fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Mig langar til að koma öðru sinni upp í þessari umræðu um fjárlög, einna helst vegna ummæla hæstv. fjármálaráðherra hér fyrr í morgun varðandi stöðu leigjenda á Íslandi. Aðspurður hvaða skoðun hæstv. ráðherra hefði á þeirri staðreynd að hér væri verið að hækka leigu um tugi þúsunda milli mánaða vildi hann meina að þetta væri óforsvaranleg hegðun og að hæstv. ríkisstjórn væri nú þegar að grípa til aðgerða til að vinna m.a. gegn svona þróun. Mér er það eiginlega skylt að koma hér upp í pontu og ræða aðeins frekar um húsnæðismálin eins og þau birtast nákvæmlega í því fjárlagafrumvarpi sem við erum að ræða hér vegna þess að það er ekki heiðarlegt að mínu mati og í besta falli útúrsnúningur á sannleikanum og í raun og veru óeðlileg framsetning að stilla þessu svona upp. Ef ég fæ að vitna hér í hæstv. ráðherra frá því í morgun, með leyfi forseta, segir hann:
„Það sem ríkisstjórnin hefur verið að gera á undanförnum árum er að setja aukna fjármuni í framkvæmdir til að hér geti risið fleiri félagslegar íbúðir sem eru hugsaðar fyrir þá sem eru á leigumarkaðinum. Við höfum verið að hækka húsnæðisbætur og koma upp húsnæðisbótakerfi.“
Síðar í ræðunni talar hann um margvísleg úrræði í þessum málum. Í fyrsta lagi talar hann um að þau hafi verið að hækka bætur almannatrygginga, í öðru lagi talar hann um að þau hafi boðað hækkun á húsnæðisbótum og í þriðja lagi vitnar hann í þær skattalækkanir sem hæstv. ríkisstjórn hefur ráðist í á undanförnum árum.
Virðulegi forseti. Við skulum fara skipulega yfir þennan málflutning hæstv. ráðherra, sérstaklega í samhengi við fjárlög næsta árs sem við erum að ræða nákvæmlega í þessum töluðu orðum. Í fyrsta lagi, ef við tölum bara almennt um stöðu þeirra sem eru að fá greiðslur í gegnum almannatryggingakerfið, þá liggur alveg fyrir að hæstv. ríkisstjórn hefur dregið lappirnar verulega þegar kemur að því að framfylgja einföldum lögum í landinu. Samkvæmt 69. gr. almannatryggingalaga ber hæstv. ríkisstjórn að hækka bætur almannatrygginga sem nemur hækkun verðlags eða launa, hvort heldur sem hærra er. Það er ekkert álitamál ef tölur undanfarinna ára eru skoðaðar og liggur alveg fyrir að þessar bætur hafa rétt svo fylgt verðlagi, alls ekki launum, og þarna hefur orðið gríðarleg kjaragliðnun. Í núverandi framsetningu fjárlagafrumvarpsins sem við hér ræðum stærir hæstv. ríkisstjórn sig reglulega af því að hún sé að hækka almannatryggingabætur miðað við verðlag eins og það sé eitthvert stórkostlegt framfaraskref að fylgja algjöru lágmarki laganna og í raun ekki að fylgja lagabókstafnum að fullu vegna þess að það vita það allir að verðlag hefur hækkað mun minna en sem nemur launavísitölu. Þetta skiptir máli í samhengi við umræðu um húsnæðismarkaðinn vegna þess að það er líka vitað að það sem fyrst og fremst hefur verið að drífa áfram m.a. getu fólks til að kaupa dýrara húsnæði og vera á dýrari leigumarkaði er launavísitala, það er ekki verðlagið. Húsnæði hefur frekar hækkað í takt við laun, þó langt umfram það, en langt í frá í takt við verðlag. Þeir einstaklingar sem eru á strípuðum almannatryggingagreiðslum frá ríkinu hafa því ekki fengið sinn hlut bættan hvað þetta varðar þannig að mér finnst þetta mjög ódýr framsetning hjá hæstv. fjármálaráðherra.
