153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:41]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V) (andsvar):

Forseti. Þetta eru ljómandi góðar spurningar og raunar held ég að mikil þörf væri á því að hér í þessum sal væri tekin alvarleg umræða um framtíð lífeyrissjóðakerfisins. Fyrir mér er þetta þannig að við stærum okkur af uppsöfnunarkerfi og lítum niður á gegnumstreymiskerfi nágrannalandanna. En uppsöfnunarkerfi sem fjárfestir eingöngu í ríkisskuldabréfum er í sjálfu sér bara gegnumstreymiskerfi. Svo getum við sagt: Ókei, uppsöfnunarkerfi sem fjárfestir bara innan íslenska hagkerfisins, í ljósi þess að eiginlega allt sem ég ætla að eyða ellilífeyri mínum í er meira og minna innflutt, er þá líka krafa á sömu tekjustrauma og ríkið myndi þurfa að nota til að fjármagna endurgreiðslur ríkisskuldabréfa í framtíðinni. Við erum aftur komin í eins konar gegnumstreymiskerfi. Stóra vandamálið okkar er að mínu mati að við gáðum ekki að okkur og byrjuðum að fóðra barn sem við vissum ekki alveg hverra manna væri. Það breyttist smám saman í risa og nú kemst það ekki út úr húsinu. Við getum ekki hleypt þeim út eins og við þurfum að gera. Ég hefði viljað sjá miklu agressífari áætlun um að hleypa lífeyrissjóðunum út úr íslenska hagkerfinu heldur en hér var samþykkt á þessu ári. Við getum sagt að þarna séu alla vega veruleg vandamál. Ég verð hins vegar að viðurkenna að ég sé ekki alveg hvernig aukið framboð á lánsfjármagni á Íslandi leiði endilega til hærri vaxta en látum það liggja milli hluta.

Varðandi stýrivaxtahækkunina, ef við berum okkur saman við Svíþjóð og Noreg — raunar getum við tekið Danmörku líka en það er pínulítið flóknara — sem eru með sjálfstæða peningastefnu, þá er það þannig að langsamlega stærstur hluti húsnæðiseigenda, lántaka, er með fljótandi vexti. Það þýðir að allar breytingar, óverulegar, sem gerðar eru á vaxtakjörum eru raunverulega eins og tekjuskattshækkanir. (Forseti hringir.) Þær bitna bókstaflega á öllum sem skulda peninga og þess vegna er það tæki öflugra þar en hjá okkur.