áhrif á það lánasafn sem er þegar til staðar. Það er spurning hvort það sé ekki ákveðinn forsendubrestur í rauninni. Við upplifum nefnilega að við fáum ekki eins og aðrar þjóðir að ef þú tekur lán séu afborganir svona, punktur. Við þurfum að glíma við einhverja breytilega vexti sem eru rosalega spes. Stýrivextirnir verða þá líka hálfinnbyggðir í verðbólguna sem óbeint hefur þá náttúrlega áhrif á lánin. Þótt vextirnir sjálfir séu fastir þá hafa stýrivaxtaákvarðanir áhrif á ýmislegt annað sem ýtir þá undir verðbólguáhrifin á lánin, t.d. hvernig stýrivextir voru hækkaðir fyrir hrun. Þeir fóru upp í hvaða, rúmlega 18%? (Forseti hringir.) Þeir höfðu einhvern veginn engin áhrif af því að það var líka verið að fara fram hjá kerfinu á einhvern ákveðinn hátt og það kom allt niður á þeim sem voru með þetta stóra lánasafn. Alla vega langar mig til að spyrja hv. þingmann aðeins um þetta.