Í öðru lagi talar hæstv. fjármálaráðherra um boðaða hækkun á húsnæðisbótagreiðslum. Förum aðeins yfir þá hækkun sem hér er oft verið að ræða um í fjölmiðlum. Á miðju ári eftir margra mánaða pressu frá stjórnarandstöðunni um að grípa til aðgerða vegna verðbólgu komu loksins nokkrar aðgerðir, m.a. 10% hækkun húsnæðisbóta. Þetta er trommað upp sem mikil framför en ekki sett í sögulegt samhengi sem er sú staðreynd að þessar bætur hafa staðið óhreyfðar í áraraðir, yfir fimm ára tímabil, og á sama tímabili hefur leiguverð hækkað um hátt í 40% þannig að 10% hækkun er auðvitað bara dropi í hafið. Það er m.a. ástæðan fyrir því að við í Samfylkingunni tölum um það í þeim kjarapakka sem við kynntum núna í vikunni að það þurfi að fara í viðbótarhækkun á húsnæðisbótum og ég veit að það eru fleiri í stjórnarandstöðunni sem styðja þá breytingu og það ættu í rauninni fleiri í stjórnarliðinu að styðja það miðað við stefnu ákveðinna flokka.
Í þriðja lagi langar mig að nefna varðandi umræddar skattalækkanir sem eiga að hafa hjálpað þessum hópi að sá aðili sem er mikið vitnað til í fjölmiðlum þessa dagana og hæstv. ráðherra tjáði sig um hér í pontu í morgun, sem er í rauninni verið að kasta út úr húsnæði sínu fyrir jólin vegna hækkana, er aðili sem hefur ekki fengið neinar skattalækkanir vegna þess að þeir sem þiggja greiðslur úr almannatryggingakerfinu hafa ekki fengið breytingar á sínum skerðingum í mörg ár. Þetta eru einstaklingar sem lifa við hæstu skattlagninguna hér á landi. Hátt í 75% af greiðslum eru tekin í skatta og það hafa engar skattalækkanir borist til þessa hóps. Núna rétt fyrir 2. umr. fjárlagafrumvarps mætir hæstv. ríkisstjórn með þá tillögu að breyta frítekjumarki atvinnutekna vegna þess að þau í ríkisstjórninni finna sig knúin til að gera eitthvað núna þegar öryrkjar eru komnir í þá stöðu að eiga alls ekki fyrir þeim útgjöldum sem þeir standa frammi fyrir um hver mánaðamót. Staðan hefur verið nógu erfið undanfarin ár en við erum að sjá mettölur þegar kemur að einstaklingum í hópi öryrkja og líka í hópi eldri borgara sem eru í fátækustu tíundinni sem eru að sækja um hjá umboðsmanni skuldara. Við heyrum þetta víða í dag. Þá er farin sú leið að vera tilbúin að hækka frítekjumark öryrkja þegar kemur að atvinnutekjum upp á 200.000 kr. þrátt fyrir að margir sem eru í stjórnarandstöðunni, þar með talið við í Samfylkingunni, hafi talað um þetta í áraraðir. Síðast í fyrra felldi hæstv. félagsmálaráðherra tillögu um að hækka frítekjumarkið. Mig langar líka að vekja athygli í því samhengi að meira að segja sá hópur í samfélaginu sem er með lægri tekjur og naut skattalækkana ríkisstjórnarinnar hefur liðið fyrir það annars staðar í kerfinu. Það sem fréttist aldrei þegar ráðist er í slíkar skattalækkanir sem eru ófjármagnaðar — það var farið í ófjármagnaðar skattalækkanir þvert á tekjustigann og ekki sótt fjármagn annars staðar í kerfinu, hvorki í formi hærri fjármagnstekjuskatts eða í formi auðlindarentugjalda, hvað þá að það væri litið til þess að sækja fjármagn þar sem hefur verið gríðarleg fákeppnisrenta undanfarin ár, m.a. með því að snúa við lækkun bankaskattsins á sínum tíma — er að þetta þýðir að velferðarkerfið hefur veikst. Það hefur veikst um tugi milljarða á ári hverju. Fjármálaráð sem metur fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ár hvert benti á í sínu áliti síðast í vor að um 42 milljarðar kr. væru að renna út úr ríkissjóði vegna þessara almennu skattalækkana. Og á hverjum bitna þær skattalækkanir? Þær bitna auðvitað á fólkinu í landinu sem nýtir kerfin okkar hvað mest. Það eru viðkvæmustu hóparnir í landinu, einstaklingar sem m.a. fá þau svör reglulega að það sé ekki til fjármagn til þess að hækka greiðslur almannatrygginga en líka einstaklingar sem njóta ekki greiðslna almannatrygginga heldur eru á bara lágum launum almennt, þeir upplifa nú við sínar heimsóknir til að mynda til sérfræðilækna að komugjöld hafa hækkað verulega. Það hefur ekki verið fjármagn til þess að semja við sérfræðilækna þannig að kostnaður almennt við að sækja læknisþjónustu hefur hækkað verulega. Það er verið að veikja velferðarþjónustu víða um land.
