153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[12:44]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég held mér sé óhætt að segja að það ríki þjóðarsátt um sterkt opinbert heilbrigðiskerfi. Sú þjóðarsátt birtist ítrekað í könnunum en einnig í einni fjölmennustu undirskriftasöfnun sögunnar þegar tæplega 90.000 manns skrifuðu undir þá áskorun að við færðum íslenskt heilbrigðiskerfi í átt að því sem þekkist í þeim velferðarríkjum sem við viljum alla jafna bera okkur saman við. Í þeirri undirskriftasöfnun var krafist framlags úr ríkissjóði til heilbrigðiskerfisins sem samsvarar 11% af vergri landsframleiðslu en það er í samræmi við það sem þekkist í Svíþjóð og nærri því sem Norðmenn og Danir leggja til málaflokksins. Þetta, herra forseti, var árið 2016.

Þegar OECD birti nýjustu skýrslu sína árið 2019 um framlag aðildarríkja OECD til heilbrigðismála kom í ljós að Ísland, hið ríka Ísland, var fyrir neðan meðaltal ríkjanna með einungis 8,3% af vergri landsframleiðslu til heilbrigðiskerfisins. Fjármálaráðherra kom fram og svaraði athugasemdum um vanfjármagnað heilbrigðiskerfi með stöðluðu svari: Við erum að gera svo mikið, við höfum stóraukið við. En bætti svo líka við þegar á hann var gengið að það væri auðvitað bara eitthvað stórkostlega mikið að kerfi sem tæki sífellt meira við en það væri samt alltaf verið að kvarta. Þá hafa hæstv. forsætisráðherra og hæstv. heilbrigðisráðherra, hvort tveggja í þessari ríkisstjórn sem og á síðasta kjörtímabili, ítrekað að það sé samt verið að gera svo mikið, að það sé búið að gera meira en einu sinni var, þau séu að auka við og þess vegna megi ekki benda á hversu órafjarri við erum því að standa með því heilbrigðiskerfi sem við getum sagt að sé þjóðarsátt um að reka, þ.e. sterkt opinbert heilbrigðiskerfi að norrænni fyrirmynd þannig að jafnræðis sé gætt meðal þegna þjóðarinnar, þannig að við höfum jafnt aðgengi að heilbrigðiskerfinu hver sem staða okkar og stétt er eða hvar sem við búum. Í kjölfar fordæmalausrar innspýtingar í heilbrigðiskerfið vegna heimsfaraldurs höfum við náð að hífa framlagið upp í svona 8,5% af vergri landsframleiðslu, þannig að það er enn langt í land með að ná viðmiðinu um 11%. Ef við vildum efla heilbrigðiskerfið eins og þjóðarsáttin segir til um og eins og Norðurlöndin eru að gera þetta þá þyrftum við að auka framlagið úr ríkissjóði um 97 milljarða kr. Þetta eru háar fjárhæðir, herra forseti, en við þurfum samt að átta okkur á þessu umfangi og við þurfum að átta okkur á þeirri skerðingu sem stjórnmálin og ríkisstjórnir síðustu ára bera ábyrgð á. — Það er fallegt hvernig við fáum að vera í ákveðnu diskói hérna.

(Forseti (AIJ): Fjölbreytilegir fundir. Forseti vonar að þetta …)

Þetta er áhugavert. Það er kannski hluti af innviðunum og hvernig þeir eru vanræktir í tíð þessarar ríkisstjórnar, að rafmagnið sé svo óstabílt að hér blikki ljósin.

