fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Það er þetta virðingarleysi og ég held að það sé kannski það sem gerir líka hluta heilbrigðisstarfsfólks enn þá meira lúið og kveiki enn meira í því að fara annað. Ef við horfum t.d. á hjúkrunarfræðinga þá man ég að fyrir ekki svo löngu birti Félag hjúkrunarfræðinga tölur um að það væru milli 400 og 500 hjúkrunarfræðingar sem væru menntaðir í faginu sem hefðu horfið til annarra starfa, hjúkrunarfræðingar sem við höfum í sameiningu kostað til mennta með menntakerfi okkar. Það er auðvitað ótrúlega mikil sóun að við skulum þá ekki búa betur að þeim. Það var margt gott gert á síðasta kjörtímabili að einhverju leyti en að öðru leyti voru líka gerð mikil mistök. Af því að hv. þingmaður talaði um að það hafi verið neyðarköll fyrir Covid þá var það svo sannarlega svo og það er einmitt þess vegna sem við fórum í það, að mínu frumkvæði, að skoða kerfið í heild sinni í upphafi árs 2020. Það var í kjölfar neyðarákalls sem kom frá glugga heilbrigðiskerfisins sem er bráðamóttakan í Fossvogi. Þegar flæðir allt yfir þar þá er það vegna þess að það eru flöskuhálsar um allt kerfi. Þá var orð ársins, held ég, fráflæðisvandi, sem er auðvitað hræðilegt orð. Það er mjög illa að málum staðið að nýta mannauðinn svona illa og koma af svona miklu virðingarleysi fram við fólk. En það er ekki bara það heldur líka með því að ákveða að vanfjármagna heilbrigðisstofnanir úti um land. Þá geta þær ekki svarað þeirri vanfjármögnun með öðru en að draga úr þjónustu, fella hana niður og við það færist hún yfir á Landspítalann (Forseti hringir.) sem er yfirfullur af verkefnum. Þetta er auðvitað bara ofsalega óglögg stjórnun á heilbrigðiskerfi.