Nú bárust þær fréttir við framlagningu þessa fjárlagafrumvarps sem við ræðum í dag, ekki bara í haust heldur var líka vilyrði um að það yrðu breytingar strax núna í 2. umr., að það ætti að koma fjármagn í stofnframlög vegna húsnæðiskerfisins. Það átti að tryggja aukið framboð af félagslegu húsnæði sem bæði einstaklingar sem eru á örorkubótum og fólk á lágum launum á almenna markaðinum á að geta nýtt sér og þarf þá ekki að standa frammi fyrir sömu stöðu og umræddur einstaklingur sem hefur verið í umræðunni undanfarna tvo, þrjá daga. Fjöldi þessara íbúða sem hægt er að byggja á næsta ári mun minnka vegna stefnu stjórnvalda. Hér kemur hæstv. fjármálaráðherra upp í morgun og talar um að þau séu í einhvers konar stórsókn í að hjálpa þessum hópi. Ég fjallaði ítarlega um þetta í mínu nefndaráliti um fjárlagafrumvarpið og fór yfir það í fyrri ræðu minni en mig langar bara að rifja þetta aftur upp vegna þess að það voru margir sem voru með miklar væntingar til umræddrar stórsóknar á húsnæðismarkaði sem hæstv. innviðaráðherra talaði reglulega um. Ég verð reyndar að viðurkenna að það kemur mér ekki á óvart að hæstv. fjármálaráðherra hafi ekki stutt þau loforð vegna þess að hann talaði ekkert endilega um fjölgun slíkra íbúða af miklum stuðningi. Það voru ákveðin merki um spennu milli hæstv. innviðaráðherra og hæstv. fjármálaráðherra þegar kom að þessu verkefni. Í vor talaði innviðaráðherra um að það ætti að fara í fjölgun íbúða fyrir tilstuðlan átaks stjórnvalda, um 4.000 á ári. Þar af ætti þriðjungur að vera í formi óhagnaðardrifins eða hagkvæms húsnæðis, um 1.200 íbúðir á ári. Þessi tala skiptir máli vegna þess að undanfarin ár hafa um 600 íbúðir á ári verið byggðar á þessum forsendum. Svo kemur frumvarp til fjárlaga í haust og það liggur fyrir að það er ekkert nýtt fjárframlag til uppbyggingar slíkra íbúða sem þýðir að við blasir niðurskurður í slíkum fjárheimildum. Þessar fjárheimildir áttu að koma inn í 2. umr., sem stendur núna yfir, en ekkert fjármagn kom heldur. Síðustu upplýsingar sem við höfum fengið, bæði frá innviðaráðherra og frá fjármálaráðuneyti, og hafa núna verið staðfestar eru að það kemur ekkert meira inn í þennan lið. Á næsta ári stendur bara til að byggja í mesta lagi um 400 íbúðir á hagkvæmum eða óhagnaðardrifnum grunni. Þetta er samdráttur frá fyrri árum.
Hér koma síðan hæstv. innviðaráðherra og síðast í morgun hæstv. fjármálaráðherra og bera fyrir sig að mögulega sé verið að byggja of mikið fyrir ákveðna hópa í samfélaginu vegna þess að það búa 10.000 færri hér á landi en áður var búist við og því sé allt í lagi að draga úr þessu. Eins og það viti það ekki allir að hópurinn þarna úti sem þarf á félagslegum úrræðum að halda hefur ekkert minnkað á þessu kjörtímabili og hann hefur ekki minnkað frá því að þessi 10.000 manna fækkun átti sér stað í tölum Hagstofunnar þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu að ráðist verði í slíka uppbyggingu.