97 milljarðar króna þyrftu að koma til til að við myndum færast í átt að norrænu ríkjunum og þeirra velferðarkerfi, til að tryggja öruggt heilbrigðiskerfi, eða hvað? Aðspurður um veika stöðu heilbrigðiskerfisins kom fram hjá hæstv. fjármálaráðherra að hann telur lausnina felast í einkavæðingu. Og hver er staðan? Í vikunni bárust okkur þær fregnir að forstjóri Sjúkratrygginga Íslands hefði sagt upp starfi sínu vegna sveltistefnu ríkisstjórnarinnar. María gerði það þar sem stofnuninni væri ekki gert kleift að rækja sínar lögbundnu skyldur. Í gær bárust okkur þær fregnir að skurðstofur þjóðarsjúkrahússins, Landspítala – háskólasjúkrahúss, stæðu tómar þar sem það væri ekki hægt að manna þær með nauðsynlegum hætti. Í gær bárust okkur einnig þær fréttir að biðlistar eftir skurðaðgerðum á Landspítalanum hafa meira en tvöfaldast á þremur árum en samt eru skurðstofurnar ekki reknar á fullum afköstum. Félag skurðlækna hefur eðlilega verulegar áhyggjur af þessari stöðu og segir formaður félagsins að brugðist hafi verið seint og illa við mönnunarvanda skurðstofustarfsfólks. Af 18 skurðstofum Landspítala eru almennt ekki nema 11–13 í notkun vegna mönnunarvanda. Þetta hefur eðlilega áhrif á biðlista. Þeim fjölgar hlutfallslega sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði eftir aðgerð samkvæmt nýlegri úttekt landlæknis. Biðlistar eftir aðgerð hafa meira en tvöfaldast frá árinu 2019 og eru allt að 8.000 sjúklingar með smærri og stærri heilbrigðisvandamál sem bíða eftir nauðsynlegri aðgerð. 8.000 sjúklingar á biðlistum. Við verðum líka að muna að það getur verið bið eftir því að komast á biðlista. Við verðum líka að átta okkur á því að áður en þú kemst til læknis til að láta greina hvort þú þurfir að komast í aðgerðina geturðu þurft að bíða mánuðum saman. Hvers vegna? Jú, vegna þess að stjórnvöld hafa líka vanrækt að gera samninga við lækna. Þau hafa líka vanrækt að tryggja að það sé nægilegur fjöldi lækna starfandi á landinu. Þessi staða er auðvitað algerlega óásættanleg. Formaður Félags skurðlækna minnti á það í fjölmiðlum í gær að á bak við hverja kennitölu á þessum biðlista væru sjúklingar með vandamál sem við gætum leyst eða bætt með skurðaðgerð en fólkið kæmist einfaldlega ekki að og að á bak við hverja kennitölu og hvern sjúkling væru fjölskyldur sem þyrftu að aðstoða sjúklinginn á meðan beðið væri. Sjúklingurinn verður vanvirkur, getur ekki sinnt sínum störfum eða öðrum daglegum skyldum sínum og þar fram eftir götunum. Þess vegna, herra forseti, er þetta samfélagslegt vandamál.

Þetta er hins vegar ekki náttúrulögmál, þetta er pólitísk ákvörðun og það er ekki hægt að kenna heimsfaraldri um stöðuna á skurðdeildunum af því að núna má keyra skurðdeildirnar á fullum afköstum. En það er ekki hægt vegna þess að það er pólitísk ákvörðun að vanfjármagna skurðdeildir þjóðarsjúkrahússins á Íslandi. Það vantar skurðhjúkrunarfræðinga til starfa og meðferð stjórnvalda á hjúkrunarfræðingum hefur fælt mjög marga hjúkrunarfræðinga frá störfum sínum. Það að neita þeim um samninga trekk í trekk og draga þá fyrir gerðardóm, ekki einu sinni heldur ítrekað, sendir þau skilaboð til hjúkrunarfræðinga að ríkisstjórnin meti það svo að það þurfi ekki að semja við þá. Og hæstv. fjármálaráðherra segir: Lausnirnar liggja í einkavæðingu. Það er auðvitað leiðin, þessi leið sem hæstv. fjármálaráðherra er að fara, eins og Noam Chomsky orðaði svo réttilega: Gullna leiðin að einkavæðingu er að byrja á að reka sveltistefnu, í kjölfarið búa svo um hnútana að hlutirnir hætti að virka svo notendur þjónustunnar, almenningur í landinu, verði reiðir gagnvart ástandinu, gagnvart heilbrigðiskerfinu og koma svo og ætla að leysa það með því að færa verkið til einkaaðila. Við höfum séð þetta áður, margsinnis. En það sem vekur athygli núna er að þetta er gert á vakt Katrínar Jakobsdóttur og Vinstri grænna í forsætisráðuneytinu, flokks sem einhvern tímann talaði fyrir sterku opinberu heilbrigðiskerfi en því miður þá virðist svo vera sem þau hafi ákveðið að eftirláta fjármálaráðherra algerlega hið pólitíska vald þegar kemur að uppbyggingu innviða á Íslandi. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson þarf að minna sig á það, svona í samhengi hlutanna, hvaðan fjármagnið kemur inn í einkareksturinn. Það er nefnilega svo að einkareknar heilbrigðisstofnanir semja við Sjúkratryggingar Íslands um reksturinn og það er reyndar sú stofnun sem hefur nú misst færan forstjóra sinn vegna áratugasveltistefnu hæstv. fjármálaráðherra. Ég held, herra forseti, svei mér þá að það sé fullreynt með Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðisflokkinn í embætti fjármálaráðherra. Ég held líka að það sé fullreynt með þessa ríkisstjórn af því að fylgiflokkar Sjálfstæðisflokksins virðast hafa misst kjarkinn til að tala fyrir eigin stefnu í málum hér á Alþingi, alla vega þeirri stefnu sem þeir voru kosnir út á. Það er bara ein leið sem er rekin hér og það er leið Sjálfstæðisflokksins sem vill einkavæða innviði landsins. Við hins vegar þurfum forystu í landinu sem þorir að takast á við nauðsynleg verkefni. Við þurfum að endurreisa laskað heilbrigðiskerfi og við þurfum að standa með því. Við þurfum að standa með heilbrigðisstarfsfólki. Við þurfum að standa með almenningi í landinu sem vill sterkt opinbert heilbrigðiskerfi og við viljum standa saman að því að greiða inn í okkar samneyslu til þess að geta staðið saman að þessu. Það er frumskylda okkar. Það er frumskylda okkar hér á Alþingi að tryggja að svo sé. Það er sérstaklega frumskylda ríkisstjórnarinnar sem tekur ákvörðun um að leggja fram fjárlög og í krafti meiri hluta þings fær þau samþykkt. Það er ekki frumskylda okkar að kasta til a.m.k. 2 milljörðum kr. í uppstokkun Stjórnarráðsins og fjölgun ráðherrastóla. Við skulum muna að 2 milljarðar var áætlaður kostnaður við fjölgunina í byrjun þessa árs, áætlaður kostnaður ef marka má svar hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn minni, en eins og við vitum þá eiga kostnaðaráætlanir ríkisstjórnarinnar það til að vera stórkostlega vanmetnar.

