fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi komið að ákveðnum kjarna málsins sem er að ríkisstjórnin líti svo á að heilbrigðisstarfsfólk sé það ástríðufullt fyrir starfi sínu að það sé bara einfaldlega til í að fórna sér fyrir það. En þá hljótum við að spyrja okkur: Hvað kallast það þegar gengið er svona á ástríðu fólks fyrir því að láta gott af sér leiða að fólk er keyrt í þrot? Hvað kallast það þegar sá sem valdið hefur neitar að viðurkenna mikilvægi og virði fólksins sem tekur við okkur á okkar verstu stundu? Hvers konar framkoma er það gagnvart fólkinu sem einmitt er að fórna sér vegna þeirrar ástríðu sinnar að vilja hjálpa fólki og hversu lengi getur svona framkoma eiginlega viðgengist? Það er búið að tala um neyðarástand í heilbrigðiskerfinu svo lengi. Það var mjög skýrt ákall um að það væri neyðarástand í heilbrigðiskerfinu fyrir Covid, hvað þá meðan á því stóð, og svo fáum við bara hvern ráðherrann á fætur öðrum hér upp að lýsa því yfir að það sé ekkert neyðarástand og það sé bara allt í lagi og það vanti bara einhverja lyftara inn í heilbrigðiskerfið, það vanti bara fallegri hugtök og einhver fallegri flæðirit eða einhverja betri hlaupaskó eða strigaskó fyrir fólkið til að hlaupa á. Hversu lengi getur svona hringrás af gaslýsingum, það má nota það orð, gengið áður en — ég veit ekki einu sinni hvaða orð ég á að nota af því að við erum nú þegar að horfa á neyðarástand?