Mig langar líka að taka á öðrum rangfærslum að mínu mati hjá hæstv. innviðaráðherra og líka meðal annarra ráðamanna ríkisstjórnarinnar, um að það sé ekki hægt að byggja slíkar íbúðir hér á landi vegna þess að það séu ekki lóðir til staðar í sveitarfélögunum. Það er klassísk taktík hjá ríkisstjórninni að skella skuldinni á sveitarfélögin en það vill svo skemmtilega til að oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík kom fram í fréttum fyrir nokkrum dögum og fullyrti að í samningum og í viðræðum m.a. við ríkið hafi komið fram að Reykjavíkurborg sæi sér fært að veita allt að 3.000 lóðir til uppbyggingar á næsta ári. Ef þriðjungur af þeim lóðum yrði nýttur í hagkvæmt, óhagnaðardrifið húsnæði, virðulegi forseti, þá væri það uppbygging á 1.000 íbúðum.
Það liggur alveg fyrir að það er svigrúm til staðar til að bregðast við þessari stöðu. En það er hins vegar ekki pólitískur vilji. Við töluðum um það í kjarapakka okkar í Samfylkingunni sem við kynntum fyrr í vikunni að við myndum tvöfalda þau framlög sem færu inn í húsnæðisuppbyggingu á næsta ári í staðinn fyrir að helminga þau og við teljum vera rúmt svigrúm til þess, bæði fjárhagslega en líka byggingarlega, þ.e. að það séu til lóðir til þess að gera það á árinu.
Síðan langar mig að nefna líka í þessu samhengi, varðandi þær aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem hæstv. fjármálaráðherra vitnaði til í morgun og sagði að væru umfangsmiklar, að Samfylkingin hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að sett verði á leigubremsa hér á landi og hefur talað víða um nauðsyn þess. Hugmyndin er kannski fyrst og fremst sú að þetta verði, a.m.k. á tímum sem þessum, tímabundið úrræði þegar ljóst er að stjórnvöld hafa enga stjórn á húsnæðismarkaðinum. Þetta úrræði hefur ítrekað verið talað niður af meðlimum ríkisstjórnarinnar sem hafa haldið því fram að þetta myndi halda aftur af uppbyggingu húsnæðis eins og að um eitthvert fast leiguþak sé að ræða þegar við höfum verið mjög skýr á því að þessi leigubremsa, sem m.a. danska ríkisstjórnin innleiddi, snúi að því að halda aftur af óþarfa hækkunum, okurhækkunum, en ekki nauðsynlegum hækkunum sem endurspegla m.a. hóflegt verðlag. Ég held að það sé líka vert að geta þess í þessu samhengi, af því að Danir hafa farið þessa leið og nýlega Skotar, að á Íslandi eru um 5% af húsnæðisstofninum á félagslegum grunni. Í Danmörku er það í kringum 20% og þrátt fyrir það taldi ríkisstjórn jafnaðarmanna þar nauðsynlegt að grípa líka inn í á almenna markaðnum til að hemja leiguverðshækkanir. Hér, svo ég ítreka það, er félagslegt húsnæði 5% af markaðinum og það er enginn áhugi á að hægja á þessum leiguverðshækkunum. Það stendur því ekki steinn yfir steini í þessum yfirlýsingum hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. ríkisstjórnar um að það sé verið að gera eitthvað í húsnæðismálum í landinu.
Við vitum öll sem þekkjum sögu húsnæðismála á Íslandi að það hefur í raun ekkert akkeri verið í húsnæðiskerfinu frá því að verkamannabústaðakerfið var lagt niður á sínum tíma, m.a. af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Það hefur heldur ekki verið vilji til að bregðast við þeirri umræðu og gagnrýni sem hefur víða borið á og við í Samfylkingunni höfum haldið á lofti um að það sé verið að nota húsnæði sem fjárfestingareign í samfélaginu. Við vitum að af þeim 35.000 íbúðum sem voru byggðar á árabilinu 2005–2022 þá runnu 24.000 af þeim íbúðum, 65% af nýjum íbúðum sem komu inn á markaðinn á þessu árabili, annaðhvort til lögaðila eða fólks sem var að kaupa íbúð númer tvö. Menn hafa ekki verið að byggja íbúðir fyrir fólk til að eiga heima sjálft í heldur til að gera út. Ég held að það skipti mjög miklu í þessu samhengi að það sé íhugað alvarlega að setja ákveðnar hömlur á það hvers konar lán t.d. er hægt að fá fyrir slíkum íbúðum og koma í veg fyrir að það sé farið með húsnæði sem fjárfestingareign af því að þetta eru heimili fólks fyrst og fremst.