Við skulum taka þessa 2 milljarða sem ráðherrastólarnir kostuðu og setja þá í samhengi við aðrar tölur. 2 milljarðar til að fjölga stólum til samanburðar við 100 milljónir sem heilbrigðisráðherra sagði að Sjúkratryggingar fengju aukalega vegna vandans þar inni, stofnun sem gert er að halda áfram að reyna að ná samningum við sérgreinalækna t.d. og eiga í samningum um rekstur hjúkrunarheimila og annarra heilbrigðisstofnana hringinn í kringum landið. Tökum 2 milljarða í fjölgun ráðherrastóla og setjum í samhengi við auknar fjárveitingar núna í heilbrigðiskerfið, aukafjárveitingar til Landspítalans, sem er þjóðarsjúkrahúsið okkar, sem sér líka um innkaup á öllum lyfjum fyrir heilbrigðisstofnanir hringinn í kringum landið, aukafjárveiting til Sjúkrahússins á Akureyri og aukafjárveitingar til fyrsta viðkomustaðar alls fólks á Íslandi þegar kemur að heilbrigðismálum, þ.e. heilsugæslunnar hringinn í kringum landið. Aukafjárveitingar þangað núna, sem ríkisstjórnin hreykir sér af, til þessara þriggja aðila, Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og heilsugæslunnar hringinn í kringum landið, aukafjárveitingin þar er 4 milljarðar, 2 milljarðar í tvo viðbótarráðherrastóla, 4 milljarðar í þjóðarsjúkrahúsið, stærsta sjúkrahús á Norðurlandi sem sinnir Norður- og Austurlandi og allar heilsugæslustöðvar hringinn í kringum landið, öll lyfjakaup. Bara aukafjárframlagið sem þurfti til lyfjakaupa samkvæmt umsögn Landspítala við fjárlög, bara sú fjárhæð er 2 milljarðar, til að Landspítalinn yrði ekki að hætta lyfjainnkaupum og bæta engum nýjum sjúklingi við. Það voru 2 milljarðar. Saman fá þessir þrír rekstraraðilar, allar heilsugæslustöðvarnar, Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítali, 4 milljarða til viðbótar.

Það er svona sem maður kemur því í gegn að einkavæða allt kerfið. Heilbrigðiskerfið er laskað og það er ákvörðun, pólitísk ákvörðun ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, ríkisstjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ríkisstjórnin sendir hér inn fjárlög eftir fjárlög sem gera ekkert annað en að uppreikna fjárframlög fyrri ára, ára sem sýndu alvarlega veikleika í heilbrigðiskerfinu.

Fjármálaráðherra talar um betri stöðu ríkissjóðs en búist var við en sú staða er ekki nýtt til að bæta heilbrigðiskerfið, líkt og kallað hefur verið eftir úti um allt samfélag í fjölda ára heldur heldur ríkisstjórnin áfram að gera þá kröfu að heilbrigðisstarfsfólk hlaupi hraðar, taki á sig enn meira álag og geri meira fyrir minna, gerir þá kröfu að almenningur á Íslandi, 8.000 manns, þoli það að bíða á biðlistum eftir nauðsynlegri skurðaðgerð og allt samfélagið bíði eftir því að komast að hjá næsta lækni, hvort sem það er vegna líkamlegra krankleika eða geðrænna. Svar fjármálaráðherra: Einkavæðum, einkavæðum, einkavæðum. Eins og það sé einhver lausn. Það þarf að fjármagna kerfið. Það er engin lausn að einkavæða það bara. Fái hann sína blautu drauma um einkavætt heilbrigðiskerfi uppfyllta stöndum við uppi með miklu dýrara kerfi eins og við sjáum á skýrslu OECD þar sem hið einkavædda kerfi í Bandaríkjunum er dýrast af öllum, miklu miklu dýrara, þar sem hinir ríku sjúklingar geta fengið bót meina sinna með fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu á meðan hinir tekjulægri, barnmargar fjölskyldur, þeir sem á einhvern hátt eru að glíma við erfiðleika eða sjúkdóma, geta bara beðið heima.

Nei, herra forseti. Ég held að við ættum að skipta út úr þessari ríkisstjórn. Ég held að þetta sé fullreynt með Bjarna Benediktsson í stóli fjármálaráðherra.