Svo langar mig í lokin að vekja athygli á því sem hefur víða verið rætt á undanförnum mánuðum, og það var mjög eftirtektarvert til að mynda í kosningabaráttunni haustið 2021 vegna alþingiskosninga, að lágir vextir væru afleiðing af hagstjórnarsnilld hæstv. fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar. Helstu rökin fyrir því voru að það væru ekki vandræði á húsnæðismarkaði, það væri orðið svo ódýrt að fá lán, fólki væri boðið loksins upp á hagstæða vexti hér á landi. En það var víða vitað í hringjum um efnahagsmál og hefði átt að vera ráðgefandi fyrir fjármálaráðuneytið að þessir vextir voru vegna kreppu og voru tímabundnir. Þessar vaxtalækkanir og líka almenn úrræði á vegum stjórnvalda á tímum Covid ýttu náttúrlega verulega undir eignabólu á húsnæðismarkaði. Staðan er sú að þrátt fyrir að vextir hafi verið lágir á tímabili eru þeir núna orðnir jafn háir og þeir voru fyrir tíu árum síðan og þrátt fyrir að það mætti segja í sögulegu samhengi að að einhverju leyti væru þeir í lægri endanum eða kannski svona á millistigi er undirliggjandi kostnaður við að kaupa eign í sögulegu hámarki. Ég vek athygli á því að í fyrra var það þannig að það þurfti fjórtánfaldar ráðstöfunartekjur hvers árs, þ.e. fólk þurfti að vera búið að spara allar ráðstöfunartekjur sínar 14 sinnum eftir hvert ár til að geta keypt sér íbúð ef það ætlaði að eiga hana skuldlaust. Á árunum 1990–2004 var þetta hlutfall upp á átta til níu sinnum. Þannig að grunnkostnaðurinn við að eignast húsnæði hefur margfaldast. Og þrátt fyrir að greiðslubyrði hafi kannski verið haldið í lágmarki yfir stutt tímabil vegna vaxtagreiðslna þá er fólk að borga margfalt meira af sínum ævitekjum en nokkurn tímann áður til að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Þetta hefur aðallega gerst á vakt þessarar ríkisstjórnar. Öll umræða sem kemur núna fram hjá Framsóknarflokknum um að þau séu að vinna í málunum, að hlutirnir séu í vinnslu, þetta sé allt að koma, er að mínu mati óafsakanleg. Um er að ræða stjórnmálaflokk sem er búinn að vera í ríkisstjórn hér meira og minna síðan 2013 og á árunum þar áður haldið utan um félagsmálaráðuneytið í langan tíma og það eru takmörk fyrir því hvað er hægt að skýla sér lengi á bak við það að hlutirnir séu á leiðinni.
Mig langaði bara til að koma inn á þetta, virðulegi forseti, vegna þess að mér finnst algjörlega ótækt þegar kemur upp neyð hjá einstaklingum, eins og hefur auðvitað lengi verið til staðar en er að birtast okkur núna sérstaklega í samfélaginu í dag, að við séum með háttsetta ráðamenn innan ríkisstjórnarinnar sem koma hér upp í pontu og beinlínis snúa út úr sannleikanum þegar kemur að fjárheimildum fyrir næsta ár. Það er verið að básúna um einhvers konar stuðning sem er hvergi að finna í samþykktum fjárheimildum. Nýjasta útspilið frá hæstv. fjármálaráðherra en líka hæstv. forsætisráðherra er að verið sé að vinna í einhvers konar pakka fyrir kjarasamninga sem mögulega gæti komið á næstu vikum en við sem höfum lesið hverjar fjárheimildirnar eru fyrir næsta ár vitum öll að það er hvergi búið að eyrnamerkja fjármagn fyrir neinu af þessu. Og það er ekki eðlilegt í velferðarríki að það sé verið að spila svona með líf og tilfinningar fólks út frá einhverjum kjarasamningsviðræðum. Það á auðvitað að liggja fyrir plan fyrir stöðu þessa fólks af því að á því ber hæstv. ríkisstjórn ábyrgð.